Færsluflokkur: Matur og drykkur
20.3.2007 | 22:53
Grænmetissúpa með heimagerðu brauði
Snædís, konan mín, eldaði í kvöld. Eins og ég hef áður sagt þá er hún frábær kokkur og sannaði það enn og aftur í kvöld með þessari máltíð. Ólíkt sjálfum mér, þá er konan mín, afar hrifinn af súpum. Af einhverri ástæðu þá lýst mér aldrei vel á að elda súpu, eða láta elda súpu fyrir mig. Mér finnst súpa, svona theorítískt, aldrei vera máltíð - en svo þegar ég fæ súpu er ég alltaf ferlega glaður. Mér finnst súpa þegar hún er kominn á borðið fyrir framan mig nær alltaf vera góð máltíð. Kvöldið í kvöld hentaði sérstaklega vel fyrir heita súpu og heimagert brauð. Dökkt yfir öllu, rigning eða snjókoma, og ilmurinn af nýbökuðu brauði og heitri súpu fyllti íbúðina. Það var gott að koma heim úr vinnunni í dag!
Grænmetissúpa með heimagerðu brauði
Fyrst var 2 msk af þykkri hvítlauksolíu hituð í potti og einn smátt skorinn rauðlaukur, 1 niðurskorinn kúrbítur, 2 niðurskornar gulrætur, 1 stöng a1f niðurskornu sellerí steikt í olíunni. Á meðan var 1 1/2 líter af kjúklingasoði útbúinn úr teningu. 1 dós af hökkuðum niðursoðnum tómötum var bætt við soðið og látið sjóða upp. Svo voru tómatarnir hakkaðir niður í soðinu með töfrasprota. Svo var þessu blandað saman við steikta grænmetið. 1 lítil flysjuð og niðurskorinn sæt kartafla og þrjár venjulegar niðurskornar kartölfur bætt útí súpuna. Kryddað með salti og pipar. 1/2 búnt af ferskri steinselju, 1 tsk þurrkuðu basil, smá season all, hvítlaukssalt og 1 glas af rauðvíni. Látið sjóða í eina klukkustund. Í lokin var bætt út 2 msk af rjómaosti og svo 100 ml af léttmjólk.
Með þessu var heimagert gróft brauð. 300 gr af heilhveiti, 200 gr af rúgmjöli, 100 gr af spelti, 50 gr af hveitiklíði, 150 gr af haframjöli var blandað saman í skál. Svo var 1 1/2 tsk lyftiduft bætt við, 3 tsk af Maldon salti, 3 msk af hlynssírópi, 3 msk jómfrúarolíu. 1 1/2 dl af súrmjólk og léttmjólk þar til þetta verður að þéttu, klístruðu deigi. Í lokin var svo bætt handfylli af haframjöli til að bæta á grófaleika brauðsins. Þetta var svo fært yfir í smurt form og bakað í 180 gráðu heitum ofni í 20 mínútur, að þessum tíma liðnum er brauðinu snúið í forminu og bakað í 20 mínútur.
Borið fram með smjöri, brauðosti, blárri dalayrju og franski pylsu. Með þessu var drukkið Anakena rauðvín frá Chile. Afar ljúffengt.
19.3.2007 | 00:26
Heimagerð pizza með smávegis nýjungum
Þetta var ansi ljúfur dagur þrátt fyrir að vera aðeins lúinn eftir vaktina. Vaknaði um eitt eiginlega við lykt af nýbökuðum skonsum og rjúkandi kaffi. Konan mín hafði tekið upp á því að baka skonsur í hádeginu. Það vakti mikla lukku - við erum fjölskyldan mjög hrifinn af öllu brauðmeti og sérstaklega skonsum og flatkökum og svoleiðis. Á eftir að setja inn þessa skonskuuppskrift frá Snædísi.
Á föstudaginn hafði ég haft rænu á því að taka út kæfu sem ég og mamma höfðum gert í haust eftir leiðbeiningum ömmu minnar - studdist einnig við matreiðslubók Helgu Sigurðardóttur - klassísk íslensk matreiðslubók - önnur skyldueign áhugakokka...mig minnir einmitt að amma mín hafi einmitt gefið mér þessa bók þegar ég var að byrja að búa. Kæfan heppnaðist vel.
Nú fer þessi vaktavika að líða undir lok. Á bara eina næturvakt eftir. Maður er alltaf farinn að tapa gleðinni aðeins á síðustu metrunum. Ætlaði að vera með sunnudagssteik í kvöld en steingleymdi að taka kjöt út úr frystinum þannig að það varð að byrja að huxa upp á nýtt. Dóttir mín fékk eiginlega að ráða og hún stingur alltaf upp á því að við gerum pizzur - henni finnst alltaf svo gaman að fletja út deigið.
Heimgerð pizza með smávegis nýjungum
Þetta er nú eiginlega algert svindl - nýjungin var fólgin í svo litlu að það tekur varla því að nefna það - nema hvað að ég held að uppskriftin hafi batnað aðeins við það. Eins og áður þá hef ég birt (þetta er þá í þriðja sinn) uppskrift af pizzubotn.
Útí 250 ml af ylvolgu vatni er sett 2 tsk þurrger og 30 g af sykri eða hunangi . Blanda saman vatninu, gerinu og sykri (eða hunangi) saman og leyfi gerinu að vakna - þá freyðir svona ofan á vatninu - tekur svona 10-15 mín. 400-600 gr. hveiti er er sett í skál og saltið og olían blandað saman við. Mikilvægt er að leyfa gerinu að vakna vel og rækilega og ekki setja saltið þarna úti - þar sem saltið hamlar aðeins gerjunarferlinu. Blanda vatninu svo hægt saman við hveitið þar til það verður að góðum deigklump. Það er mikilvægt að hræra deigið vel - þannig hefast það mikið betur og bragðast líka betur. Ég vil að deigið dúi vel undan fingri og þegar áferðin er þannig að deigið jafnar sig hratt þegar maður ýtir fingri í það breiði ég viskastykki yfir skálina og leyfi að hefast - eins lengi og maður hefur tíma. Deigið er nóg í tvær pizzur.
Þá er það þessi nýjung: Í þetta sinn átti ég eitthvað lítið af hveiti - átti kannski 400 gr þannig að ég leyfði deiginu að hefast vel og þegar ég var að fletja það út hafði ég rúgmjöl (átti hvorki hveiti eða heilhveiti) á borðinu. Það nuddaðist aðeins inn í deigið og það varð afar meðfærilegt. Gerði botninn mjög flatan - og hitaði ofninn meira en venjulega - hafði hann í 220 gráðum.
Ég er eiginlega alveg hættur að nenna að gera mínar eigin tómatsósur fyrir pitsur - þó að það sé nú eins einfalt og huxast getur - núna nota ég eiginlega bara Hunt roasted garlic tomato sauce. Hún er afar bragðgóð - milt og alls ekki súr.
Þetta var eiginlega afgangamatur. Átti talsvert af ostaafgöngum inn í ískáp; camenbert, gullost, gorganzóla og gráðaost. Þessu var dreift yfir aðra pitsuna og smá niðursneiddum rauðlauk yfir annan helming pizzunar. Á hina pitsuna var sett nautahakk, sveppir, þistilhjörtu og rjómaostur. Piprað vel.
Borið fram með kraftmikilli hvítlauksolíu. Afar ljúffengt - Botninn varð stökkur og góður - sennilega fyrir tilurð rúgmjölsins - get ímyndað mér að það hafi lyft botninum aðeins af plötunni (vegna grófleika þess) og þannig varð botnin stökkari (og kannski einnig fyrir tilstuðlan hærri hita). Dóttir mín var sérstaklega hrifinn af ostapitsunni þrátt fyrir bragðmikla osta.
Matur og drykkur | Breytt 22.3.2007 kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.3.2007 | 23:34
Monteray kjúklingur með steinseljuhrísgrjónum
Náði að elda eiginlega í fyrsta skiptið í vikunni. Ég sakna þess þegar ég næ ekki að elda reglulega. Veit fátt betra en að slappa af með hníf í annarri og pönnu í hinni. Dóttir mín sat og málaði á meðan og sonurinn lék á alls oddi við að herma eftir öllu sem fyrir augu hans bar. Gott kvöld. Þurfti þó að vera mættur í vinnuna kl 21. Kvöldið hefði auðvitað mátt vera lengra.
Uppskriftin sem þessi réttur er byggður á er fengin úr bókinni The Silver Palate - ég hef áður sagt frá þessari matreiðslubók - en hún er alveg frábær - ætti eiginlega að vera skyldueign allra áhugakokka. Mamma hefur mikið stuðst við þessa bók og stundum lánað mér hana, en seinast þegar ég pantaði bækur á netinu kippti ég henni með - gat eiginlega ekki verið þekktur fyrir annað en að eiga þessa bók. Á sama tíma fékk ég mér nýju Jamie Oliver bókina, Cook, nýju Nigellu bókina - Feast og svo eina bók frá dömunum á River Cafe. Þessar fjórar hafa verið á náttborðinu mínu síðustu vikurnar og hef ég gluggað aðeins í þær fyrir svefninn - tryggir ljúfenga drauma. En hvað um það.
Þessa uppskrift hef ég aldrei gert áður. En eftir lesturinn var alveg ljóst að þennan varð að reyna. ég átti ekki alveg sömu hráfefnin og nefnd voru í uppskriftinni og breytti aðeins hlutföllum eftir mínum smekk - er þetta þá ekki orðið að nýrri uppskrift . Var eitthvað að reyna að leita að uppruna þessa réttar á netinu - hann er með svo flott nafn - en fann eiginlega ekki neitt.
Monteray kjúklingur með steinseljuhrísgrjónum
1,5 kg af kjúklingabitum (eða stór kjúklingur hlutaður niður) er þveginn og þurrkaður og lagður á disk. Saltaður og pipraður á báðum hliðum. 3 msk af jómfrúarolíu er hituð á pönnu eða í stórum potti og kjúklingurinn svo lagður á pönnuna. Mikilvægt að brúna ekki kjúklinginn heldur bara þannig að hann taki gullinn lit. Það ætti ekki að taka nema 4-5 mínútur á hvorri hlið. Svo er kjúklingurinn settur til hliðar. 1 smátt skorinn hvítur laukur, 3 niðursneiddar gulrætur og 5 smátt skorinn hvítlauksrif eru sett útí heita olíuna - hitinn er lækkaður - eiginlega niður í botn - og svo fær grænmetið að krauma í olíunni í 15-20 mínútur. Ilmurinn verður eiginlega sætur og alveg dásamlegur.
Að 20 mínútum liðnum er 1 1/2 bolla af kjúklingasoði (ég átti heimagert í frystinum - sem er alltaf 100x betri en það sem maður býr til úr tengingum - en teningarnir eru alveg okei). 2/3 bolla af ferskum appelsínusafa og 2/3 bolla af hökkuðum niðursoðnum tómötum. Kryddað með salti og pipar og 1 tsk af þurkkuðu rósmaríni bætt útí. Suðunni er leyft að koma upp og svo er þetta látið krauma í 15 mínútur án pottloks þannig að það sjóði aðeins niður. Þá er kjúklingum bætt aftur útí og leyft að krauma í 25 mínútur.
Þegar um 15 mínútur eru eftir af eldunartímanum er grænmetið sem á að fara í réttinn undirbúið. Ein rauð paprika er hreinsuð að innan og sneidd í strimla (julienne) og steikt á pönnu í 2 msk af olíu. 1/2 niðursneiddur kúrbítur og 2 litlar niðursneiddar (og flysjaðar) sætar kartöflur er svo bætt útí og steikt á miðlungs hita þar til það er orðið mjúkt en heldur ennþá lagi sínu - tekur um 7-10 mínútur. Bætt útí pottréttinn og látið sjóða áfram í 5 mínútur með lokið á.
Pottrétturinn er svo færður yfir í skál og börkur (zest) af einni appelsínu - smátt skorinnu - dreift yfir ásamt 1/2 búnti af smátt skorinni steinselju.
Með þessu sauð ég hrísgrjón - notaði basmati hrísgrjón sem ég sauð skv. leiðbeiningum nema hvað ég setti einn tening af grænmetiskrafti í vatnið og smá jómfrúarolíu. Þegar hrísgrjónin voru tilbúin af 1/2 búnt af smátt skorinni ferskri steinselju bætt útí og hrært vel saman við.
Þessi réttur var alveg ljúffengur - höfundar The Silver Palate svíkja mann aldrei - eina sem vantaði var að fá sér smá rauðvín með þessu - það hefði verið fullkomið - en skyldan kallaði.
16.3.2007 | 00:18
Frábær kjúklingaréttur að hætti mömmu
Ég er á vöktum alla þessa viku og því er fátt um fína drætti í eldhúsinu. Hef eiginlega ekkert náð að elda síðan að ég kom heim frá Austurríki. Hins vegar hef ég verið duglegur við að borða ristað brauð með osti í vinnunni. Varla neitt til þess að tala um. Datt í hug að fá uppskriftir frá mömmu á meðan ég væri svona lítið að elda - en mamma er meiriháttar kokkur - hún og pabbi eru mínar fyrirmyndir í eldhúsinu.
Ég hef áður birt mína útgáfu af þessum rétt kjúklingarétt - það var mín útgáfa og mamma var alls ekkert sátt hvernig ég fór með uppskriftina. Þetta er einn af hennar bestu réttum og hún var nýlega matgæðingur Vikunnar og þar birti hún þessa uppskrift. Ég held samt að ég hafi ekkert vikið mikið frá hennar uppskrift - en hún hefur ýmislegt til síns máls, hennar réttur er alltaf mikið betri en minn.
Bað mömmu um að senda mér þetta og þetta er bréfið sem hún sendi mér...mamma best í heimi!
Kjúklingur Knabrostræde
Þetta er kjúklingaréttur, kenndur við Knabrostræde sem er gata sem gengur niður af Stikinu í Kaupmannahöfn, en þar bjuggum við hjónin um skeið fyrir nokkrum árum þegar maðurinn minn var í rannsóknarleyfi. Á ítölsku veitingahúsi í borginni pantaði ég mér kjúklingarétt sem var SVO góður að ég skrifaði hjá mér það sem ég taldi vera í honum og hóf tilraunir daginn eftir meðan bragðið var enn á tungunni! Þessi réttur varð mikill uppáhaldsréttur á heimilinu og hefur oft verið á borðum. Ég steiki úr blöndu af smjöri og olíu ef ég kemst upp með það, mér finnst smjörið einfaldlega bragðbæta matinn.
Kjúklingaréttur úr Knabrostræde (fyrir 4)
4 kjúklingabringur
Smjör og olía til steikingar
Salt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Kjúklingabringurnar steiktar á pönnu í blöndu af smjöri og olíu. Kryddaðar eftir smekk. Á meðan þær eru að steikjast er sósan útbúin.
Sósan
1 laukur, smátt skorinn
3-4 hvítlauksrif
Nokkrir sveppir, þunnt sneiddir
Nokkrar steinseljugreinar, saxaðar
Smjör og olía til steikingar
Lítil dós tómatpuree
Matreiðslurjómi
Salt, nýmalaður svartur pipar og kjúklingabullion eftir smekk
Laukurinn látinn malla (má taka smá lit, gefur aukabragð) í blöndu af smjöri og olíu. Svo eru sveppirnir settir saman við, þeir mega einnig taka smá lit. Pressaður hvítlaukurinn er settur út í, þá söxuð steinselja og hitinn lækkaður. Látið malla aðeins áfram. Tómatpuree og rjóma blandað saman við. Best er að byrja á að nota hálfa dósina og helminginn af rjómanum og bæta svo við eftir smekk.
Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er hann tekinn af pönnunni, vatni bætt á hana, hitinn hækkaður, soðið upp og vökvanum hellt í sósuna.
Klippa steinselju yfir réttinn. Borið fram með katalónskum kartöflum og léttsoðnum gulrótum og broccoli í stórum bitum.
Mér þykja kartöflur mjög góðar og vil helst borða mikið af þeim. Þegar við vorum í Barcelona fyrir mörgum árum fengum við kartöflurétt sem var svo góður að ég ákvað að reyna að ná bragðinu og áferðinni. Ég er ekki viss um að viðkomandi kokkur muni kannast við þær en þær urðu mjög vinsælar á heimilinu og þetta nafn festist á þeim:
Katalónskar kartöflur
Nokkrar meðalstórar kartöflur afhýddar og skornar í báta. Ólífuolía hituð á pönnu og kartöflubátarnir steiktir þar til þeir byrja að taka lit. Salti stráð yfir, tæpum 1 dl af vatni hellt í pönnuna, lok sett á og hitinn lækkaður. Það þarf að gæta þess að snúa kartöflunum tvisvar, þrisvar sinnum og vatnið á alveg að gufa upp. Þegar þær eru tilbúnar eiga þær að vera gullnar á litinn og fremur stökkar!
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2007 | 18:25
Einfalt tómatpasta fyrir vakt
Vaktavika framundan. Alltaf frekar gaman á vöktunum - mánudagar eru alltaf ansi hektískir á bráðamóttökum. Fólk virðist bíða fram yfir helgina og koma svo á mánudegi - það gerir mánudagsvaktir ansi stífar en á sama tíma mjög skemmtilegar. Unglæknar fá frí fyrir vaktirnar sem byrja kl 1530 og standa yfir nóttina. Náði að bregða mér í ræktina og elda mér svo síðdeigismat til að vera nú vel undirbúinn fyrir fjörið á hjartamóttökunni.
Einfalt tómatpasta
Gott pasta (Fabrizza di Rustichella) er soðið í miklu söltuðu vatni og smá olíu skv leiðbeiningum.
Á meðan pastað sýður er sósan undirbúin. 4 hvítlauksrif smátt skorin og hituð í olíu á pönnu. Þegar þau fara að steikjast er 1 dós af niðursoðnum söxuðum tómötum sett út á og hitað upp. Við þetta er bætt 1/2 dós af tómatpuré. Saltað og piprað. 1/6 búnt af saxaðri steinselju, 1/2 tsk af þurrkuðu óreganó, og eins og hnífsoddur af chilli dufti. Ef sósan er of súr má ná góðu jafnvægi með því að bæta tómatsósu útí.
Þegar pastað er orðið al dente er vatninu hellt frá og sósan sett í staðinn og hrært vel og látinn standa í 2 mínútur.
Borið fram með nýrifnum parmesanosti og saltað og piprað eftir smekk. Einfaldur en góður réttur og ekki sakar að hann er mjög fljótlegur.
Matur og drykkur | Breytt 16.3.2007 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2007 | 23:51
Hádegisverðarboð á Selfossi
Kollegi minn Dögg Hauksdóttir og unnusti hennar Grímur buðu okkur hjónunum og börnum í mat í nýja húsið þeirra á Selfossi. Fallegt heimili sem þau eru að koma sér upp. Einnig var Kolbrúnu Pálsdóttur öðrum kollega og manni hennar Aroni boðið. Ég hélt í fyrstu að við værum í leiðinni í svona brauðveislu hádegisverð eins og oft er á sunnudögum - en hér var í boði full fledge veislumáltíð.
Ég fékk leyfi Daggar og Gríms til að setja þessar uppskriftir á netið. Ég veit ekki alveg hvernig er með hlutföllin en reyni að giska á. Vona að Dögg sendi mér hlutföllin og ég mun svo bæta þeim við færsluna.
3 kg lambalæri var kryddað með rósmarín, hvítlauk, grófu salti, pipar og olíu. Svo var það sett í álpappír með smá slurk af hvítvíni. Svo var álpappírnum vafið um lærið - ekki of þétt og gáð að því að engin vökvi fengi að sleppa. Bakað við 180 gráður í einn og hálfan tíma. Eftir þann tíma var soðinu safnað í pott, bragðbætt með hvítvíni, krafti og salti og pipar eftir smekk. Soðið niður og þykkt með sósuþykki ef þarf. Rosalega vel heppnað. Mér skilst að stuðst hafi verið við uppskrift af heimasíðu nóatúns - www.noatun.is.
Með þessu var mangó - avócadó salat. Mjög gott - passaði vel með matnum. Tveir mangóávextir, tvö avócadó skorinn í bita, blandað saman með myntu, skarlottulauk, salti, pipar og skvettu af olíu.
Dögg vinkona mín var að minna mig á að "Ekki gleyma fersku engifer og rifnum lime berki í mango-avocado salatið" - því hefur hérmeð verið komið áleiðs í uppskriftina.
Einnig var ljúfengur kartöfluréttur með þessu. Kartöflur voru soðnar í potti, flysjaðar og skornar í bita. Við þetta var blandað skarlottulauk, graslauk, estragoni, skvettu af jómfrúarolíu, hvítvínsediki og salti og pipar.
Frábær hádeigisverður í góðum félagsskap. Takk fyrir okkur.
Matur og drykkur | Breytt 13.3.2007 kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.3.2007 | 17:08
Frí í Austurríki
2.3.2007 | 00:19
Pasta með gorganzola, spergilkáli, kúrbít og ferskum kryddjurtum
Við hjónin fengum boð á frumsýningu Killer Joe í Borgarleikhúsinu - frábær sýning, mæli hiklaust með henni. Konan mín dobblaði tvær skólasystur sínar úr sálfræðináminu til að koma að passa börnin á meðan við fórum í leikhúsið og bað mig um að elda eitthvað frambærilegt fyrir þær. Það var sjálfsagt.
Pasta með gorganzola, spergilkáli, kúrbít og ferskum kryddjurtum
Þessi réttur er ákaflega einfaldur (ég er alltaf að segja þetta - en það er satt, þessi er einfaldari en flestir aðrir réttir). Fyrst er kúrbítur skorinn í sneiðar og þurrgrillaður á grillpönnu með salti og pipar. Svo gorgansólaostur ca 120 gr og ca. 40 gr af hreinum rjómaosti sett í skál og leyft að ná herbergishita. 1/2 haus af spergilkáli er soðinn í söltuðu vatni í 7 mínútur - vatninu hellt frá og sett saman við ostinn ásamt kúrbítnum. Við þetta fer osturinn að bráðna. 1/2 búnt af smátt saxaðri steinselju, 30 lauf af smátt skorinni ferskri basil er bætt útí. Saltað með Maldon salti og einnig nýmöluðum pipar. Gott pasta - eins og fabirizza di rustichella (afsaka stafsetningu - pokinn í ruslinu) er soðið skv. leiðbeiningum í söltuðu vatni og þegar tilbúið er vatninu hellt frá og heitu pastanu sett saman við ostinn, grænmetið og kryddið. Heitt pastað mun bræða allan ostinn þannig að hann mun hjúpa pastað.
Með þessu var salat sem var ekki flókið. Fékk salatþeyti í afmælisgjöf núna á laugardaginn frá mömmu og pabba sem var vígt núna í kvöld. 1/2 poki af laufum (klettasalat, baby leaf og lollo rosso) þeytt vindunni þar til þurrt og sett í skál. Svo var dressing útbúinn - 2 msk af mjög góðri Toscana jómfrúarolíu er sett í litla skál, og við þetta blandað safa út hálfri sítrónu, smá salti og pipar og svo hellt yfir laufinn og þau þakin vel með dressingunni. Laufunum raðað á disk og niðursneiddum mozzarella osti dreift yfir, niðursneiddum jarðaberjum, muldum valhnetum og rifnum basillaufum. Tilbúið.
Með þessu var borið fram foccacia (ítalskt flatbrauð) með olívum og rauðlauk. Brauðið var búið til á svipaðan hátt og Valdísarbrauðið í fyrri færslu. 2 tsk af geri er vakið í 300 ml af volgu vatni. 3 tsk af sykri er bætt saman við og gerið er vakið í sykurvatninu. 500-600 gr af hveiti er sett í skál, 2 tsk af salti og svo 2 msk af góðri olíu. Gerinu er svo bætt hægt og bítandi á meðan hveitinu er hrært. Þegar deigið er orðið fallegt og mjúkt er það látið hefast í 30 mínútur. Deigið er svo flatt út á plötu og svo er fingrunum stungið í þykkt deigið þannig að brunnar verði til. Góðri jómfrúarolíu er svo hellt yfir og dreift jafnt yfir deigið. Saltað og piprað. Ólívum dreift yfir helminginn og niðursneiddum rauðlauk yfir hinn. Leyft að hefast í ca 15-20 mínútur í viðbót, svo að það rísi aðeins. Þannig drekkur flatbrauðið olíuna í sig og gefur því þetta frábæra bragð. Svo er það bakað í 180 gráðu heitum ofni í ca 15 mínútur.
Borið fram með ágætu rauðvíni - Katnook Flounder's rock - Coonawarra/cab. sauv frá 2002 - afar gott vín með matnum. Ég sá ekki betur en að dömurnar voru ánægðar með matinn - alltént var sonur minn himinlifandi og úðaði í sig pastanu með bestu lyst.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.2.2007 | 23:33
Svikinn héri með sætkartöflumús
Ég hef ekki oft gert svikinn héra í minni búskapartíð. Mamma var ansi lúnkinn við þetta og þessi réttur var alltaf frekar vinsæll á mínu heimili. Fljótlega eftir að ég fór að búa var ég farinn að stunda mötuneyti Landspítalans og þar var stundum á boðstólum réttur sem hafði sama nafn, nema hvað ólíkt matnum hennar mömmu var maður illa svikinn af svikna héranum á landspítalanum...þvílíkur a%&# viðbjóður. Landspítala svikni hérinn er ekki heldur bara mjög vondur heldur líka mjög ljótur matur. En nóg um það.
Svikinn héri með sætkartöflumús
Svikinn héri er þægilegur matur að elda. Þetta er fljótlegt að undirbúa matinn og yfirleitt heppnast hann vel. Í þetta sinn setti ég 500 gr af nautahakki, 1 smátt skorinn rauðlauk, 5 hvítlauksrif, smá vegis tómatpaste, 1/2 búnt af steinselju, 50 gr af brauðmylsnu, 2 egg, salt, pipar, 1 tsk oregano og 1/4 bolli ristaðar furuhnetur. Þetta er svo hnoðað saman og sett í eldfast mót og mótað eins og brauðhleif. Ég setti 2 þykkar sneiðar af Camenbert osti í miðjuna og lokaði svo með kjötdeiginu. Svo er beikon lagt ofan á og bakað í 180 gráðu heitum ofni 25-mín (kjarnhiti 71 gráða).
Með þessu var gerð sætkartöflumús. Ég átti fimm frekar litlar sætar kartöflur og nokkrar venjulegar kartöflur. Þetta var soðið á hefðbundinn hátt, flysjað og svo maukað með 1 msk af rjómaosti og smávegis salti og pipar. Skreytt með steinselju.
Þetta var borið fram með fersku salati; klettasalat, konfekttómatar, smá paprika, fetaostur og nokkrar radísur. Alveg ágætt.
Ég ætlaði að gera sósu með matnum. Byrjaði ágætlega með lauk, hvítlauk, niðursneiddum sveppum, vatni, krafti - aðeins of mikið af krafti. Ætlaði svo eitthvað að djassa þetta upp með Dijon sinnepi en setti allt of mikið - eftir þetta var þetta tapað stríð - endurlífgun hófst kl 18:56 og var öllu tjaldað til, sultum, rjómaosti, pipar, steinselju, gráðaosti - ekkert gekk - sósan var úrskurðuð látin rétt áður en maturinn var borin á borð - 19:23.
Maturinn bragðist vel - allt nema sósan náttúrulega. Dóttir mín var sérstaklega ánægð að fá beikon með matnum. Beikon hefur aldrei skemmt neitt.
25.2.2007 | 11:01
Kjúklinga jógúrt tandori með haldi kartöflum og nanbrauði
Tengdaforeldrar komu í mat. Tengdapabbi minn segist aldrei kunna að meta kjúkling - þetta hefur leitt til þess að ég legg sérstakan metnað í að elda fyrir hann kjúklingamáltíðir. Hann borðar allt á sig gat og ég er farinn að halda að hann segi þetta bara til að storka mér og fá spes kjúklingamáltíðir.
Tandori jógúrt kjúklingur með haldi kartöflum og nan
Jæja- það var ákveðið að reyna fyrir sig með indverska matargerð. Fór að versla á miðvikudaginn og keypti kjúkling og nokkra kjúklingaleggi. Á miðvikudagskvöldið var ég í einhverju stuði og lagði kjúklinginn í marineringu. Setti 2 dósir af hreinni jógúrt, 2 msk af tandori masala (leiðrétti það sem stóð áðan), 1/2 msk af papriku dufti, 1 tsk af kóríander dufti og 1 tsk af garam masala og hrærði vel saman. Lagði kjúklingin í þessa jógúrt marineringu í 2 daga. Kjúklingurinn var svo færður í eldfast mót, saltaður aðeins, og svo bakaður við 180 gráðu hita í 30 mínútur eða þar til kjarnhiti varð 82 gráður, þá var kveikt á grillinu og yfirborðið ristað. Þegar kjúklingurinn var tilbúinn var ferskum kóríander dreift yfir og borið á borð.
Eina sem ég hefði eftirá viljað breyta væri að sykra aðeins kjúklingamarineringuna þar sem hrein jógúrt er aðeins súr á bragðið - Marineringin var samt mjög góð en ég er sannfærður að kjúklingurinn hefði verið betri ef ég hefði sykrað þetta aðeins.
Með þessu var kartöfluréttur sem flestum líkar mjög vel - kartöflur eru soðnar, þær teknar úr vatninu og flysjaðar. Svo er olía sett í pott og 1 msk af sinnepsfræum sömuleiðis. Sinnepsfræin eru svo poppuð og svo er 1 1/2 tsk Haldi (túrmerik) bætt saman við. Hrært aðeins og svo er kartöflunum bætt saman við og þær þaktar með túrmerik/sinnepsfræa blöndunni. Skreytt með ferskri steinselju.
Einnig var nanbrauð í boði. Ég hef áður birt uppskrift af nanbrauði og "copy-paste"yfir í þessa færslu. 500-600 ml af hveiti er sett í skál, smávegis af fínu salti og svo 2 msk af olíu. 3 tsk sykri er leyst upp í volgri mjólk og svo er gerið sett saman við og vakið í mjólkinni. Mjólkurgerblöndunni er svo blandað saman við hveitið og hrært saman. Um 200 ml af Ab mjólk (eða jógúrt, eða fiftyfifty mjólk og Ab mjólk) hrært saman við og smávegis mjólk. Deigið er hnoðað þar til það verður mjúkt og meðfærilegt og hætt að klístrast við hendurnar á manni. Látið hefast í 30 mínútur (lengur ef það er hægt). Smábitar eru svo klippnir af deiginu og flattir út með fingurnum í lófastórar þunnar kökur sem eru pennslaðar með smávegisolíu og saltaðar með Maldon salti og svo þurrsteiktar á heitri grillpönnu.
Jafnframt var þessi matur borin fram með fersku salati með klettasalati, tómötum og jarðaberjum. Með þessu var drukkið Tomassi rauðvín. Vel heppnuð máltið.
Matur og drykkur | Breytt 27.2.2007 kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)