Létt og ljúffeng grilluð bleikja með góðu salati, hrísgrjónum með grænum baunum og brjóstbirtu - Sumarið er ekki nærri búið!

bleikjaundirbúningurÉg var að klára vaktaviku á Landspítalanum í Fossvogi. Þetta eru síðustu vaktirnar sem ég tek í bili á Landspítalanum. Í byrjun næsta mánaðar fer forum við fjölskyldan til Parísar og munum keyra í gegnum Frakkland á leið okkar til svæða í kringum Toulouse. Ég hef í hyggju að taka krók á leið okkar og fara í gegnum Poiters, La Rochelle og svo Bordeaux áður en að við endum í Albi sem er ekki svo langt frá Toulouse. Þetta svæði ku vera heimagrendur Fois Foie gras - ég get ekki beðið. Tengdaforeldrar mínir bjóða börnum sínum í hús á þessu svæði - ef hús á að kalla, þetta er í raun Villa - þetta verður stórkostlegt.

Það er undarlegt tilfinning að vera að ganga út af spítalanum -stað þar sem maður hefur varið mest af sínum tíma síðustu 6-8 árin - og vera að kveðja hann um stund - mögulega til framtíðar - það er ómögulegt að vita. Það er ekki sjálfsagt mál að maður eigi heimangengt aftur eftir sérnám. En hver

bleikjameðsítrónu

veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég þakka fyrir mig - á Landspítalanum hef ég kynnst frábæru samstarfsfólki og það var heiður að fá að vinna með þeim, ykkur öllum!

En núna er komið að því að fara í frí og undirbúa sig fyrir framhaldsnám í Suður Svíþjóð. Mér skilst að uppskerutími verði þegar ég kem til Skánar sem mun jafnframt vera helsta landbúnaðarhérað Svía - ekki leiðinlegt. Ætli maður haldi ekki áfram að blogga?

Allavega. Nóg af væmni - tölum um mat! Við hjónin höfum verið að sækja á í því að elda fisk upp á síðkastið. Lax og bleikja er eitthvað sem við eldum reglubundið en ég reyni að brydda upp á nýjungum í hvert sinn. Þessi aðferð verður seint kölluð nýjung en ég hef ekki gert bleikju á þennan máta áður. Er það

þá ekki nýjung? Ég nokkrum sinnum nefnd hrakfarasögur mínar með grillið mitt. Þessi réttur var eldaður á grilli sem var alelda - mér tókst að bjarga bæði matnum og hárinu.

avacadóogblárkastalisalatLétt og ljúffeng grilluð bleikja með góðu salati, hrísgrjónum með grænum baunum og brjóstbirtu - Sumarið er ekki nærri búið!

Ég er alltaf að segja það...en þetta er sennilega með einfaldari réttum sem unnt er að snara fram. Myndirnar nánast tala sýnu máli.

Aðalatriðið er að kaupa fersk bleikjuflök - spjallið aðeins við fisksalann - hann á eftir að hjálpa ykkur. Eins og ég hef nefnt hér á netinu að velja frekar sjóalinn fremur en úr kerjum. Sjóalinn bleikja er vöðvameiri og hefur meiri "villt" bragð heldur en sá sem er alin í keri. Ég held að þetta skipti miklu máli.

Falleg bleikjuflök eru lögð á álbakka pensluð með jómfrúarolíu, ferskum sítrónusafi er dreift yfir og svo saltað með Maldon salti og piprað með nýmöluðum pipar. Þá er nokkrum litlum smjörklípum dreift yfir og nokkrum sítrónusneiðum lagt fallega ofan á. Grillað á heitu grilli í nokkrar mínútur þar til að fiskurinn er eldaður í gegn.

Salatið var ljúffengt; klettasalat, riceandpeastómatsneiðar, avócadósneiðar, perusneiðar og nokkrar flísar af bláum kastala. Litlu magni af jómfrúarolíu, salti og pipar er sáldrað yfir salatið.

Einnig var borið fram afar einfaldur hrísgrjónaréttur - jasmínhrísgrjón og svo sætar grænar baunir (í útlöndum myndi maður nota ferskar en ég nota frosnar - þær eru alveg ágætar). Nokkrum niðursneiddum ferskum basillaufum er svo dreift saman við.

Með matnum var drukkið ákaflega gott hvítvín Rosemount Show Reserve Chardonnay - Hunter Valley frá því 2006. Ég greip þetta vín einhvern tíma með mér á leiðina í gegnum fríhöfnina. Var ekki svikinn. Þetta vín ilmar vel, þykkt á lyktina. Bragðið er milt og þetta er ávaxtaríkt vín minnir kannski helst á peru með talsvert smjörlíkri áferð á tungunni. Þetta vín fær góða einkunn á Wine spectator - 89 púnta. Virkilega ljúffengt.

bleikjatilbúinn

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

foie gras (ekki fois - sorrí netikettuleysi, þetta er bara svo ótrúlega algeng vitleysa)

Hljómar annars ansi hreint vel.  Góða skemmtun í Frakklandi

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 2.8.2008 kl. 01:05

2 Smámynd: Hugarfluga

Þessi blogg þín eru unaðsleg ... ekki hætta þú flytjir til Sverige!! Takk fyrir frábærar hugmyndir og góða ferð til Frakklands. Ekki amalegt ferðaplanið hjá ykkur.

Hugarfluga, 2.8.2008 kl. 15:10

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góða Frakklandsferð.......bon appetit

Hólmdís Hjartardóttir, 2.8.2008 kl. 22:21

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Skemmtið ykkur vel í Frakklandi og endilega haltu áfram blogga um þessa flottu rétti þína.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.8.2008 kl. 11:22

5 Smámynd: Hanna

Endilega haltu áfram að blogga Ragnar.  Þetta er uppáhaldssíða margra og frábært að eiga þig að til að fá uppskriftir, hugmyndir og góð ráð, bæði varðandi mat og vín.

Vonandi verður lífið gott við ykkur í útlandinu  - bæði í Fakklandi og Svíþjóð - og takk fyrir allt hingað til :)

Hanna, 5.8.2008 kl. 15:33

6 identicon

Þetta er svo skemmtilegt blogg hjá þér að þú mátt eiginlega ekki hætta. Frábærar uppskriftir hjá þér og gangi ykkur vel í Svíþjóð.

Kv. Ingibjörg

Ingibjörg (IP-tala skráð) 5.8.2008 kl. 15:59

7 identicon

Það er nokkuð víst að þú átt eftir að elda mikið og gott í Svíþjóð, endilega haltu áfram að blogga og leyfa okkur á skerinu að fá innblástur áfram.  Var að koma frá Malmö og Lundi, dásamlegar borgir báðar tvær; lifandi og fallegar - frábærir matsölustaðir og spennandi úrval í matvöruverslununum.  Góða ferð til Frakklands og Svíþjóðar.  Takk fyrir öll frábæru matarbloggin og gangi þér og fjölskyldunni allt í haginn.

Sigrún (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 13:32

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sæll Ragnar. Takk fyrir allar færslur í sumar. Viltu fara inn á mína síðu og bera út eða segja frá áróðrinum þar?

Kv. Edda

Edda Agnarsdóttir, 14.8.2008 kl. 15:23

9 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hæ hæ Ragnar,

langaði bara að þakka þér fyrir samstarfið í gegnum árin á LSH, ætli ég teljist ekki sem nokkuð gömul í hettunni ef ég man eftir þér sem læknanema fyrir einhverjum árum???  Það hefur verið gaman að vinna með þér á hinum ýmsu deildum, og alltaf hafa sjúklingarnir talað vel um þig og hrósað þér í hástert.

Vona að þú og fjölskyldan eigið gott frí í Frakklandi og að flutningurinn til Svíþjóðar gangi vel..... og síðast en ekki síst gangi þér nú yndislega, stórkostlega og unaðslega vel í sérnáminu þínu  

Að sjálfsögðu hættir þú ekki að blogga, við verðum nú allavega að fá uppskrift að sænskum kjötbollum a la Ragnar....

Við sjáumst síðar....

Bestu kveðjur,

Lilja "ofur"hjúkka

Lilja G. Bolladóttir, 15.8.2008 kl. 03:45

10 Smámynd: Aðalheiður Haraldsdóttir

Takk fyrir frábæra síðu og haltu endilega áfram að kalla fram vatn í munninum á okkur þegar þú verður kominn hingað til Svíþjóðar.  Sjálf sakna ég mikið íslenska fisksins og lambsins og bíð spennt eftir að sjá hvað þú átt eftir að töfra fram úr sænsku hráefni.

Hej så länge!

Aðalheiður Haraldsdóttir, 19.8.2008 kl. 15:21

11 identicon

alltaf svo gaman að koma hingað inn og fá góðar uppskriftir :) Langaði líka í leiðinni að benda þér á bestu sósu með bleikju og laxi. Tengdapabbi veiðir mikið  á sumrin og tengdamóðir mín eldar fiskinn, og við börnin njótum afrakstursins, og sósan er ómótstæðileg.

sýrður rjómi, majónes og appelsínuþykkni frá egils uhhm ég veit skrítið en algjört æði.

Guðrún (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband