Asískt grill í brakandi sól

eldað á svölunumÞvílíkt og annað eins. Maður er ekki vanur því að fá svona veðursæld. Ég hafði nefnt í fyrri bloggum að ég hafi verið að vinna á slysa og bráðadeild í seinustu viku. Á meðan var sól og sæla - það má segja að ég hafi sofið frá mér sólina. Helgin var meiriháttar en hver hefði trúað því að þetta myndi halda áfram. Þetta er eins og að horfa landsleik og krossa fingurnar og vona að strákarnir okkar (stelpurnar vinna nú yfirleitt) muni klára dæmið. Svo ætlar þetta bara að hanga. Að minnsta kosti í dag, spáin er eitthvað drungalegri fyrir morgundaginn en eftir svona daga segir maður bara að það sé gott fyrir gróðurinn.

Það er búið að vera mikil sókn í heimasíðuna í dag. Fyllist bara stolti yfir því hve margir skuli vilja lesa bloggið mitt. Maður er ekki einu sinni að skrifa um konur með brókarsótt eða lausgirta svæfingarlækna ... bara um mat og sósur og svoleiðis. Ég þakka bara fyrir áhugann og vona að ég haldi áfram að vekja áhuga fólks um matseld og lífsgæðin sem góðum mat fylgir. Fátt er betra.

Ég eldaði úti á svölum í kvöld. Ég elska að elda úti á svölum. Ég er með frekar stórt grill sem hefur auka gashellu og svo gott standborð - butcher's table - sem ég fékk einhvern tíma úr IKEA. Það hefur sannarlega nýst mér vel á svölunum. Þegar maður horfir á nýlega matreiðsluþætti er mikið um það að eldað sé utan dyra. Það er allavega stemmingin í mörgum evrópskum þáttum sem ég hef horft uppá. Það má því segja að ég sé undir áhrifum frá þeim þáttum - raðaði öllu í kringum mig. Stillti öllu upp á diska og platta og var mjög kalkúleraður í eldamennskunni.

eldað á svölunum 2Asískt grill í brakandi sól.

Þetta var samvinnuverkefni okkar hjóna - allavega hvað aðalréttinn snerti. Ég var í dagvinnu í dag - byrja aftur á vöktum á morgun og ég bað Snædísi um að kaupa lax og gera eitthvað gott við hann. Hún gerði það svo sannarlega. Hún keypti 800 gr af sjóöldum lax og lagði í skál. Hún hellti 20 kl af Teriyaki sósu, 40 ml af soya sósu yfir. Raspaði svo 4 hvítlauksrif og 2 cm af þykkri engiferrót yfir fiskinn og lét standa í ísskáp í þrjár klukkustundir. Þetta var svo grillað á álbakka þar til tilbúið - ætli það hafi ekki tekið um 15 mínútur í heildina - sennilega tæki það styttri tíma ef ég hefði fattað að ég slökkti óvart undir laxinum - þannig að hann var eldaður á indirect hita.

Með matnum var "roast pepper salad" - eitthvað sem mér datt í hug þegar ég horfði inn í ísskápinn. Það var til babyleaf salat, nokkrir kirsuberjatómatar. Svo sá ég rauða papriku og nokkra sveppi. Papríkuna skar ég í nokkra bita og þræddi upp á tein en sveppina setti ég á teininn í heilu lagi. Þetta var svo penslað með smávegis jómfrúarolíu og saltað og piprað og grillað þar til svarbrúnar renndur voru farnar að myndast á grænmetinu. Þegar grænmetið var eldað var því blandað saman við laufin og tómatana og svo var smá fetaostur mulinn yfir.

Það voru til afgangshrísgrjón síðan kvöldið áður, þannig að ég bjó til hrísgrjónasalat. Það var afar einfalt. 1/3 kúrbítur, 6-7 sveppir, og hálf paprika voru skorin í bita og steikt á pönnu, þegar grænmetið var að verða tilbúið var 2 msk af soya sósu hellt út á og grænmetið látið krauma í sósunni. Þegar soya sósan var soðin niður var grænmetið tekið frá. Því næst voru tvö egg brotin á pönnuna og hrærð saman þannig að úr varð eggjahræra. Eggjahræran var svo tekin til hliðar. Þá voru hrísgrjónin sett á heita pönnuna og steikt í smá stund, grænmetinu bætt saman við, svo eggjunum og steikt aðeins áfram. Smá soya sósu bætt saman við til að grjónin tækju öll lit og svo eldað á svölunum 3saltað og piprað.

Ég bjó einnig til smá grillbrauð - þau eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. 2 tsk af geri er vakið í 250 ml af volgu vatni. 2 msk af sykri er bætt saman við svo að gerið taki við sér. 250 gr af símeljumjöli og 250 gr af hveiti eru sett í skál ásamt smá salti og 2 msk af jómfrúarolíu. Hrært saman. Þegar gerið er vaknað (farið að freyða) er því hellt rólega saman við hveitið. Hnoðað saman í hrærivél þar til mjúkt og fallegt. Látið hefast í 1-2 klst. Þegar deigið hefur hefast er það lamið niður aftur, nokkrir litlir hleifar útbúnir, penslaðir með smá jómfrúarolíu, saltað og piprað og svo grillað þar til tilbúið.

bon appetit og skál.

Skálað á svölunum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kvitt fyrir innlitið.  Ég er með síðuna þína skráða undir eina af mínum uppáhaldssíðum.  Elska mat og mataruppskriftir og finnst frábært að lesa skrifin þín um eldamennskuna og fá stemminguna og gleðina sem greinilega fylgir beint í æð (ásamt góðum uppskriftum - obviously)  

Soffía (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 12:53

2 identicon

smjatt smjatt...

Ekki bregðast skrifin frekar en fyrri daginn...

Kíki daglega hingað inn ... veit ekki hvort lyklaborðið þolir svona mikið slef...

Hvenær ætlaru svo að bjóða okkur í slysógrill?? heheheh (+makar)

kv. Linda (BÞE )

Linda Björk (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 16:07

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þakka þér fyrir öll fallegu orðin þín, en ég fylkist alltaf með þér uppskriftirnar eru ómsandi er búinn að nota mikið af þeim Takk  Takk.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.7.2007 kl. 10:23

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Símeljumjöl? Hvað er það? Hef ekki heyrt um það áður svo ég muni. Annars takk fyrir allar færslurnar, hef notast við nokkrar.

Edda Agnarsdóttir, 5.7.2007 kl. 01:31

5 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Ég held að símeljumjöl sé þýðing á semolina hveiti. Getur það ekki passað?

Með kveðju, Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 5.7.2007 kl. 12:56

6 identicon

Heyrðu, þú myndir slá rækilega í gegn ef þú gerðir lista yfir hráefnin eins og í matreiðslubókum. Þetta er allt saman mjög girnilegt og flott hjá þér

Danni (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 15:07

7 identicon

Les bloggið þitt reglulega, eiginlega bara á hverjum degi :) Frábært að fá hugmyndir hérna þegar maður nennir ekki að fletta öllum matreiðslubókunum. Mér finnst fyndið að það skuli vera fleira fólk eins og ég, sem hugsar um mat allan daginn og hlakkar til að prófa nýja rétti :)

Þú minntist á það einhvers staðar, að einhver hefði bent þér á að þú notaðir allt of mikið af smjöri, rjóma og feitum ostum. Mig langar bara að benda fólki á, að Ragnar er að elda fyrir sig og sína fjölskyldu, og það kemur engum við hvað hann notar í matinn. Líki fólki ekki innihaldið, þá eldar það ekki réttinn. Svo einfalt er það!

Þorgerður (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband