25.10.2008 | 21:01
Gómsætur kreppumatur; Nokkrir déskoti góðir hvunndagsréttir svona...á þessum síðustu og verstu tímum!
Þetta er búið að vera ein lengsta pásan á vefnum mínum. Ætli maður geti ekki kennt fjármálaástandinu um það líka, maður er búinn að vera sveittur að lesa gengisvísitölur og greiningar á þessu öllu. Það má eiginlega kenna því um allt sem útaf hefur farið. Og fari það ástand til fjandans...fari þetta í kjallarann á helvíti...helst á hæðina fyrir neðan. Það er búið að vera skelfilegt að fylgjast með þessu héðan að utan. Þessi krísa hefur áhrif á marga. Nær flesta sem maður þekkir. Það hefur ekki verið auðvelt að flytjast utan á þessum óróatímum...en kannski auðveldara en að vera á Íslandi þennan tíma. Við erum stanslaust á netinu að fylgjast með. Ísland og Íslendingar eiga hug okkar allan!
Þessi vefur hefur aldrei um dægurmál - nema það sem kraumar á hlóðnum en núna er manni svo fullkomlega nóg boðið! Núna verður sjálfsögðu að hafa hendur í hári þeirra sem hafa komið okkur á þessa braut. Bankamönnunum sem offjárfestu sig (okkur) fram á hengibrún - með snöru um hálsinn og reipið rígbundið, yfirvaldin/eftirlitinu sem lítið gerði til að hafa hemil á stjórnlausri græðgi nýríkra íslendinga og svo kannski okkur sjálfum - sem kannski hvöttu þessa andskota áfram - útrásarvíkingarnir að gera strandhögg á ókunnum slóðum. Við vorum stolt...í smá stund...svo öfunduðum við þá yfir velgengi þeirra...svo kannski glottandi yfir fallinu, smá þórðargleði í bland, en svo núna grátandi af því við höngum í sömu snöru. Hvað er ég að babbla - þetta er matarblogg. Nóg um þetta í bili - um fjármál má lesa á öðrum þráðum.
Við þessar aðstæður verður að herða sultarólina. Það þýðir lítið annað. Það verður að endurskipuleggja lífið...alveg niður í smáatriði. Mat er erfitt að kalla smáatriði og á þessum síðustu og verstu tímum eru það okkar helstu sóknarfæri í að spara - að minnsta kosti svona hvunndags. Við sem erum hérna úti og höfum verið að nota íslenskar krónur höfum þurft að endurskoða okkar neysluvenjur ansi dramatískt. Núna er pása á fois gras og dýru rauðvíni - þó gott sé og líka auðvitað eftirsjá. Núna þarf að hverfa aftur af grunnatriðum (basics) og gera það sem þarf. Og kannski þarf það ekkert að vera svo slæmt.
Gómsætur kreppumatur; Nokkrir déskoti góðir hvunndagsréttir svona...á þessum síðustu og verstu tímum!
Þið verðið að þola mér það að þessar máltíðir eru eldaðar í Svíþjóð. Ég held samt að það ætti að vera hægt að elda þetta hráefni á ódýran hátt heima...amk er þetta í ódýrari kantinum. Það vorum engar myndir teknar að þessu sinni. En þetta verður bara að vera texti.
Hakkbollur með brúnni sósu, sultu og rauðkáli
Þetta er auðvitað klassískur réttur. Engin leið til þess að eigna sér þennan rétt. Ýmislegt má þó breyta og bæta...það er alltaf pláss til þess. Hérna í Svíþjóð er geysilegt úrval af kjötbollum. Þeir elska kjötbollurnar sínar. Hér tekur það því varla að búa þetta til...en það er samt alltaf aðeins betra.
Nautahakk er sett í skál, smátt skorinn laukur, smátt skorinn hvítlaukur, blandaðar kryddjurtir (þar sem þetta er kreppublogg þá verð ég núna að segja þurrkaðar - hér eru ferskar kryddjurtir fremur ódýrar - sérstaklega flatlaufssteinselja 9 kr/kg) eins og steinselgja, oregano, timian. Muldar tvíbökur eða brauðmylsna er svo sett ofan í, nóg af salti og pipar og svo 1-2 egg til þess að binda þetta allt saman. Hnoðað vel og mótað í litla bolta. Steikt á pönnu þar til vel brúnt og svo má hella smá vatni á pönnuna og leyfa að krauma. Bollunarnar eru svo veiddar upp og lagðar í eldfast mót og inn í ofn. Vatni er bætt í soðið af bollunum, smá meiri krafti, soðið niður, kannski afgangur af matreiðslurjóma, smá sulta, saltað og piprað og kannski smávegis af því kryddi sem var notað í bollurnar og soðið niður. Þykkt með maisenamjöli (eða smjörbollu. Borið fram með sultu (hérna Lingon sylt), rauðkáli úr krukku (eða heimagert sem er einfalt mál en nokkuð tímafrekt). Mér finnst líka alltaf gott að bera fram steiktum rauðlauk, nokkur spæld egg. Núna er bara eiginlega kominn veisla - og það í miðri viku!
Þorskur með púrrulauksrjómasósu og hrísgrjónum
Við vorum nýlega hjá vinum okkar í Danmörku og þau leystu okkur út með þessum frábæra þorski. Mikið hvað við vorum þakklát...ekki bara fyrir að koma í heimsókn heldur að fá þennan frábæra íslenska fisk (fiskurinn hér í búðunum er hreinlega ekki upp á marga fiska!)
Fyrst steikti ég tvo smátt púrrulauka, einn venjulegan lauk í sneiðum og smátt skorinn hvítlauk í smá olíu. Þegar þetta var orðið mjúkt var þetta lagt til hliðar í skál á meðan fiskurinn var eldaður. Þorskurinn var skorin í bita og saltaður og pipraður og svo velt upp úr hveiti. Steikt á pönnu þar til hann fór að taka lit og þá var honum snúið. Eftir 2-3 mínútur var lauknum svo bætt á pönnuna og svo hálfum pela af matreiðslurjóma, salatað og piprað og leyft að sjóða í nokkrar mínútur þar til fiskurinn var eldaður í gegn.
Ofnbakaður fiskur með sýrðum rjóma og rauðlauk
Þessi er líka eins einföld og hugsast getur. Ekkert svo ólík þessari að ofan en samt...þessi er í ofni. Hvítur fiskur - þorskur í mínu tilfelli - er saltaður og pipraður og settur í eldfast mót. Ferskum sítrónusafa er dreift yfir og svo einni dós af 10% sýrðum rjóma. Þá er 1 rauðlaukur skorinn í næfurþunnar sneiðar og steiktur þar til hann er mjúkur. Þá er 1 msk af hunangi sett saman við laukinn og honum velt upp út því á pönnunni. Lauknum er svo dreift yfir fiskinn og þetta er svo bakað í ofni í 20 mínútur við 200 gráður (eða þar til fiskurinn er eldaður). Borinn fram með hrísgrjónum og einföldu salati.
Kjúklingabringur með sveppasósu og hvítlaukssteiktum gulrótum
Hér í Svíþjóð er kjúklingur það ódýrasta sem maður kaupir. Meira segja góðu kjúklingarnir eru ódýrir. Það er ein leið á Fróni til þess að fá ódýrar kjúklingabringur og það er að kaupa heila kjúklinga - ferska - og verka þá heima, sem er ekkert mál að gera. Svo má geyma leggina, upplærin í frábæran pottrétt, vængina á grillið og svo beinin í soð. Alltaf að græða. Ef maður nennir þessu ekki þá er hægt að fá fremur ódýrar frosnar bringur heima. Hvað um það. Þessar bringur voru keyptar frystar og leyft að þiðna í ísskáp. Þá voru þær penslaðar með olíu, saltaðar og pipraðar og steiktar að utan. Því næst sett í eldfast mót og bakaðar við 180 gráður þar til kjarnhiti verður 82 gráður.
Á meðan er sósan undirbúinn, smátt skorinn laukur og hvítlaukur er steiktur í olíu á pönnu og þá er sveppum í sneiðum bætt á pönnuna og steiktir til að þeir taka gullinn lit. Þá er skvetta af hvítvíni (auðvitað úr belju) sett á pönnuna, vatn, kjúklingakraftur, 2 msk af tómatpúre, smá vegis af matreiðslurjóma, saltað og piprað og leyft að sjóða niður. Þykkja má sósuna með smávegis af maísmjöli ef hún er ekki orðin nógu og þykk.
Þá er það meðlætið. Gulrætur kosta 3 kr/kg á haustin hérna í Svíþjóð - næstum gefins. Gulræturnar eru flysjaðar og skornar í munnbitastórabita. Þeim er hent ofan í sjóðandi vatn í nokkrar mínutur og svo teknar úr vatninu og skellt á pönnu með hvítlauksolíu. Saltað og piprað og steikt þar til mjúkt. Gulræturnar sjúga í sig olíuna og verða alveg frábærar.
Makkarónur með osti
Þetta er nú eiginlega sáluhjálpandi matur eins og hann gerist bestur. Hann er samt djöfull óhollur. Þetta er ekki matur fyrir þá sem eru í megrun. Þetta er matur fyrir þá sem hjóla mikið - við hjólum allt þar sem við eigum ekki bíl. Þannig að maður leyfir sér svona rugl...og svona á þessum tímum þá róar ostur og smjör sálarangist.
Fjórir eða fimm bollar af makkarónum er soðnar skv. leiðbeiningum í miklu söltuðu vatni. Á meðan þetta sýður er 2-3 msk af smjöri, salt og pipar, 3 bollar af mjólk, 2 saxaðir mozzarella ostar (ég notaði þá alódýrustu - frá euroshopper og kostuðu 9 kr stykkið) og svo fullt af venjulegum osti; cheddar - kannski fjórir bollar, Svo er ágætt að setja smá múskat - svona framan af hnífsoddi saman í skál og hræra þetta vel saman. Þegar makkarónurnar eru tilbúnar þá er vatninu hellt af og þeim blandað saman við ostasósuna og sett í eldfastmót, smá vegis af parmesan sáldrað yfir. Þetta er svo bakað í 180 gráðu heitum ofni í 45 mínútur. Þetta er svo borið fram með baguette og einhverju léttu salati
Grísakótilettur með brie og einföldu hrísgrjónasalati
Grísakjöt er ódýrt í Svíþjóð alveg eins og á fróni, þetta er eiginlega helgarmatur, þetta var svo gott. Fyrst er kjötið kryddað með rósmarín, timian, smá salti og pipar. Svo er sneiðunum velt upp hveiti, svo hrærðu eggi og síðast brauðmylsnu. Þetta er steikt í smá stund í olíu á heitri pönnu þar til brauðhjúpurinn er orðinn gullinn. Þá eru sneiðarnar settar í eldfastmót, fremur þykkum sneiðum brie osti raðað ofan á og þetta er svo sett í 180 gráðu heitan ofn í 30 mínútur.
Með matnum var svo einfalt hrísgrjónasalat. Afgangur af soðnum jasmínhrísgrjónum frá kvöldinu áður var hitað á pönnu, þar sem rétt áður hafði verið steiktur skarlotulaukur og hvítlaukur báðir smátt skornir. Hrísgrjónin voru svo steikt upp úr þessu og svo var smávegis af grænum baunum bætt ofan í og steikt í smá stund. Einnig vorum við með einfalt salat með matnum.
Léttvín á þessu síðustu og verstu tímum. Það þýðir ekki að gráta ofan í vatnsglas!
Við höfum nú leyft okkur að fá okkur að fá okkur léttvínstár af og til...og stundum aðeins oftar. Við höfum sleppt því að drekka út gleri og keypt bara beljur hérna í System bolaget - sem er ÁTVR þeirra Svía. Það er ágætt úrval í þessum búðum en það verður að segjast að ÁTVR stendur sig mikið betur hvað úrval snertir.
Við höfum prófað nokkrar tegundir af beljum - bæði hvítum og rauðum. Af hvítu þá höfum við prófað Lindemans Chardonnay, sem við auðvitað þekktum af fróni, sem var ávaxtaríkt og gott, ekkert betra en að eiga kalt vín í kælinum. Cato Negro rauðvín var líka alveg ágætt, berjaríkt og létt rauðvín. Svo höfum við drukkið Penfolds Rawsons retreat Shiraz, sem kom ansi mikið á óvart, dumbrautt og bragðgott með fíneríseftirbragði og bláma á vörum. Svo í kvöld vorum við með Lindemans Shiraz Cabernet blöndu - létt og gott, með berjum og smá sýru og ágætu eftirbragði.
Það er ekkert mál að skera niður. Maður þarf ekkert að þjást svo mikið. Aðalmálið er að umkringja sig með fólki sem maður kann að meta og njóta tímans saman. Ætli þetta kenni okkur það ekki!
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt 26.10.2008 kl. 09:01 | Facebook
Athugasemdir
Takk fyrir þetta Ragnar.
Já,það er ekki gott ástandið hér,heima á fróni
En við verðum að trúa því að öll él birtir upp um síðir
Kveðja til þín og fjsk þinnar.....
Guðrún aðdáandi matarbloggs þíns
Guðrún (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 21:48
Ætli maður flytji ekki bara til Svíþjóðar á endanum með 4 krílin sín. Burt frá þessu ástandi. Mágur er læknir í UPPSALA. Fylgist með blogginu þínu. Bkv. Hj.fr. á Íslalndi.
Elín Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 23:29
Góðar kveðjur til ykkar úr Reykholtsdalnum. Ætlaði einmitt að fara að skrifa þér og kanna hvort þú værir nokkuð hættur að blogga? Fínt að fá kreppuuppskriftir Hafið það sem allra best.
Ásgerður
Ásgerður Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 09:27
Sæll vinur!
Gaman að sjá þig aftur hér! Varðandi kjötbollurnar, þá mæli ég með að setja mysing eða brúnost í sósuna, gefur svona auka touch! Og súrar gúrkur eru jú ómissandi með, þessar frá ORA eru bara fínar!
Kær kveðja frá Örnu og staffinu hér á BMT Hringbraut
Arna Einarsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 11:12
Smá ábending: kryddblandan rósmarín og fennelfræ er rosalega góð á ofnsteikt svín, hef ekki prófað það á pönnusteik en getur örugglega verið fínt þar líka. Það er einhver galdur sem verður þegar rósmarínið blandast anískeimnum af fennelinu. Bölvað, nú verð ég að fara að kaupa rósmarín þegar þetta rifjast upp...
Anna
Anna Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 12:16
Við setjum eina dós af túnfiski saman við makkarónur og ost, það er algjör snilld :)
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 26.10.2008 kl. 12:56
Takk fyrir ábendingarnar.
Ég er alveg sammála þér Anna að fennel/rósmarín hreinlega elskar svínakjöt. Ég hef sett þetta á svínalund - sem er líka hræbilleg hérna í Svíþjóð. 50 kr/kg.
Ragnar
Ragnar Freyr Ingvarsson, 26.10.2008 kl. 13:23
Sæll
Nú fer að líða að jólum og maður er að detta í gírinn. Varstu með eitthverjar góðar pate-uppskriftir?
Kv. Hilmar
Hilmar (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 13:26
Sæll Ragnar....það er mér mikill heiður að senda þér eitt stk "Meistarinn og áhugamaðurinn"....ef þú lætur mér í té Adressu :) sendu á julli@julli.is
Júlíus Garðar Júlíusson, 12.11.2008 kl. 21:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.