Frábær ofnbakaður kjúklingur með 40 hvítlauksrifjum, salato tricolore, baguettu og góðu rauðvíni

40hvítlauksrifÞetta er klassísk uppskrift. Það er varla til klassísk matreiðslubók þar sem þessi uppskrift er ekki látinn fljóta með. Í öllum matreiðslu bókum þar sem hvítlauki er hampað er spilar þessi uppskrift stóra rullu. Sennilega er það einfaldleikinn við þennan mat sem gerir hann svona stórkostlegan. Ég hafði ekki eldað þessa uppskrift í langan tíma, þar til fyrir tveimur mánuðum þegar ég var að horfa á gamlan þátt með Nigel Slater þar sem vinur hans, Alistair Little, eldaði þennan rétt. Síðan þá hef ég eldað þennan rétt þrisvar sinnum. Ástæðan fyrir því að hann var ekki kominn á netið var sú að ég var alltaf hreinlega búinn að borða matinn áður en til myndatöku kom. Maturinn var bara svona góður. Reyni að vanda mig núna.  

kjúklingurundirbúningurÉg gæti eins bætt við einu hvítlauksrifi og kallað þetta mína eigin en það myndu allir sjá í gegnum það. Í það minnsta allir sem lesa matreiðslubækur. Varðandi hvítlaukinn, þ.e.a.s. magnið, þá munu sumir segja að þetta sé alveg fráleitt magn. Þvert á móti ... er þetta alveg ljúffengt og oft þannig að maður myndi óska að rifinn væru fleiri (þarna er kominn hugmynd að eigin uppskrift!?!). Þegar hvítlaukurinn er bakaður í pappírnum í jómfrúarolíu í tæpa klukkustund þá verður dramatísk breyting á bragði hans ... allt sterkt og hast bragð hverfur og í staðinn verður dásamlegt bragð af sætum hvítlauk með djúpu eftirbragði sem minnir á stund á karamellu. Ég er næstum því farinn að froðufella við að skrifa um þetta.

Svona máltíðir eru líka svo einfaldar í eldamennsku. Undirbúningurinn tekur ekki nema nokkrar mínútur. Bökunin rúman klukkutíma, sem er nógur tími til að njóta hvítvínsglas í sólinni, spila góða tónlist og spjalla við fjölssalatkylduna.

Ofnbakaður kjúklingur með 40 hvítlauksrifjum, salato tricolore, góðu brauði og auðvitað ljúfu rauðvíni

Þó um einfalda uppskrift sé að ræða er mikilvægt að elda réttinn eins og lög mæla fyrir. Kjúklingurinn þarf um 30 mínútur lengri tíma heldur en hvítlaukurinn. Kjúklingurinn er hreinsaður og svo þurrkaður. Þá er smávegis af jómfrúarolíu sett í grindarholdið, salt, pipar, líka hálfur laukur, hálfsítróna, smávegis af rósmaríni og svo timian. Kjúklingurinn er þvínæst nuddaður upp úr jómfrúarolíu og svo er hann saltaður rækilega og pipraður vel. Handfylli af fersku timian er svo sáldrað yfir fuglinn og hann svo settur inn í 180 gráðu heitan ofn. Þegar 20-30 mínútur eru liðnar er hvítlauknum settur í eldfasta mótið með fuglinum og bakaður áfram í um klukkustund eða þar til að hann er tilbúinn.

Þá er fuglinn tekinn úr ofninum og hann lagður til hliðar á meðan sósan er undirbúin - sem er afar einfalt. Rétt áður en kjúklingurinn er tekinn úr ofninum er hálfur líter af kjúklingasoði sett í pott. Kjúklingurinn er færður á disk og ofnskúffan sem kjúklingurinn var í er settur á hlóðir. Soðinu er varlega bætt saman við og bakkinn skafinn upp þannig að allt góða bragðið sem hefur festist við bakkann losnar úr læðingi. Sósan er smökkuð og söltuð og pipruð eftir smekk. Hún er svo soðinn niður í um 10 mínútur á meðan kjúklingurinn jafnar sig.

Salato tricolore er klassískt ítalskt salat. Bakki er smurður með örlítilli jómfrúarolíu, saltaður og pipraður og svo er mozzarella sósansneiðum, basil og niðurskornum vel þroskuðum tómötum raðað saman. Balsamik edik er svo sáldrað yfir ásamt jómfrúarolíu.

Með matnum drukkum við Ruffino Ducale Riserva Chianti Classico Riserva 2004. Þetta var prýðisgott ítalskt rauðvín. Þetta er vín með ljúfum ávexti, dökkt á litin með langt eftirbragð. Þetta er vín sem hefur verið að fá á bilinu 87-90 punkta á Wine Spectator. Þar er því haldið fram að þetta vín myndi batna með smá geymslu - bara að maður hefði þessa þolinmæði - það getur bara fengið að batna í búðinni. Þetta endist ekkert í minni hillu.

 

kjullitilbuinn2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Ragnar og takk fyrir innlitið um daginn. Alltaf gaman að hitta Ragnar Frey (meira að segja x2). Ég gleymdi að segja þér að mér þykir sérlega gaman að skoða vefinn þinn (óþolandi þegar maður hrósar fólki í huganum en gleymir að hrósa upphátt..)....og þó við séum ekki á sömu línu í matreiðslunni þýðir ekki að maður geti ekki fengið inspiration...síður en svo. Við ræddum líka um það ég og Ragnar Freyr (hinn) hversu impressed við værum yfir góðu skipulagi hjá mjög svo uppteknum manni.

Þú mátt kíkja við hvenær sem er (fyrir þú veist) og ég skal sýna þér nákvæmlega græjurnar fyrir það sem þú þarft (fyrir þú veist). Þú verður ekki svikinn af útkomunni........Til að fyrirbyggja misskilning þá er þetta ekki kinky dónatal lesendur góðir he he.

Sigrún (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 08:25

2 identicon

Sæll.  Takk fyrir fínar uppskriftir, fylgist alltaf með.  Varðandi 40 hvítlauksgeirana, eru þeir eldaðir í álpappír og hvað gerir þú svo við þá, eru þeir hluti af meðlætinu?

 Með kveðju,

M. Ósk.

Margrét Ósk Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 14:37

3 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl Margrét

Ég lagði hvítlauksgeirana bara í pappírnum með í eldfasta mótið. Ég bar þá svo bara fram með matnum og þeir voru borðaðir upp til agna.

Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 9.7.2008 kl. 18:59

4 identicon

Snildar síða, og góðar uppskriftir.

Talandi um Ruffino, þá er ég með eitt stikki svona flösku uppi í skáp sem er síðan 1997, og ég er búin að geyma í 7 ár, hún verður oppnuð í næsta mánuði, vonandi er hún enn í lagi.

Friðrik Tryggvason (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 02:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband