Himneskt hvítt hreindýraragú međ penne pasta og heimagerđu hvítlauksbrauđi međ einföldu vínberjasalati

 

Mađur gleymir ţví eiginlega á milli ára hvađ ţađ er dimmt í desember. Sólin lćtur ekki sjá sig fyrr en undir hádegi og hverfur áđur en ađ vinnudegi lýkur. Fyrir marga er myrkriđ ansi ţrúgandi og ţá skiptir máli ađ reyna ađ létta sér lífiđ eitthvađ. Sem betur fer býđur desember upp á heilmikiđ af uppákomum sem geta létt manni lundina. Margir hittast í jólaglögg, en okkur hjónunum var einmitt bođiđ í eina slíka til Arnfríđar og Guđmundar, vina okkar. Ţar var margt um manninn og mikil gleđi. 

 

Dagurinn í gćr var líka ansi eftirminnilegur, en ţá söng jólakórinn okkar á tvennum tónleikum. Síđan í október höfum viđ nokkur saman hist og sungiđ jólalög undir mildri en faglegri stjórn Hildigunnar Einarsdóttir söngdívu. Forsprakki hópsins, Eyrún Baldursdóttir, fékk ţá hugmynd fyrir nokkrum árum síđan, ađ stofna jólakór og ađ sá kór ćtti ađ syngja fyrir sjúklinga Landakotsspítala. Í gćr gerđum viđ ţađ, og gott betur ţví viđ tróđum líka upp á Líknardeild spítalans. Ţetta hefur veriđ sannarlega ánćgjuleg helgi. 

 

Auk ţess ađ hitta vini og ćttingja og syngja og gleđjast ţá má líka létta sér lundina međ ţví ađ njóta ljúffengs matar og drykkjar. Sumar uppskriftir eru hreinlega betur til ţess fallnar en ađrar ađ létta manni lundina í svartasta skammdeginu. Ţessi kemur klárlega til álita sem međferđ viđ vetrarrökkrinu. 

 

Himneskt hvítt hreindýraragú međ penne pasta og einföldu ostahvítlauksbrauđi

 

Ţađ eru margir sem eru svo heppnir ađ eiga hreindýrahakk í frystinum en fyrir ţá sem ekki eiga slíkt má vel nota nautahakk.

 

Hráefnalisti fyrir sex

 

500 g hreindýrahakk

hálfur rauđur laukur

1 sellerístöng

1 gulrót

2 hvítlauksrif

250 ml hvítvín

3 lárviđarlauf

vöndull af ferskum kryddjurtum (rósmarín, timjan, steinselja)

1 stór pakki rjómaostur

150 ml rjómi

3 msk Worcherstershiresósa

250 ml vatn

1 msk villikraftur

Nóg af parmaosti

 

salt og pipar

 

600 g penne pasta

ríkulega saltađ vatn

 

blönduđ salatlauf

1/2 rauđ papríka

1/2 gul papríka

200 g vínber

 

6 brauđsneiđar

Smjör 

hvítlauksduft

Rifinn ostur 

 

 

Eins og allir góđir pottréttir eđa súpur ţá byrjar mađur á sama máta - međ ţrenndinni, mirepoix, sem er laukur, sellerí og gulrót - nema ég bćti alltaf viđ hvítlauk ţar sem ég er forfallinn hvítlauksfíkill.

 

Svo er grćnmetiđ steikt upp úr olíu eđa smjöri ţangađ til ađ ţađ er orđiđ mjúkt og fariđ ađ ilma dásamlega. Saltiđ og pipriđ. Svo er ţađ tekiđ til hliđar.

 

 

Nćst er svo ađ brúna hakkiđ ţar til ađ hefur tekiđ á sig lit. Ţá er grćnmetinu bćtt saman viđ ásamt nokkrum lárviđarlaufum og ţetta steikt saman í nokkrar mínútur.

 

 

Nćst er ađ bćta viđ víninu - suđunni hleypt upp og svo látiđ sjóđa niđur ţangađ til ađ lítiđ sem ekkert er eftir af vökva í kássunni.

 

 

Svo setti ég vatn og kraft og sauđ áfram í 10-15 mínútur. 

 

 

Svo var kássan bragđbćtt međ ţví ađ láta ţennan fallega kryddvönd sjóđa međ nokkra stund. 

 

 

Ţar á eftir setti ég heila öskju af rjómaosti. Ţessi uppskrift er ekkert léttmeti - og til ađ tryggja ađ ég gengi yfir öll velsćmismörk ţá setti ég líka smá rjóma. 

 

 

Svo fékk ragú-iđ ađ krauma í ţrjúkorter eđa svo viđ lágan hita. Smakkađ til međ salti, pipar og Worchestershire sósu.

 

 

Sauđ pasta í nóg af söltuđu vatni. 

 

 

Ţegar pastađ var tilbúiđ var vatninu hellt frá og ragúinu blandađ saman viđ. Raspađi svo heil ósköp af parmaosti viđ pastađ. 

 

 

Fćrđi svo pastađ yfir á disk, og sáldrđi smárćđi af steinselju yfir. 

 

 

Kristján Kristjánsson, leikstjóri og međframleiđandi minn, kom í mat og hann fékk hlutverkiđ ađ útbúa salat sem varđ afar ljúffengt; međ grćnum laufum, gulri papríku, tómötum og vínberjum.

 

 

Međ matnum nutum viđ svo ţessa ljúffenga víns, Sasso Al Poggio, sem er framleitt í Toscana. Framleiđandann hef ég heimsótt og meira ađ segja snćtt hádegisverđ úti á vínökrunum ţar sem ţessar ţrúgur vaxa. Ţetta er oft kallađ Super-Toscana vín - blanda úr Sangiovese ţrúgunni og svo Cabernet og Merlot. Ţetta er "stórt" vín - pakkađ af ilmi og bragđi - ávöxtur, pínu sultađ - smá lakkrískeimur. Dásamlegur sopi.

 

Međ matnum útbjuggum viđ einnig einfalt hvítlauksbrauđ. Smurđum brauđsneiđar međ smjöri, hvítlauksdufti og röspuđum svo Ísbúa óđalsost yfir. 

 

 

Ţessi matur var hreinasta sćlgćti. 

 

Svartnćttiđ í desember er auđsigrađ međ svona veislumat! 

 

-------
 
 
 
Flest hráefnin í ţessari fćrslu fást í verslunum Hagkaupa

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband