Dásemd í potti: Lambapottréttur frá Lankasterskíri - núna er veisla!

Ég hef lengi viljað elda þennan rétt. Ég hef verið fylgismaður "slow cooking" - síðastliðin ár hef ég bloggað fjölda rétta sem voru eldaðir eftir þeirri aðferðafræði. Satt best að segja veit ég ekkert betra en að eyða heilum laugardegi í að elda - helst hægt og rólega. Með þessari aðferð nær maður að umbreyta hráefni á sem bestan hátt - breyta seigum ódýrum kjötbita í ljúffenga munnfylli sem bráðnar í munni er ótrúlega gefandi. 

Í fjölda matreiðslubóka sem ég á kemur þessi uppskrift fyrir - enda er um enga nýja uppskrift að ræða. Þetta mun aldrei falla undir neina "glamour" eldamennsku, enda eru pottréttir sjaldnast af þeirri gerðinni. Þetta er matur fyrir sálina - sem vermir hjartað og lætur manni líða vel. Þetta er matur sem maður á að elda á rólegum laugardegi, helst köldum, og gæða sér á þegar maður kemur heim eftir langan göngutúr í frostinu. Dagarnir hafa einmitt verið þannig síðasta mánuðinn. Mér skilst að Íslendingar hafa ekkert misst af því kuldaskeiði sem hefur verið í Evrópu síðastliðin mánuðinn - hérna hefur líka verið einkar kalt síðastliðnar vikur!

Mér skilst að þessi réttur hafi orðið til fyrir löngu síðan - í Lankasterskírí í Englandi. Fyrir tíma iðnvæðingarnar og þess tíma að allir höfðu ofn á heimilum sínum fóru eldabuskur með þennan rétt í kermaíkpotti og settu í ofn bakarans sem þá hafði lokið störfum fyrir daginn en hafði heitan ofn til ráðstöfunar. Hægt var að raða pottum sínum í ofninn að morgni og koma og sækja hann að loknum vinnudegi. Þetta er einfaldur réttur - en ekki láta blekkjast, þetta er alger veislumáltið. Við notuðum sænskan lambaframpart sem var sóttur hérna útí búð. Þetta hefði verið ennþá betra með íslensku lambi! 

 Dásemd í potti: Lambapottréttur frá Lankasterskíri - núna er veisla!

Einfaldasti réttur sem ég hef eldað - það eina sem þarf er smá tími! 

shoulderlamb 

Það er sjaldan sem hægt er að nálgast heilan frampart í verslunum hérna. Yfirleitt þarf ég að panta þetta frá slátraranum. Kosturinn við þennan bita er að hann er auðvitað þrælódýr en það þarf þó að gefa sér tíma í að úrbeina hann. Ekki láta ykkur það vaxa ykkur í augum heldur setjið bara góða tónlist á og beittan hníf í hönd - þá mun þetta ganga vel. Bara fylgja beininu.  

debonedshoulder 

Svo er um að gera að geyma beinið - brúna það í ofni og sjóða með smávegis grænmeti og búa til ljúffengt lambasoð.  

lambready 

Það fékkst heil ósköp af kjöti af þessum eina framparti - nóg fyrir okkur öll og gott betur. Og þetta tók miklu styttri tíma en ég hafði gert mér grein fyrir - en kannski gleymdi ég mér líka bara, svona föndur er eitthvað sem ég get alveg gleymt mér í.

potatoes 

Næst er að flysja nokkrar kartöflur. Og síðan að skera þær niður - það væri auðvitað hægt að nota mandólín, sem væri fljótlegra - en sjónvarpskokkurinn Rick Stein hvatti áhorfendur sína að forðast það. Kartöflurnar yrðu mun heimilislegri og meira "rustic" við að sneiða þær niður með hníf. 

onions 

Síðan þarf maður 2-3 stóra lauka sem er skornir niður í skífur og svo í helminga.

potentchickenstock 

Ég átti kraftmikið kjúklingasoð inni í frysti sem ég hafði búið til áður og setti í pott og sauð upp. Auðvitað væri hægt að gera bara soð úr teningum - en fátt gerir mat betri en gott soð. Auguste Escoffier sem er faðir franskrar matargerðar sagði einhvern tíma að kokkar væri skilgreindir eftir því hvernig og hversu góð soð þeir gerðu.

 layer1-1 

Þá er lítið annað að gera en að raða kartöflunum, lauknum og kjötinu í pottinn. Þarna er mikilvægt að staldra við. Það er ráðlagt að smyrja pottinn að innan með bráðnu smjöri. Salta og pipra rækilega og setja nokkur lauf af fersku/þurrkuðu timian. Þá er bara að byrja að raða réttinum saman. Fyrst kartöflur, svo lauk, svo kjöt, salta og pipra, timian og þar fram eftir götunum þar til að potturinn er fullur eða hráefni þrýtur.

layer2 

Raða síðan einu lagi af kartöflum, lauk og svo lambakjöti. Muna að setja timian, salt og pipar á hvert lag!

stockinpot 

Þegar komið er að síðasta laginu er ráðlagt að þrýsta ofan á hráefnið þannig að það verði þéttara. Þá hellti ég 800-1000 ml af kjúklingasoði - ekki þannig að það flaut yfir en sást þó. Síðan reyndi ég að raða síðasta laginu af kartöflum fallega ofaná. Þá var lokið sett ofan á pottinn, inn í ofn - 130-150 gráður í 3-6 klukkutíma. 

hotpotready 

Klukkutíma áður en að rétturinn er borin fram, tekur maður hann út úr ofninum í stutta stund og penslar efsta lagið með bræddu smjöri. Þá hækkar maður hitann á ofninum í 200 gráður og setur svo réttinn aftur inn - en núna án loksins þannig að kartöflurnar nái að taka lit. 

redcabbage 

Maturinn er borin fram með rauðkáli, sem er ekkert svo frábrugðið því sem við erum vön að hafa með jólamatnum. Uppskriftin frá Lankasterskíri kveður á um pæklað rauðkál - en það tekur nokkra daga að matbúa það - þannig að þessi uppskrift var spunninn á staðnum! 

redcabbagepickle 

Hálfur haus af rauðkáli var skorinn niður, settur í pott með klípu af smjöri, 1 dl af eplaediki, 1/2 dl af balsamikediki, 2 dl af berjasafa (td. bláberjasafa), salt og pipar, 1 msk af sykri, kryddað með nokkrum negulnöglum og teskeið af muldum kóríander. Vökvinn var soðinn upp og svo soðinn niður þannig að allur vökvi hafði gufað upp.

hotpotserved 

Maturinn var alveg magnaður. Hvernig getur svona einfaldur réttur - með svona fáum hráefnum orðið svona ljúffengur!?

Wolfblass 

Með matnum drukkuð við þetta kraftmikla rauðvín, Wolf Blass Presidents Selection Cabernet Sauvignion frá því 2004. Þetta vín er frá Suður Ástralíu. Wolf Blass framleiðir fjölda vína - allt frá búkollum sem eru alveg ljómandi, upp í þungavigtarvín. Þetta er fallega dökkrautt vín í glasi. Bragðmikið með miklu berjabragði, keimur af súkkulaði, vanillu og eikað. Djúpt bragð með góðri fyllingu.

dinnerhotpot 

Bon appetit! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hljómar dásamlega! En nú spyr ég sem ekki veit, væri hægt að nota nautakjöt í staðinn? Ég á fulla skúffu í frystinum af svona bitum sem krefjast tíma til þess að verða góðir og vantar svo uppskriftir til að nota þá í. Ef þú heldur að ég gæti notað þá, hvað heldur þú þá að það hafi komið ca mörg grömm af frampartinum þínum?

Margret (IP-tala skráð) 12.2.2012 kl. 18:06

2 identicon

Færslur þínar eru mér innblástur að vanda og ætla ég að bruna beint í búðina og athuga hvort ekki fáist almennilegt hráefni í þennan rétt. Hef þetta svo tilbúið í kvöld þegar fjölskyldan kemur heim eftir útstáelsi. Það er einmitt 10 gráðu frost hjá mér þannig að þessi réttur er fullkominn á slíkum degi!

Ásgerður (IP-tala skráð) 12.2.2012 kl. 18:30

3 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl Margrét

Það er örugglega hægt að nota nautakjöt í staðinn. Veldu bara bitana sem eru feitir og fallegir - framhluta, háls og svoleiðis bitar- Þeir verða bestir við langeldun!

Ragnar Freyr Ingvarsson, 12.2.2012 kl. 18:54

4 identicon

Sæll Ragnar

Má ég spyrja hvað þú ert með stóran pott undir þetta. Mig langar svo hryllilega í Le Creuset pott en get ekki alveg ákveðið hvaða stærð. Þinn virðist passlegur.  Þessi réttur er ótrúlega girnilegur.

Er hægt að gera kjúklingasoð úr beinagrind kjúklings sem hefur verið grillaður. Það væri gaman að vita hvernig þú gerir kjúklingasoð. 

Takk fyrir allan innblásturinn! :)

Þóra (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 12:18

5 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl Þóra

Ég var með 6,7 L Le Creuset pott undir þennan rétt - það ætti að vera passlegt fyrir 10, allaveganna. Le Creuset er eitt af mínum uppáhalds vörumerkjum, enda er þetta lífstíðareign og nær ómögulegt að eyðileggja þessa potta!

Kjúklingasoð er einfalt að gera og nauðsynlegt að eiga í frysti. Og það er um að gera að nota beinagrindur af grilluðum kjúkling! Steiktu lauk, gulrót, sellerí og 2 hvítlauksrif (hökkuð) í potti í nokkrar mínútur. Settu svo beinagrindina, nokkur lárviðarlauf, salt og piparkorn, nóg vatn til að hylja og láttu suðuna koma upp. Skafðu frá froðuna (scum sem kemur upp) ef þú vilt fá tært soð. Sjóddu í 1-2 tíma með lokið á og síaðu soðið. Sjóddu síðan niður um helming. Kraftmikið soð - good to go!

Ragnar Freyr Ingvarsson, 22.2.2012 kl. 17:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband