31.12.2009 | 16:13
Þakkarblogg: Gleðilegt ár og farsælt komandi ár!
Ég vil nota tækifærið og þakka lesendum bloggsíðunnar minnar samferðina núna á árinu sem er að líða. Þetta hefur verið sérstaklega ánægjulegt matarár þó að það hafi verið erfitt á öðrum sviðum heima á Fróni
Það hefur verið einstaklega ánægjulegt hversu margar heimsóknir síðan mín hefur fengið núna yfir hátíðirnar bæði hérna á miðjunni og moggablogginu. Ég vona að síðan sé öðrum innblástur - hún er mér það svo sannarlega! Fátt myndi þó gleðja mig meira en ef fleiri kæmu með athugasemdir, hugmyndir, gagnrýni, uppskriftir eða bara hvatningarorð.
Vona að næsta ár verði ánægjulegt í eldhúsinu! Brettum upp ermarnar þar - sem og öðrum sviðum!
Áfram Ísland! Gleðilegt ár og farsælt komandi ár! Skál!
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Sæll og blessaður
Gleðilegt nýtt ár. Þakka samfylgdina á blogginu.
Við erum ekkert dugleg að kvitta.
Guð veri með þér
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.1.2010 kl. 00:38
Sæll og Gleðilegt ár.
Ég hef lesið síðuna þína reglulega og skrifað einu sinni í gestabókina. Einnig prófaði ég kjúklinginn með hvítlauknum sem heppnaðist mjög vel. Ég vona að hangikjötið í nýja reykofninum hafi heppnst hjá þér. Móðir mín sem var meistarakokkur átti bókina eftir Helgu Sigurðardóttur. Þar kennir margra grasa.
Bestu kveðjur
Ingibjörg
Ingibjörg (IP-tala skráð) 4.1.2010 kl. 22:52
Gleðilegt ár! Hef alltaf mikið gagn og gaman af að lesa síðuna þína!
Rannveig Guðmundsdóttir, 8.1.2010 kl. 14:06
Sæll Ragnar,
Gleðilegt ár. Þú hefur oft verið nefndur á nafn þegar ég tala um mat eða þarf að segja fólki hvaðan þessi frábæra uppskrift sem ég hef boðið upp á er :) Ég segi alltaf að "ég eigi vin sem bloggar um mat, en hann veit reyndar ekki að hann er vinur minn" :) Hef prófað svo margar uppskriftir hjá þér að ég get ekki einu sinni talið þær upp. Allar eru þær gómsætar :) Síðast gerði ég risa hörpuskelina með smjörinu fræga og serrano skinkunni. Ég gerði hana fyrir 20 manns á gamlárskvöld og jeminn eini hvað hún tókst vel til og fólk ætlaði hreinleiga að missa sig :)
Takk fyrir frábæra síðu :)
Guðrún (IP-tala skráð) 9.1.2010 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.