27.1.2007 | 23:26
Í sumarbústađ foreldranna - pabbi eldar og eldar
Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústađ fyrir rúmum 6 árum síđan. Ég held ađ ţađ sé besta fjárfesting sem ţau hafa gert. Bústađurinn er á Grjóteyrartanga viđ Međalfellsvatn - sem er eiginlega vin rétt hjá höfuđborginni. Hérna höfum viđ fjölskyldan oft variđ frábćrum helgum međ foreldrum mínum ţar sem ţau galdra fram stórkostlega rétti. Hér var á árum áđur alltaf galdrađur fram náttverđur (nattemad) fyrir svefninn - pate og sultur međ grilluđu brauđi - sú hefđ hefur ađ mestu lagst af ţar sem viđ erum farin ađ borđa kvöldmat svo seint á kvöldin.
Núna var fađir minn eins og svo oft áđur viđ grilliđ og útbjó girnilega rétti. Ţau hjónin slá aldrei slöku viđ í matargerđinni.
Í forrétt var hörpuskel sem var vafin parmaskinku og grilluđ á heitu grilli og einnig nokkrir humrar sem voru penslađir međ hvítlauksolíu og grillađir eins og hörpuskelin. Bćđi hörpuskelin og humarinn voru ađ auki smurđir heimagerđu pestói. Forrétturinn var borin fram á beđi af klettasalati og međ grilluđu sveitabrauđi. Algerlega dásamlegt. Pabbi fćr 10 í einkunn fyrir forréttinn.
Ekki gekk ţeim gamla verr međ ađalréttinn. Ekki var feilnóta slegin ţar heldur. Elduđ var nautalaund og lambainnralćri. Nautalundin var söltuđ og pipruđ og síđan pensluđ međ Dijon sinnepi. Fékk ađ liggja viđ herbergishita í sinnepsbađi í rúmar 2 klukkustundir. Á sama tíma var lambiđ undirbúiđ, sem var marinerađ í olíu, sítrónusafa, hvítlauk og lambakryddi frá Jónasi í gallerí Kjöt (mér finnst alltaf fremur slappt ađ kaupa tilbúnar kryddblöndur - en ţessi var ansi góđ). Kjötiđ var ţví nćst grillađ ţar til ţađ var medium rare (kokkar tala um ađ ţađ sé hćgt ađ elda kjöt á ţrjá vegu; rare, medium rare og ruined).
Međ ţessum mat var bođiđ upp á ţrennskonar međlćti. Tvö salöt, annars vegar bláberjasalati sem ég útbjó. Salatiđ var gert á ţá vegu ađ klettasalat var lagt á flatan disk (ég er afar hrifinn af ţví ađ hafa salat á flötum disk - ţá er ţađ bćđi fallegra á ađ horfa og jafnframt dreifist dressingin jafnt á salatiđ en safnast ekki bara á botninn eins og gerist svo oft ţegar salat er boriđ fram í skál). Ofan á klettasalatiđ lagđi ég íslenskan mozzarella ost (sem er oft frekar bragđlaus og krefst eiginlega ţess ađ dressing sé útbúin međ). Hellti smávegis jómfrúarolíu yfir, svo svo rauđvínsediki (ćtlađi ađ nota balsamico - en ţađ var ţví miđur búiđ - but so what) og niđursneiddan graslauk, salt og pipar. Svo skar ég niđur tvo plómutómata og stráđi síđan bláberjum yfir salatiđ.
Hitt salatiđ var gert á ţann hátt ađ ţrír tómatar voru niđurskornir sem og 2 rauđlaukar. Settir í skál og kryddađir međ nokkrum niđurskornum graslauksstönglum, 3 msk af olíu, 1/6 búnt af steinselju, 1 hvítlauksrif, safi af 1/2 sítrónu, 1/2 msk hlynsírópi og salti og pipar.
Kartöflurnar voru forsođnar í 10 mínútir. Skornar í helminga og svo penslađar međ hvítlauksolíu, saltađar og piprađar og svo grillađar ţar til gullinbrúnar. Ferskri steinselju stráđ yfir.
Sósan var gerđ međ ţví ađ steikja einn smátt skorin rauđlauk og ţrjú smátt skorinn hvítlauksrif í potti - laukurinn er nánast látin brúnast í pottinum. Svo voru nokkrum litlum ţunnt sneiddum sveppum bćtt útí og látnir taka ađeins lit međ lauknum. Svo var bćtt útí 1 glasi af rauđvíní, og svo 1 glasi af vatni ásamt kjötkrafti eftir smekk. Saltađ og piprađ rćkilega og sođiđ vel niđur. Svo er bćtt útí rauđvín, rjóma eftir smekk ţar til mađur er ánćgđur međ niđurstöđuna. Gráđaostur eđa annar bragđmikill ostur er oft settur útí ţessa sósu - ca 1 msk af osti - ţó ekki gert núna.
Međ forréttinum var drukkiđ hvítvín - Glen Carlou Chardonnay 2003 frá Suđur Afríku og međ ađalréttnum var drukkiđ rauđvín Benchmark gran burge Shiraz frá Ástalíu frá 2005. Absolutely faboulus.
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt 28.1.2007 kl. 10:31 | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.