8.2.2009 | 20:35
Ljúffengur hlynsírópsgljáður lax með steiktum kartöflum, polkabeðum með ríkotta osti og góðu salati
Mamma, pabbi og bróðir minn voru hérna yfir hátíðarnar og það var frábært að hafa þau hérna hjá okkur þó þröngt væri í koti. Mamma er búinn að vera allt síðasta haust í Toronto í Canada að sinna doktorsnámi sínu í kennslufræðum. Í farteskinu yfir hafið hafði hún með sér nokkur blöð LCOB food and wine - sem er svona Gestgjafi þeirra Kanadamanna. Fallegt blað. Í þessu mikla blaði sem er nánast eins og auglýsingableðill rakst ég á girnilega laxauppskrift sem var nokkuð á þá veg sem ég gerði í kvöld. Maður verður nú að geta heimilda. Að sjálfsögðu með breytingum - þannig að ég geti nú tekið heiðurinn af þessu?!
Í uppskriftinni var að finna hvítar beður. Eitthvað sem ég sá ekki í búðinni hér. Gott úrval af rauðbeðum og svo eitthvað sem heitir Polkabeður. Ég sá þessar polkabeður í búðinni á mánudagskvöldið - og það verður nú að segjast að ég hafði enga hugmynd um hvað þetta var þegar ég skellti þessu með öðrum vörum í körfuna.
Við eldum oft lax - hvað fiska varðar þá er lax í miklu uppáhaldi. Dóttir mín er líka sérstaklega hrifinn af laxi. Ekki er verra hvað hann er hollur. Einstaka sinnum hefur tengdafaðir minn gaukað að okkur laxi - en þá helst reyktum sem hann hefur veitt sjálfur. Hann lætur reykja fyrir sig í Útey - sem ég held að sé á Laugarvatni - og ekki vantar hvað hann er bragðgóður. Hann stendur fyrir sínu - helst einn á báti, kannski á ristuðu brauði, með smátt söxuðum rauðlauk og blautri eggjahræru og kannski smá sýrðum rjóma. Hann er það kraftmikill að hann er erfiður að nota í mat, eins og pastarétt- það er kannski þannig með allan taðreyktan fisk.
Laxinn sem við elduðum þetta kvöld var keyptur ferskur í nærlægri matvöruverslun. Hann ku hafa verið upprunninn í Noregi - eldisfiskur. Mig grunar að þetta hafi verið lax alin í keri frekar en sjóalinn þar sem hann var frekar feitur. Ef maður kemst ekki í villtan lax, þá vel ég sjóalinn - sá fiskur hefur þurft að hafa fyrir því að berjast við sjávarföllin og verður fyrir vikið vöðvamikill og mun minna feitur en sá sem hefur fengið að vaxa í straumlausu keri. En allt er hey í harðindum. Laxinn var bleikur og fallegur. Lyktaði meira að segja vel - ég var þó litinn hornauga þegar ég bað um að fá að lykta af flakinu. Mamma hefði verið stolt af mér hefði hún séð til mín - en hún er fræg fyrir þessa hegðun - og hefur oft fengið háð að launum.
Hlynsírópsgljáður lax með steiktum kartöflum, polkabeðum með ríkotta osti og góðu salati og ljúffengu hvítvíni
Stórt beinhreinsað laxaflak var sett í eldfast mót og smurt með eins og tveimur matskeiðum af 100 prósent hreinu kanadísku hlynsírópi. Fatið var svo sett inn í 200 gráðu heitan ofn og bakaður í 15-20 mínútur þar til eldaður í geng. Þá var gróft skorinn flatlaufssteinselja stráð yfir.
Ég flysjaði nokkrar kartöflur og þessar umtöluðu polkabeður - sem voru hvítar en með svona bleikum röndum - undarlegt. Þær voru skornar fremur smátt niður og svo steiktar á pönnu þar til mjúkar í geng. Saltað og piprað vel.
Laxinn var lagður á diskinn, pipraður rækilega, ásamt kartöflunum og beðunum, og smávegis af Ricottaosti lagt með - svona til að þjóna sem sósa með matnum.
Vorum með fallegt salat með matnum, klettasalat, smátt skornar gular paprikur, vínber, radísur í sneiðum og smávegis basillauf - bara svona til skrauts.
Með matnum fengum við okkur Fleur de Cap Chardonnay sem er hvítvín frá Suður Afríku. Gott vín, lyktin minnir á sætan ávöxt og kannski smá vanillu. Þetta er milt og ávaxtaríkt Chardonnay - eikað með góðu eftirbragði. Passaði vel með matnum. Chardonnay er hvítvín sem auðvelt er að hugnast. Chardonnay er svona Cab Sauv hvítvínanna. Bragðgóð og ljúf vín - hvað annað vill maður!
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:03 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.