9.12.2006 | 19:49
Kósí kvöld og stormviðvörun
Nautasteik með Bernaise
Þetta er eitthvað sem við hjónin eldum þegar við viljum gera það sem Danir kalla að "hugge sig". Það er stormviðvörun í kvöld og ekki veitir af að láta sér líða vel. Þessi réttur hefur verið í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni lengi. Eiginlega getur þessi eldamennska ekki verið mikið einfaldari. Hérna er fyrst og fremst verið að reiða á gott hráefni og svo svindli með Bernaise sósuna.
Bernaise sósa (konan mín gerir þessa - uppskrift frá tengdaföður mínum)
Hollandiase sósa úr pakka (frá Knorr - ekkert Tóró eitthvað segir konan mín - sjálfur myndi ég aldrei elda neitt svona úr pakka og þori varla að viðurkenna opinberlega að við gerum svona - bara resúltatið er svo déskoti gott að ég get lítið gagnrýnt þetta). Eldað eftir leiðbeiningum. Bernaise essens er notaður - ég veit ekki einu sinni hvað er í þessu...og svo til að setja smá persónulegt tötsh þá eru ferskar kryddjurtir klipptar útí, ekki fáfnisgras eins og á að gera heldur yfirleitt steinselja.
Sennilega ætti þessi sósa ekkert að heita Bernaise...hún ætti að heita Snædísósa - alltént á hún lítið skilt við ekta Bernaise sem er í smjör og eggjasósa sem er bragðbætt með fáfnisgrasi, skarlottulauk og kerfil. Einnig er yfirleitt smá víni og edik bætt við - Þetta er eiginlega það sama og er í Hollandaise sósu - nema hvað kryddið er ólíkt og í Hollandaise sósu er sítrónusafi aðalbragðgjafinn.
Nautakjötið (núna innra læri) var fyrst piprað rækilega - og hér greinir kokkum mikið á - hvort að það sé saltað fyrir eða eftir steikingu - sumir segja að það eyðileggi matinn alveg að salta fyrir og næsti maður segi það algerlega nauðsynlegt.
Hvað sem því líður þá er nautakjötið steikt á pönnu í smjöri, nema þegar faðir minn er í mat þá í olíu þar sem hann þolir ekki smjör og finnst alger lágúra að nota svoleiðis í matargerð. Yfirleitt steiki ég samt úr smjöri þegar hann kemur í mat og lýg svo bara að honum - hann fær þá að dást að bragðinu haldandi það að þetta sé bara steikt úr olíu - Smjör er frábært.
Með þessu eru bara soðnar kartöflur og Spergilkál. Meiriháttar.
Og auðvitað er með þessu gott rauðvín - að þessu sinni var drukkið Monte Garbi Ribasso 2002. Excellent.
Flokkur: Matur og drykkur | Breytt 30.9.2011 kl. 08:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.