Ljómandi lambaribeye með spínatkartöflumús og kryddolíu

ValdísEins og kom fram í fyrri færslu var ég á vakt þessa helgi. Kollegi minn, Guðný Stella, gerði mér greiða og kom aðeins fyrr á kvöldvaktina þannig að ég gat komist heim og verið með fjölskyldunni. Ég kom heim um áttaleytið í kvöld, en þá var Villi litli sofnaður, en Valdís dóttir mín var í fullu fjöri og hjálpaði mér í eldhúsinu...hún á eftir að verða frábær kokkur.

Þetta var máltíð sem var svona samsuða af gömlum hugmyndum við nýjar. Ég er búinn að vera að skoða Prima Vera bókina sem kom út fyrir nokkrum árum síðan og þar rak ég augun í hugmynd um kryddolíu með mörðu majoram og jómfrúarolíu sem bar nafnið san moriglio - hljómar vel. Ég átti því miður ekki majoram, heldur einungis salvíu, rósmarín og steinselju - allt jurtir sem passa vel með lambakjöti. Valdís var áhugasöm við að hjálpa og var iðin við að merja jurtirnar í mortélinu - hún var geysilega stolt sérstaklega vegna þess hversu góð henni fannst kryddolían.

Ég hef einhvern tíma áður sett inn uppskrift af svona spínatkartöflumús. Þetta er ákaflega einföld uppskrift. Ekkert ólíkt öllum öðrum kartöflumúsuppskriftum nema hvað þeytt með smá spínati - við það fær músin fallega lit og bragðið verður afar ljúffengt.

Ljómandi gott lambaribeye með spínatkartöflumús og kryddolíu

KryddolíaSnædís keypti lambaribeye í dag, rúmlega 400 gr. Kjötið var borið smávegis af olíu, saltað og piprað og steikt upp úr 10 gr af smjöri og ca. 1 msk af jómfrúarolíu á hverri hlið þar til það var orðið fallega brúnað og karmelliserað að utan. Þá var það sett í eldfast mót og sett í forhitaðan ofn 180 gráðu heitan, og bakað í 10 mínútur eða þar til kjarnhiti var um 65 gráður.

Kartöflumúsin var líka fremur einföld. 6 stórar kartöflur voru soðnar eins og lög gera ráð fyrir. Svo flysjaðar og síðan stappaðar. Á meðan þær voru ennþá rjúkandi heitar var 100 gr af spínati bætt útí, 10 gr af smjöri, 1 msk rjómaostur, salt og pipar, smávegis sletta af mjólk og svo var þessu hrært vandlega saman. Spínatið mýkist fljótt og brotnar niður og músin fær á sig mildan grænan lit - mjög mildan.

Eins og sagði áður var dóttir mín á fullu. Mortélið var fyllt með laufum af 1 grein af rósmaríni, handfylli af salvíu og svo handfylli af steinselju. Maldon salti stráð yfir, 1 hvítlauksrifi, safa úr einu lime og svo ca 40 ml af jómfrúarolíu. Svo var þetta marið saman þannig að úr varð fíntgerð olía með smáum mörðum kryddjurtum. Ilmurinn var dásamlegur.

Borið fram með góðu rauðvíni yfir kertaljósi. Ekkert ljúfara!lambaribeye

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Je minn þvílíkur unaður að lesa og sjá myndir er komin með matarást af þessari síðu verð tíður gestur hér svo mikið er víst takk fyrir að vera svona snildarkokkur og leyfa manni að njóta líka

Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 00:03

2 Smámynd: SigrúnSveitó

jömmí, ég sit hérna og slefa yfir lyklaborðið!

SigrúnSveitó, 17.2.2008 kl. 13:41

3 identicon

Takk fyrir góðar og girnilegar uppskiftir. Hef prufað nokkra rétti og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum. Ein spurning; hvaða verslun uppá Höfða selur villibráð á svona fínu verði.? Kv. Berglind og Pétur.

pétur og berglind (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 14:00

4 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Í kringum hátíðirnar fékk ég eitthvað að villibráð í Krónunni. Einnig hefur Nóatún haft ágætis úrval sem og Hagkaup. Ég keypti andabringur í Krónunni sem voru mjög góðar og ódýrar - svona miðað við!

Ragnar Freyr Ingvarsson, 18.2.2008 kl. 18:23

5 identicon

úúú þetta er ekkert smá girnilegt! þetta ætla ég að hafa í matinn í boðinu hjá mér á miðvikudagskvöldið, stel þessu kinnroðalaust!

 myndi ekki ganga fínt að grilla kjötið á kolum líka? smyrja þá kannski bæði með olíu og sméri?

vælan (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 09:31

6 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl vælan

Það væri vandræðalaust að grilla lambaribeye. Það þarf ekki mikla fitu utan á þar sem ribeye er talsvert feitur biti. En aldrei slæmt að pensla það aðeins.

Gangi þér vel, Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 21.4.2008 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband