Dásamlegt Filet Mignion með ekta saus bernaise, afrísku grænmeti og ljúfengu rauðvíni - verður lífið eitthvað betra?

sólarlagið-1Þetta er búið að vera ansi strembinn vika sem skýrir færslufæð. Ungir læknar hafa verið talsvert í fréttum þessa viku vegna kjaramála og nýlegs undirritaðs kjarasamnings við hið opinbera. Sem formaður félags ungra lækna hefur verið talsvert að gera að ræða við kollegana og svo einnig fjölmiðla. Við munum vonandi fella þessa samninga og reyna fyrir okkur aftur á nýjan leik við samningarnefnd ríkisins. Jafnframt hefur verið nóg að gera í vinnunni. Það var því rosalega gott að fara í bústaðinn í fyrrakvöld til að halda upp á afmæli bróður míns sem var að verða 27 ára.

Þetta var veisla fyrir fjölskylduna, fjórar kynslóðir samankomnar. Alltof langt síðan síðast. Ég og pabbi sáum um eldamennskuna. Ég sá um kjötið, sósuna og rauðvínið - pabbi sá um grænmetið. Ég hef áður gert færslu með steik og bernaise - að minnsta kosti - tvisvar áður og með tveimur nautafiletmismunandi útgáfum af bernaisesósunni. Hérna verður sú þriðja og síðasta. Núna gekk allt stórvel - ekki of súr eins og stundum vill verða - perfektó múndó.

Árangrinum í sósugerðinni þakka ég Hadda kokki sem ég kynntist þegar ég var í skíðaferð í Austurríki í byrjun mars á þessu ári. Þar fórum við í annað sinn til Dodda og Þuríar sem reka Skihotel Speiereck í St. Michael í Lungau héraði. Þau eru höfðingjar heim að sækja og þarna fórum við í annað sinn á jafnmörgum árum. Það var mikil gæfa að kokkurinn þeirra hafði hætt skyndilega og Doddi fékk mág sinn - Hadda kokk - til að koma og redda eldhúsinu og hann er almennilegur kokkur. Mér skilst að hann hafi unnið áður á Vox og svo Holtinu. Núna er hann á veitingastaðnum í nýja turninum í Kópavogi. Ég fékk aðeins að sniglast í kringum hann í eldhúsinu og læra af fagmanni. Hann kenndi mér meðal annars hvernig á að gera almennilega bernaisesósu.

nautafilet skoriðDásamlegt Filet Mignion með ekta saus bernaise, afrísku grænmeti og ljúfengu rauðvíni - verður lífið eitthvað betra?

Við vorum með 2 kg af nautafilet, vel fitusprengdu var penslað með góðri jómfrúarolíu, saltað með Maldon salti og piprað með nýmöluðum pipar. Sumir segja að það eigi ekki að pipra steikur fyrir eldun vegna þess að það dragi úr því vökva. Þetta er ekki alveg rétt. Það er mikilvægt að salta kjötið fyrir eldun einmitt til þess að draga vökva að jaðri kjötsins svo að það karmelliserist betur og loki sér. Þetta er svo lagt á heitt grillið og grillað eftir smekk. Þegar kjarnhiti er kominn í ca. 50 gráður þá er það rare-med rare og þá á að leggja það til hliðar og láta það standa undir álpappír eða stykki í 10 mínútur þar til að það jafnar sig aftur eftir steikinguna.

bernaisesósaSaus bernaise - sumum kann að blöskra magn smjörsins - en mér til varnar þá er þessi sósa hugsuð fyrir tíu manns. Þannig að það er um 40 gr af smjöri á mann. Sem er náttúrulega ekkert lítið, en þetta er eitthvað sem maður leyfir sér kannski tvisvar á ári. Fyrst er skarlotulaukur skorinn niður - nóg fyrir 2-3 kúfaðar matskeiðar. 2/3 bollar af  hvítvínsediki og svo 2/3 bollar af hvítvini (hérna er tækifæri til breytinga - ég hef séð uppskriftir með rauðvínsediki og fleiru!). Edikið og vínið er sett í pott og laukurinn einnig, nokkur piparkorn og 2-3 greinar af fersku fáfnisgrasi (estragon). Haddi kokkur benti mér á að nota einnig smávegis nautakraft sem ég og gerði. Þetta er svo soðið niður þannig að eftirstóð ca nóg í 4-6 matskeiðar af vökva. Mikilvægt er að hella niðursoðinu í gegnum sigti þannig að laukurinn, piparinn og fáfnisgrasið verður tekið frá. Á annarri hellu er vatnsbað útbúið. 7 eggjarauður eru settar í skál og skálin sett yfir vatnsbaðið. 1 matskeið af rjóma er sett saman við eggjarauðurnar og smávegis salt. Þá er hafist handa við að hræra með písk. Eggin taka fljótlega í sig loft og þá er byrjað að sáldra smjöri útí - alls 450 gr (skornum í tenginga) - nokkrum teningum í senn. Þegar allt smjörið hefur verið hrært saman við eggin en niðursoðinu bætt varlega saman við - ekki allt í einu - smakkað til því að sósan má ekki verða of súr. Þegar sósan er kominn í jafnvægi er 2 matskeiðum af ferskur smátt skornu fáfnisgrasi hrært saman við.

afrískt grænmetiAfrísk grænmeti er eins einfalt og hugsast getur - eina sem þarf að huga að er að gera þetta í tveimur stigum. Fyrst forsjóða valið grænmeti í 3 mínútur - þannig opnar það sig fyrir næsta skref. Við notuðum spergilkál, blómkál, rauðlauk og gulrætur. Þá er panna hituð með nóg af hvítlauksolíu og grænmetið steikt þar til tilbúið. Saltað og piprað.

Með matnum drukkum við að minnsta kosti tvær tegundir af víni. Annars vegar Wolf Blass Grey Label Cabernet Sauvignion og svo Lindemans Reserve Cabernet Sauvignion. Lindemans vínið var drukkið fyrst. Þetta er ágætis vín, fremur þurrt en fyllir munninn þokkalega. Dálítið stutt eftirbragð en ágætis berjabragð - dökkum ávexti. Wine Spectator gefur þessu víni 88 púnta sem er prýðisgóð einkunn. En Wolf Blass vínið var talsvert betra - munn þéttara í munni með miklum og bragðgóðum ávexti með löngu eftirbragði. Mjög gott. Það stundu allir af ánægju við borðið. Wine spectator gefur þessu víni 90 púnta í einkunn.

sólarlag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eg hef unnid med Hadda, hann er snilldar kokkur !

Elisabet Kokkur (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 16:14

2 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Ég hef lengi verið hrifinn af Torres vínum. Þegar ég var í fyrstu ferð minni til Spánar - þá í góðum vinahópi - fór ég og heimsótti þessar Torres víngerðina sem er í um klukkustundar fjarlægð frá Barcelona. Frábær heimsókn. Torres er stórfyrirtæki og þegar ég heimsótti fyrirtækið gerði það 18 milljón flöskur bara á Spáni. Þau eru núna með útibú amk í Chile þar sem einn af fjölskyldumeðlimum hefur sett upp starfsemi - Miguel Torres að mig minnir.

Það má segja að þar hafi mín ást á vínum hafist - sem hefur svo vafið upp á sig að það nær næstum sjúklegu ástandi. Ég elska rauðvín!!!

Ragnar Freyr Ingvarsson, 20.7.2008 kl. 21:28

3 identicon

sæll Ragnar

mundi að annar hvor ykkar bræðra átti afmæli 19.júlí ;) og mátti því til að kíkja og ath hvort ekki leyndist dásemdis afmælisuppskrift . . . alla vegana, afmæliskveðjur til Kjartans, þú ert þá væntanlega í febrúar (já ég veit, ég er pínu "húkt" á afmælisdögum). Prófaði um daginn hrísgrjónasalat sem ég fann e-s staðar í bankanum hjá þér, voða voða gott, kíki oft til að fá hugmyndir!

bestu kveðjur til "hele familien"

Steinunn gamla pían

ps hvernig er það, ertu ekki á leiðinni til útlanda??

Steinunn (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 01:10

4 identicon

Sæll Ragnar!

Vil þakka þér fyrir frábæra síðu.

Á mínu heimili eru orðin regluleg Ragnar Freys kvöldin og allir eru spenntar þegar svo háttar til.

Mig langar til að spyrja þig hvort það hafi einhvern tíma komið til álita hjá þér að flokka uppskriftirnar þínar? Raða þeim niður?

Það fer oft langur tími í að leita á síðunni þinni að einhverju spennandi sem maður sá fyrir einhverjum tíma.

En endilega keep on going og eigðu þakkir skildar fyrir framtakið.

Guðrún H (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 11:47

5 identicon

Hvað segirðu annars um að gefa þetta bara út í bók?

Kannski bara nú fyrir jólin!

Kv. Guðrún

Guðrún H (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 11:50

6 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hæ doktor Ragnar, sé mig bara tilneydda að setja inn komment hjá þér, fyrst við vorum að ræða það um daginn í vinnunni að það væri langt síðan síðast... ....og af því að lífið er svo dásamlega, stórkostlega dásamlegt

Gaman líka að fá aðeins öðruvísi tilbrigði af bernaise sósu, hef ekki gert hana svona sjálf, en ætla pottþétt að prófa við næsta bernaise-tækifæri.

Og að lokum, djö.... styð ég ykkur unglækna í ykkar kjarabaráttu, þótt þeir eldri séu ekki heldur alveg sáttir, þá eruð þið að fá langversta dílinn út úr þessu og vonandi fellið þið samningana.

Bestu kveðjur,

Lilja G. Bolladóttir, 22.7.2008 kl. 02:21

7 Smámynd: Lilla Sver

Mjög girnilegt hjá þér.  Wolf Blass grey hef ég ekki smakkað en oft smakkað Wolf Blass pressedent selektion allar týpur... en næ mér í það næst.. Hils. Lilla

Lilla Sver, 22.7.2008 kl. 04:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband