Chillihlaup Þorbjargar hjúkku á St. Jósefs

Ég var að vinna á St. Jósefsspítala frá nóvember byrjun fram til áramóta. Þetta var hluti af framhaldsnámi mínu í lyflækningum á Landspítalanum. Það var ánægjulegt að breyta um umhverfi og koma í annað og léttara andrúmsloft eins og oft ríkir á minni stofnunum. Það er alveg frábært starfsfólk sem vinnur á þessum stað og ég held að þeir sjúklingar sem leggist inn á spítalann finni það að þarna er gott að safna kröftum og jafna sig á veikindum.

Eins og víða annars staðar finna áhugamenn um mat og matseld annað fólk sem hefur sama áhugamál. Þorbjörg hjúkrunarfræðingur er ekki bara góð hjúkka heldur er hún líka frábær í sultugerð - hún kynnti mér fyrir þessu ljúfenga hlaupi - gaf mér tvær krukkur - annars vegar hreint chillihlaup og svo sólberja- og chillihlaup. Bæði ofboðslega góð.

Ég hef verið að nota þetta chillihlaup bæði með villibráð og núna í gær með kjúkling með rjómaosti - ljúffengt.

Chillihlaup Þorbjargar

Þrjár rauðar papríkur eru kjarnhreinsaðar og 15 rauðir Blue Dragon hot chilli piprar (sem lagðir hafa verið í bleyti í sjóðandi vatn í nokkrar mínútur (fiskaðir svo upp úr vatninu)) eru maukaðir í matvinnsluvél. Svo er maukið sett í pott með 1/2 bolla borðediki og 5 1/2 bolla af sykri og hitað af suðu og soðið í 10 mínútur. Svo er 5 tsk sultuhleypi bætt saman við og soðið í mínútu og hrært á meðan. Sett í hreinar krukkur og lokað og kælt. Ef notaður er ferskur chilli - er hann kjarnhreinsaður eins og papríkan - í staðinn fyrir 15 þurra eru 10-11 stk af ferskum notaðir í staðinn.

Einnig er gott að bæta tilbúnu sólberja eða rifsberjahlaupi saman við þegar chillihlaupið er tilbúið. Eins mætti sjá fyrir sér ýmsa ferska ávexti fara saman við eins og jarðaber, hindber eða ferskt rifs.

Bon appetit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þú bara opinberar allt leyndarmálið,  Þetta verðu sett í kokkabókina.

Sigfús Sigurþórsson., 23.3.2007 kl. 23:03

2 Smámynd: Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir

Ég hef prófað Marbella kjúklinginn þinn og hann gerði rífandi lukku meðal gesta -- sem voru frá 10 til áttræðs. Þessi uppskrift er líka alveg einstök vegna þess hversu einföld hún er, það þarf enga kunnáttusemi í eldamennsku í rauninni. Ég hef líka prófað falska hérann þinn en ofeldaði hann því miður. Mín afsökun er sú að ég tvöfaldaði uppskriftina, var að nota ofn sem ég þekkti ekki o.s.frv. En ég þarf sennilega að fá mér kjöthitamæli til að lenda ekki í svona. Það er hrikalegt að eyða tíma (og hráefni) og eyðileggja svo allt saman á síðustu metrunum. En síðan þín er frábær, takk!

Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir, 24.3.2007 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband