Eldsnöggur thai-krćklingur međ engifer, hvítlauk, chilli og kókósmjólk

 

Ţađ eru margir kostir viđ ađ búa á Íslandi. Listinn er auđvitađ langur, en til ađ tengja ţessa fullyrđingu viđ ţessa fćrslu ţá hefur ţađ auđvitađ ađ gera međ sjávarfangiđ sem okkur stendur til bođa. Ţađ er, eins og flestir vita, framúrskarandi. Í dag býđst okkur svo gott úrval af spriklandi ferskum fiski.

 

Ég er mjög hrifinn af krćklingi enda hefur hann komiđ fyrir nokkrum sinnum á blogginu mínu í gegnum árin. Börnin mín eru líka hrifin af honum, meira ađ segja sú minnsta - Ragnhildur Lára, gćddi sér á nokkrum bitum áđur en hún afţakkađi pent og bađ um jógúrt.

 

Krćklingurinn sem viđ kaupum út í búđ er rćktađur, ţađ er auđvitađ hćgt ađ týna hann í fjörum suma mánuđi ársins, en auđveldast er ađ ná í hann út í fiskbúđ - ég sótti ţennan í fiskbúđina mína á Sundlaugaveginum. Ţađ er líka gjarnan talađ um ađ rćktađur krćklingur sé betri en sá sem er villtur - ég satt ađ segja veit ekki svariđ ţar sem ţađ er svo langt síđan ađ ég fékk hann villtan seinast. En ljúffengur er hann úr fiskborđinu!

 

Eldsnöggur thai-krćklingur međ engifer, hvítlauk og kókósmjólk

 

Svo er ţađ líka augljós kostur viđ krćkling er hversu fljótlegt er ađ elda hann. - Ţetta er máltíđ sem tekur undir 7 mínútur, "from start to finish".

 

Veđriđ var líka dásamlegt ţannig ađ ţađ var líka gaman ađ elda úti undir berum sumarhimni.

 

Hráefnalisti

 

1 kg krćklingur

5 cm engifer

4 hvítlauksrif

1 skalottulaukur

1 lítill púrrlaukur

1 dós kókósmjól

100 ml hvítvín

safi úr hálfri sítrónu

jómfrúarólía

steinselja eđa kóríander

salt og pipar

 

 

Skeriđ engiferin, chilipiparinn og alla laukana smátt niđur og steikiđ í tvćr mínútur í heitri olíunni. 

 

 

Veriđ búin ađ skola krćklinginn. Hendiđ opinni eđa skemmdri skel. Ef skelin er smávegis opin er gott ađ banka ađeins í hana - ef hún lokar sér er hún lifandi og í lagi ađ borđa hana.

 

Skelliđ henni á pönnuna međ hinum hráefnunum og blandiđ vel saman.

 

 

Ég átti smá afgang af ţessu ljúffenga víni í kćli sem var kjöriđ ađ nota í matinn (auđvitađ hefđi veriđ ennţá betra ađ drekka ţađ - en mađur á alltaf ađ nota vín sem manni finnst gott í matinn). 

 

Sjóđiđ upp áfengiđ og látiđ ţađ krauma í mínútu eđa svo. 

 

 

Nćst smá sítrónusafi.

 

 

Skelliđ svo kókosmjólkinni samanviđ og blandiđ vandlega saman.

 

 

Saxiđ svo steinseljuna (notiđ kóríander - ef maki ykkar ţolir ţađ) og sáldriđ yfir.

 

 

Ţetta var fallegur sumardagur og ţví kjörinn dagur fyrir rósavín. Ég átti Filarino Sangiovese sem er rósavín frá Ítalíu - ţetta vín er fallegt í glasi - fölleitur rósalitur. Ilmurinn er léttur og blómakenndur og bragđiđ sömuleiđis. Passađi fullkomlega međ krćklingnum. 

 

 

Bon appetit!


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband