Ljúffengur lax með steiktu kúrbítsspaghetti, heitri sesamkryddolíu og soðnum hrognum

margirdiskarÉg hef sett margar fiskuppskriftir undanfarið á bloggið mitt enda hef ég verið að leggja mig fram við það að elda meiri fisk. Ég hef bæði verið að skoða góðar uppskriftir á netinu og einnig verið að blaða í uppskriftarbók frá Rick Stein sem heitir Seafood, ég hef einhvern tíma áður minnst á hana á netinu. Hann rekur nokkra fiskveitingastaði í Englandi ásamt því að reka kokkaskóla og búa til vinsæla sjónvarpsþætti. Bæði bækurnar hans og þættirnir eru afar góðir. Ég hef verið að skoða það að fara á námskeið hjá honum - með pundið eins og það er - ætli maður bíði ekki aðeins. En ég væri sannarlega til! 

Þessi uppskrift er innblásinn af sjónvarpsþætti sem ég sá um daginn þar sem breskur kvenkokkur fór til fólks í heimahúsi og fékk þau til að galdra fram ljúffenga rétti á einfaldan máta. Mín uppskrift er alls ekkert ólík ein af þeim réttum. Ég bætti einnig við hrognum sem ég bara sauð í potti og skreytti með kryddolíunni. Nýjasti Gestgjafinn datt inn um lúguna hjá mér í dag. Þeman er fiskuppskriftir og reyndar kjúklingur. Lýst afar vel á þetta eintak. Fiskur er frábært hráefni, og fátt meira verðlaunandi en að gera fiskrétt þar sem fólk smjattar af ánægju á eftir matinn.

fiskurápönnuFékk ansi skemmtilega athugasemd á síðuna mína um daginn. Þar kvartaði einn lesenda bloggsins að ég notaði alltof hástemmd lýsingarorð á síðunni minni - allt væri stórkostlegt og ljúffengt og þar fram eftir götunum. Ég fór nokkrar færslur aftur í tímann og tók þá eftir því að þetta var alveg rétt! Önnur eða þriðja hver færsla var svona hástemmd. Ég fór því að velta þessu aðeins fyrir mér. Þeir sem mig þekkja persónulega vita að ég hef aldrei lært að temja mér hógværð að neinu ráði - því miður. Og stundum er það bara þannig að mér finnst maturinn minn svo góður! Ég get bara lítið að því gert. Það hefur síðan smitað sér inn í skrifin á netinu. Það hjálpar náttúrulega ekki að maður er kannski búinn með tvö rauðvínsglös, saddur og glaður og kannski orðin pínu meyr! 

Ljúffengur lax með steiktu kúrbítsspaghetti, heitri sesamkryddolíu og soðnum hrognum

fiskurádiskiKryddolían var gerð úr 120 ml af jómfrúarolíu, 2 msk af sesamolíu, 3 msk af soya sósu, 2 msk sykri, 1 msk muskovadósykur, 2 msk sesamfræ, hálfur smátt skorinn chilli, 4 cm af smátt skornum engifer, 1 smátt skorinn skarlottulaukur, 3 msk saxaður koríander, 3 smáttskorinn hvítlauksrif og safi úr einni sítrónu. Öllu var þessu skellt saman í pott og olían hituð upp hitaður upp. Látin krauma í 20 mínútur á meðan maturinn var eldaður.

1250 gr af laxi var skorinn í 6 jafnar sneiðar. Steikt upp úr 20 gr af smjöri, 1 msk af jómfrúarolíu, 1 tsk af smátt söxuðum chilli, 2 smátt skornum hvítlauksgeirum og 2 stjörnuanísum. Fyrst var olían og smjörinu leyft að bráðna - svo var chillinum bætt útí ásamt hvítlauknum og stjörnuanísnum. Þetta var steikt í smá stund þannig að fitan tæki í sig bragðið af grænmetinu og kryddinu. Þá var laxinn settur á pönnuna og steiktur, fyrst á roðhliðinni í um 6 mínútur þar til að hann fór að breyta um lit á hliðinum og svo um 4-6 mínútur á hinni hliðinni þar til laxinn var tilbúinn.

Kúrbíturinn var skorinn niður í þykk strimla með svona mandólín sem ég fékk lánað frá foreldrum mínum. Það er svona bretti með hárbeittum hnífum. Þannig var hægt að skera kúrbítinn niður í mjóar lengjur. Olía var hituð í potti, 3 smátt skornir hvítlauksgeirar og 2 cm af smátt skornu engifer var sett útí og steikt um stund. Þá var kúrbítnum bætt saman við og steikt þar til hann fór að mýkjast. Þá var einu glasi af Montalto hvítvíni frá Sikiley úr kassa bætt úti og soðið niður. Hrognin voru soðin í söltuðu vatni í um 20 mínútur. Tekin úr, þerruð og skorinn í helminga. Saltað og piprað og smávegis af olíunni sáldrað yfir. Skreytt með fersku kóríander.

Með matnum fengum við okkur Penfolds Rawson's Retreat Semillion Chardonnay frá því 2006. Virkilega bragðgott hvítvín. Talsverður ávöxtur við en einnig rjómakennt og gott vín. Passaði vel með laxinum.

matur og kertaljós


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

það er sko í góðu lagi að vera hástemmdur þegar talað er um mat. Takk fyrir allar þessar girnilegu uppskriftir.

Hólmdís Hjartardóttir, 9.4.2008 kl. 20:16

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Dísúss, þetta verður á morgun á mínum bæ .... Takk!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.4.2008 kl. 21:32

3 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

vá fæ bara vatn í munninn yfir þessu........og ég sem borða ekki einu sinni lax hehe

Ásta Björk Hermannsdóttir, 11.4.2008 kl. 11:58

4 identicon

Frábær síða hjá þér,maður nýtur þess að lesa þessar girnilegu uppskriftir, þótt maður nenni ekki að fara eftir þeim.

Gunnlaug (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 12:25

5 identicon

Frábær síða og takk fyrir okkur. Lýsingarnar ekkert of hástemmdar........við erum að tala um góðan mat halló. Nú erum við hjónin pínulítið að koma of vel undan vetri......bjórinn og gott rauðvín vill setjast á mann. Komin bæði í ræktina en okkur finnst vannta góðar uppskriftir af mat sem er góður og maður má borða mikið af (á við að vera ekkert að telja ofaní sig, það er ekkert smá leiðinlegt) og þá erum ekki endilega að tala bara um síðuna þína. Og hvað með vínin. Hvað á maður að gera þar? Okkur langar alls ekki að drekka vodka í sodavatni eða slíkt. Þurrt hvívín er fínt. En hvað með gin og tonic? Heyrðum að það er ekki eins "grennandi" og maður mundi halda. Ætla annars í kræklingafjöru með gott hvívín um helgina, bara upp í Hvalfjörð.......læt þig vita hvernig tekst. Prufað það?

pétur og berglind (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband