Ljúffengi kókóskjúklingur Berglindar á GRGS međ chili-mangóraitu og sćtkartöflufrönskum

 

Vinkona mín og matarbloggari međ meiru, Berglind Guđmundsdóttir á Gulur, rauđu, grćnn og salt, gaf nýveriđ út matreiđslubók - bók númer tvö í röđinni. Hina fyrri gaf hún út sjálf, kynnti og dreifđi víđa um land og náđi víđa. Svo víđa ađ hún var líklega metsölubók ţađ áriđ! Og ţađ kemur mér eiginlega ekkert á óvart ađ bókin hafi selst svona vel - nálgun hennar á matargerđ er smitandi. Hún hefur einstakt lag á ţví ađ gera fljótlega, fallegi og ljúfenga rétti. Og ég er ekki einn um ţađ mat - flestir eru mér sammála enda er hún líklega langmest lesni matarbloggari á Íslandi. 

 

Nú er hún ađ gefa út sína ađra bók - eins og nefnt var hér ađ ofan. Og hún er einstaklega vel gerđ í alla stađi, ađgengilegar uppskriftir - fljótlegar. Og ţćr sem ég hef prófađ eru ljúffengar. Ég hafđi ţó ekki gert ţessa áđur - en ţegar ég sá hana dúkka upp á veggnum mínum á Fésbókinni stóđst ég ekki mátiđ.

 

 

Og ég hvet ykkur til ađ prófa, gefiđ ástvinum ykkar ţessa bók. Hún er miklu girnilegri og ljúffengri en hrein heimili geta nokkru sinni orđiđ (var einmitt ađ sjá ađ bók Sólrúnar Diegó um heimilisţrif er mest selda bók Íslands um ţessar mundir). 

 

Ljúffengi kókóskjúklingur Berglindar á GRGS međ chili-mangóraitu og sćtkartöflufrönskum

 

Ég studdist nokkuđ vel viđ uppskriftina hennar Berglindar sem hćgt er ađ sjá hér ađ ofan. En ég varđ ađ breyta eftir ţví sem mér fannst vera viđeigandi. Ég held ađ Berglind mun fyrirgefa mér. 

 

1 kg kjúklingalundir

200 ml kókósmjól

4 egg

hvítlaukssalt

150 g hveiti

150 g kókósflögur (fínt rifnar)

150 g brauđmylsna

 

2 dósir sýrđur rjómi

1 mangó

1/2 rauđur chili pipar

2 msk jómfrúarolía

salt og pipar

 

1 risastór sćt kartafla

3-4 msk jómfrúarolía

2-3 msk kornmjöl

salt og pipar

 

salat ađ eigin vali

 

 

Sćtar kartöflur geta veriđ alveg skelfilega stórar - ţessi dugđi fyrir fimm manns.

 

 

Hún var flysjuđ og skorin í stóra ílanga bita - stćđilegar franskar.

 

 

Svo er sćtu kartöflunum skellt í skál og olíunni hellt yfir, svo mjölinu og ađ lokum saltađ og piprađ. Ţessa gómsćtu olíu fékk ég hjá vinum mínum, Ólöfu og Omry - í Krydd og Tehúsinu

 

 

Kartöflunum var svo rađađ í eldfast mót og bakađar í 200 gráđu heitum ofni í 15 mínútur, svo snúiđ og bakađ áfram 15 mínútur. 

 

 

Tilbúnar! 

 

 

Raitan var einföld; skar utan af einu mangó og skar niđur hálfan chili pipar. 

 

 

Sett í skál og blandađ viđ sýrđan rjóma, olíu, salt og pipar. Látiđ standa í 30 mínútur viđ herbergishita svo ađ allt bragđ nái ađ taka sig vel.

 

Nćsta verk er ađ undirbúa kókóskjúklinginn.

 

 

Setti hveitiđ í skál og blandađi hvítlaukskryddi og salti og pipar samanviđ.

 

 

Hrćrđi síđan saman egg og kókósrjóma.

 

 

Og ađ lokum kókósmylsnu og brauđmylsnu. Hvert í sína skál.

 

Svo er kjúklingnum velt upp úr hveitinu, svo kókósrjómablöndunni og ađ lokum kókósbrauđmylsnunni.

 

 

Ţá er kjúklingurinn steiktur í olíu í fimm mínútur á hvorri hliđ.

 

 

Ţangađ til ađ hann er fallega gullinn.

 

 

Ég prófađi einnig ađ djúpsteikja nokkra bita - sveimér ţá ef ţeir voru ekki fallegri.

 

 

Svo er bara ađ rađa á disk. 

 

 

Međ matnum nutum viđ ţessa franska rauđvíns. Domaine de La Baume Syrah frá ţví 2015. Ţetta er einstaklega vel heppnađ rauđvín sem á sama tíma er heldur vinalegt viđ budduna. Ţetta er vín sem fćr fjórar stjörnur á Vivino. Ţetta er ţungt og mikiđ rauđvín - mikill og ţéttur ávöxtur í nefi og bragđi - skógarbotn og krydd. Mikiđ eftirbragđ. 

 

 

Svona geta veislumáltíđir veriđ einfaldar. 

 

Takk fyrir innblásturinn Berglind. 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband