Dásamlegur og vel nuddađur lambaframpartur á beđi af nýju íslensku hvítkáli, eplum og lauk!

 

Ég elska haustin! Reyndar er ég ţannig gerđur ađ ég nýt hverrar árstíđar fyrir sig - en haustin eru í sérstöku uppáhaldi, en ţá kemur á markađinn fullt af splunkunýju grćnmeti og svo auđvitađ kjöt af nýslátruđu lambi.

 

Frćndur okkar í Noregi kunna svo sannarlega ađ njóta lambakjöts og hvítkáls, en ţjóđarréttur Norđmanna er einmittt Fĺr i Kĺl - sem er eins einfaldur og hugsast getur. Ţar sjóđa menn jafnan hlut af lambakjöti og hvítkáli međ fullt af heilum svörtum pipar í rúmar tvćr klukkustundir. Galdurinn ku vera ađ ţjappa kjötinu og kálinu á víxl í potti svo ađ hann verđi alveg trođinn upp ađ börmum!

 

Ţó ađ ég hafi ţjóđarrétt Norđmanna bak viđ eyrađ ćtla ég ađ víkja ćrlega af sporinu og sćkja innblástur til Jamie Oliver, Simon Hutchinson og meira ađ segja Marco Pierre White. Ţađ er ţá eins gott ađ rétturinn heppnist vel!

 

Annars erum viđ stödd, eins og svo oft áđur, í Kjósinni í sumarhúsi foreldra minna. Markmiđiđ er ađ ganga til rjúpna á morgun upp í dal. Hann er ansi erfiđur yfirferđar svo ţađ er gott ađ nćra sig vel daginn fyrir gönguferđina.

 

Dásamlegur og vel nuddađur lambaframpartur á beđi af nýju íslensku hvítkáli, eplum og lauk! 


Hráefni fyrir 6

 

1 lambaframpartur

1 hvítkálshaus frá gróđrarstöđ Sigrúnar

3 epli

1 laukur

4 hvítlauksrif

4 ansjósuflök

1 lambateningar

4 greinar rósmarín

handfylli timjan

6 msk jómfrúarolía

salt og pipar

 

Boriđ fram međ rjómalagađri sveppasósu, kartöflum sem voru svo góđar ađ ţćr munu koma í sérstakri fćrslu og svo einföldu, en mjög svo ljúffengu salati.

 

 

Ég keypti ţetta ferska hvítkál í nćrlćgri matvöruverslun. Hvítkál ćtti mađur ađ nota oftar - ég ćtla í ár ađ prófa aftur ađ gera súrkál - sem ég hef lćrt ađ meta á endurteknum ferđum mínum til Austurríkis (panta mér alltaf vćna pylsu međ súrkáli og sterku sinnepi - nammi namm). Skal gera grein fyrir ţví í fćrslu á komandi vikum. 

 

 

Alltént skar ég hvítkálshausinn gróflega, sem og eplin og laukinn og lagđi allt saman í stóra olíuborna ofnskúffu. 

 

 

Svo útbjó ég magnađa kryddolíu. Allt hugsađ til ađ magna upp umami bragđiđ af réttinum. Hafiđ engar áhyggjur af ansjósunum - ţćr bráđna og hverfa og skilja ekkert fiskibragđ eftir. Maukađi flökin saman viđ hvítlauk og tvo lambateninga í nokkrum matskeiđum af jómfrúarolíu.

 

 

Svo var olíunni hellt yfir og nuddađ vandlega inn í kjötiđ.

 

 

 

 

Svo var bara ađ dreifa kryddjurtum yfir og krydda vel međ salti og pipar. Setti álpappír yfir og bakađi í 170 gráđu heitum forhituđum ofni í ţrjár og hálfa klukkustund.

 

 

Sko, ilmurinn var nóg til ađ gera mann veikan í hnjánum. Öll fitan hafđi bráđnađ og kjötiđ var lungamjúkt! Lungamjúkt segi ég. Og bragđiđ kyngimagnađ. Sérstaklega ţar sem ég hafđi tekiđ ţađ út úr ofninum, saltađ ađeins og sett undir grilliđ í nokkrar mínútur til ađ reyna ađ poppa ađeins upp lambafituna.

 

Viđ gerđum rjómalagađa sveppasósu međ matnum. Um uppáhaldssósuna mína hef ég bloggađ margoft! ;) - Hćgt er ađ lesa um ađferđina hérna!

 

Set kartöflurnar inn á bloggiđ í vikunni en ţćr voru klikkađar - međ nýjum íslenskum osti - Svörtum Tind1

 

 

 

Međ matnum drukkum viđ ţetta ljómandi góđa rauđvín sem er frá Rioja á Spáni. En ţar var ég í heimsókn í síđasta mánuđi og tók upp sjónvarpţćtti sem verđa sýndir á Sjónvarpi Símans. Ţetta vín er algert afbragđ. Gert úr 100% tempranillo ţrúgu - víniđ er frá 2011 svo ţađ hefur fengiđ langan tíma á eikartunnu og svo á flösku. Ţetta vín er fallega rúbinrautt í glasi, ilmar af ţroskuđum berjum og sultu. Svipađ á tungu međ ljúffengum eikartónum sem entust lengi.

 

 

 

 

Hvet ykkur öll til ađ prófa ađ elda lambaframpart međ ţessum hćtti. Allir voru sammála um ađ ţađ hafđi heppnast sérstaklega vel í ţetta skiptiđ.

 

 

 

 -------

 

 

 

Flest hráefnin í ţessari fćrslu fást í verslunum Hagkaupa

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband