Gatan okkar er að taka á sig endanlega mynd. Síðasta föstudag voru verðandi nágrannar í skoðunarferð um húsin. Svona forsýning áður en þau verða síðan afhent viku síðar. Það verður gaman að skipta á nágrönnum - fá venjulegt fólk í staðinn fyrir smiðina sem hafa verið nágrannar okkar síðasta hálfa árið. Ekki það að þessir smiðir hafi verið neitt hræðilegir - þvert á móti - það er bara það hversu snemma þeir byrja á morgnana að vinna. Hvern dreymir um að vakna við loftpressu klukkan tuttugu mínútur í sjö á morgnana. Svíar taka daginn snemma - ef maður leyfir sér að alhæfa ... og þeir fara snemma í háttinn. Allavega fer allt í ró eftir klukkan níu á kvöldin. Það eru bara við Íslendingarnir sem erum með læti fram eftir nóttu.
Ég hef ekki verið duglegur að elda súpur - hvað þá að blogga um þær. Ég hef einungis nokkrum sinnum bloggað um súpur. Seinast í fyrrasumar þegar breskur kollegi minn kom í heimsókn og var með erindi á lyflæknaþinginu á Selfossi. Þá gerði ég þessa fiskisúpu innblásna frá Tælandi. Einhvern tíma á frumbernsku þessarar bloggsíðu sagði ég frá þessari grænmetissúpu sem Snædís, konan mín, gerði eitt sinn. Þegar Vilhjálmur varð tveggja ára vorum við hjónin með afmælisveislu handa honum og þá buðum við uppá þessa einföldu tómatsúpu. Annars hef ég oft sagt að mér finnist súpa aldrei spennandi matur. Þetta er að breytast - maður er náttúrulega alltaf að þroskast eitthvað ... vonandi! Það vill nú vera þannig með smekk manns, bæði á mat og vínum, að þetta þróast með tímanum. Maður lærir að njóta einhvers sem áður vakti aldrei neina löngum. Rick Stein segir það að minnsta kosti í einum af sjónvarpsþáttum sínum, Food heros - another helping, eitthvað á þessa leið "Our taste evolves, we are continually moving forward". Kannski er eitthvað til í þessu hjá kallinum.
Ég man ekki í hvaða matreiðslubók ég sá þetta - en uppskrift eins og þessi finnst áreiðanlega í mörgum bókum. Þetta er það sem maður kallar "klassíker". Þetta var þó í fyrsta sinn sem ég bý svona súpu til. Það má segja að þetta sé svona ekta súpa fyrir haustið - sem er að vissu leiti rétt, svona súpur og gróft brauð eru vissulega fánaberar fyrir þá árstíð. Það sem fékk mig til að gera þetta á miðju sumri var það að það kom ný uppskera þá helgi sem ég var í búðinni. Nýuppteknar kartöflur og ný uppskera af vorlauk (reyndar frá Póllandi, sem er nú bara 4 klukkutíma í ferjunni Ystad hérna á Skáni).
Seiðandi vorlauks og kartöflusúpa með grófu brauði og girnilegum áleggsbakka
Eitt kíló af kartöflum og tveir vorlaukar, einn hvítur laukur, 5 hvítlauksrif var skorið niður í smáa bita. 30 gr af smjöri, smá skvetta af olíu var hituð í potti. Fyrst steikti ég laukinn þar til hann var glær, saltaði og pipraði, þá var kartöflunum og vorlauknum bætt saman við og steikt áfram 10-15 mínútur. Þá var einum lítra af kjúklingasoði (sem ég gerði sjálfur nokkrum vikum áður) hellt saman við og smáræði af vatni, saltað og piprað aftur og þessu leyft að krauma í klukkustund. Saltað og piprað eftir smekk. Þá var ráðist á súpuna með töfrasprota og hún maukuð þannig að hún varð alveg laus við alla bita. 50-100 ml af matreiðslurjóma var sett út í fyrir litinn og áferðina.
Brauðið var einfalt - eins og allt brauð sem ég geri. 2 hlutar hvítt hveiti, 1 hlutur haframjöl, 1 grahamsmjöl var sett í skál. Tvær og hálf teskeið af geri er vakið í 300 ml af vatni með smá sírópi út í. Þá er 3-4 msk af olíu og smá salti bætt við hveitið og þegar gerið hefur vaknað er því blandað saman við hveitið. Hnoðað í nokkrar mínútur og látið hefast í eina (eða fleiri) klukkustund. Þá er loftið hnoðað úr deiginu og mótað í brauðhleif. Penslað með eggjablöndu, saltað og þvínæst bakað í kannski 20-30 mínútur.
Með matnum bárum við einnig fram bakka með skinku, salami og nokkrum tegundum af ostum.
Með matnum drukkum við Gallo Chardonnay úr búkollu. Þetta er ágætisbúkolla - köld og góð úr ísskápnum. Það er alltaf gaman að drekka kalt hvítvín. Sjá hvernig það myndast dögg á glasinu. Þetta er ávaxtaríkt vín, perur, eins og flest Chardonnay er þetta dáldið smjörkennt vín, örlítið áfengisbragð þegar hlýnar í glasinu. Passaði prýðisvel með súpunni.
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt 24.9.2011 kl. 14:04 | Facebook
Athugasemdir
Glæsileg og eflaust góð BLAÐlauks og jarðeplasúpa. Af myndum (og magni) að dæma er þó lítið um vorlauk ...
Karl Jóhann (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 13:59
Saell - Rett hja ther. Thetta er bladlaukur. Eitthvad ruglast tharna. Thakka tharfa abendingu.
Ragnar
Ragnar Freyr Ingvarsson, 18.8.2009 kl. 14:43
Þakka þér fyrir þessa uppskrift að súpu. Ég er samt hissa yfir því hvað þessi súpa er einföld. Í rauninni er hún bara kartöflur, laukur, hvítlaukur, salt og pipar.
Jafn flinkur kokkur og þú ert, þá veistu að þetta er bara grunnur að gómsætri súpu. Þú veist eins vel að það má svo auðveldlega betrumbæta slíkan grunn. T.d með smá sýru; balsam-ediki til að skerpa upp kartöflurnar, ferskt basil til að leggja til smá bassa, eða bara smá teskeið með karríblöndu, svona rétt á meðan maður smakkar til herlegheitin.
En ef þú vilt færarst upp um level í súpugerð, sérstaklega grænmetissúpur, þá legg ég til að þú kynnir þér galdra þrýstisuðupottsins. Þeir eru magnaðir!
Takk fyrir mig.
Jóhann (IP-tala skráð) 18.8.2009 kl. 23:37
Saell Johann.
Thessi supa er einfolt. Ekki haegt ad skreyta thad neitt med gervifjodrum - en hun var bragdgod, djupt graenmetisbragd og matarmikil. Audvitad hefdi matt breyta og baeta en thegar ad lokum var komid var supan bara svo djofull god. Thess ber ad geta ad eg var med heimagert kjuklingasod - gert ur tveimur heilum kjuklingum, vatni, lauk, selleri, hvitlauk, gulrotum, fersku larvidarlaufum, piparkornum og fullt af salti - sodid i marga klukkutima. Bara sodid eitt saman var a morkunum ad vera sjalfstaed "broth" supa.
Eg vil sannarlega faerast upp um level - og eg hef verd ad horfa a thessa thrystipotta - Their eru bara ansi dyrir her a Skani 1700 kall eda svo. Thetta er a listanum hja mer "what to get". I sjonvarpsthattum Heston Blumenthal (eiganda The fat duck) "In search of the perfect..." notar hann mjog oft svona pott.
Aetli abending thin verdi til thess ad eg lati slag standa.
Ragnar
Ragnar Freyr Ingvarsson, 19.8.2009 kl. 06:34
Aðeins of langt síðan þú varst með bjórdósakjúklingauppskriftin til að skrifa þar svo ég læt flakka hér tengil á frásögn af viðlíka eldamennsku þar sem Red Bull kemur næstum við sögu...
http://hnakkus.blogspot.com/2009/08/osmileg-mefer-liki.html#comments
Vinsamlegast hafið ekki drykkjarföng um hönd þegar síga fer á neðri hluta vefsíðunnar!
Sverrir (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 18:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.