Hunangsdijon marineraðar kjúklingabringur

Grillmatur er í eiginlega í eðli sínu einfaldur matur, en undirbúningurinn er misflókinn. Ég kom seint heim í dag til að undirbúa kvöldmat, bæði vegna þess að við hjónin vorum að fá okkur nýjan bíl og einnig fór ég í seinna fallinu í skvass.

Kom heim um að verða sjö og þá var allt í fullu gangi í eldhúsinu. Mágkona mína og svila og sonur þeirra komu í mat - jæja - svilkona mín eiginlega eldaði matin með aðstoð Snædísar konunnar minnar. Við höfðum ákveðið að hafa kjúklingabringur í matinn vegna þess að við keyptum of mikið fyrir gærkvöldið og áttum afgang.

Við höfum lengi verið að gera þennan rétt. Við gerðum hann fyrst fyrir nokkrum árum síðan uppi í sumarbústað þegar við höfðum fyrir klúðurs sakir gleymt talsvert af hráefni og vorum að reyna að redda málunum. Þetta heppnaðist vel og síðan þá hefur þessi matur verið í talsverðu uppáhaldi - ekki bara vegna bragðsins heldur einnig svona nostalgíu element síðan við vorum þessa helgi í bústaðnum.

Hungansdijon marineraðar kjúklingabringur

Átta kjúklingabringur eru lagðar í marineringu sem er gerð úr hálfri krukku af dijon sinnepi og 4 msk af góðu hunangi. Látið liggja í þessu um stund. Svo eru bringurnar grillaðar á heitu grilli þar til kjarnhiti er orðin 82 gráður. Saltaðar og pipraðar á meðan þær eru á grillinu.

Með kjúklingum var köld sýrðrjómasósa sem var gerð úr 1 1/2 dós af 10% sýrðum rjóma, 1/2 búnti af niðurskornu basil, 2 msk góðu hlynsírópi, 1/2 tsk af oregano, 1/2 niðurskornum chillipipar og hálf smátt niðurskorin agúrka. Saltað og piprað eftir smekk.

Sætar kartöflur, kartöflur og eggaldin var skorið niður í skífur, pennslaðar með hvítlauksolíu, saltaðar og pipraður og grillað þar til stökkar.

Með þessu var einnig ferskt salat; græn lauf, niðurskorin papríka, niðurskorin akúrka, mozzarellaostur, olía og balsamicedik.

Borið fram með góðu hvítvíni. Gott kvöld - heitt á svölunum - rétt svona til að syrgja tapið í Evróvision.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Harðarson

Og var veiðijeppi firrir valinu?

Geir Harðarson, 13.5.2007 kl. 00:13

2 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Tekur þú skinnið af kjúklingnum áður en þú leggur hann í marineringu?

Vilborg Valgarðsdóttir, 13.5.2007 kl. 21:20

3 identicon

Þú átt leyndan aðdánda á Spáni. Ég meir að segja gekk svo langt að setja slóðina þína inn á mitt blogg Blikka Eins og þú er ég ástríðukokkur, en þar sem ég er grænmetisæta elda ég aðeins öðruvísi. Maðurinn minn er Spánverji og aldeilis frábær kokkur. Kemur frá víngerðar fjölskyldu og státar af diplóma í vínsmökkun.

Takk fyrir frábært blogg.

spanjola (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband