Stolin uppskrift; Mangó, avókadó og bleikjusashimi - blóm međ ponzusósu - mín útgáfa

 

Ég hitti nýveriđ Dröfn Vilhjálmsdóttur matarbloggara og lífskúnstner og varđ ţeirrar gćfu ađnjótandi ađ fá ađ smakka ţennan rétt hjá henni. Ţvílíkur réttur - ferskur og bragđmikill. Auđvitađ gćtuđ ţiđ smellt á ţennan hlekk - og fariđ beint yfir á síđuna hennar og gert upprunalegu útgáfuna. Ég skil ykkur bara mćtavel!

 

Nokkrum dögum eftir ađ viđ hittumst var ég međ gesti í mat og auđvitađ varđ ég ađ kynna vini mínum fyrir ţessari frábćru uppskrift. Og til ţess ađ hafa eitthvađ til ađ skrifa um - varđ ég auđvitađ ađ breyta henni lítillega. Ţannig finnst mér skemmtilegt ađ elda - elda eftir minni og reyna ađ líkja eftir einhverri matarupplifun.

 

Svo er líka sagt ađ ţađ ađ herma eftir einhverjum sé hćsta form hóls!

 

Ekki er verra hvađ ţetta er fljótlegur forréttur. Hann verđur eiginlega bara tilbúinn ţegar mađur er búinn ađ skera niđur í hann og rađa honum á disk.

 

Stolin uppskrift; Mangó, avókadó og bleikjusashimi-blóm međ ponzusósu - mín útgáfa.

 

Fyrir sex

 

400 g bleikja

2 avókadó

1 stórt mangó

50 g fetaostur

salat til skrauts

sítrónusafi

 

3 msk jómfrúarolía

3 msk soyasósa

2 cm engifer

1 hvítlauksrif

1/2 rauđur chili

1 tsk sykur

safi úr hálfri sítrónu

1 msk ristuđ sesamfrć

salt og pipar

 

 

Ég held ađ ţađ sé skynsamlegt ađ byrja á ţví ađ gera sósuna. Sósur eins og ţessar njóta ţess ađ fá ađ kynnast í tvö til ţrjú kortér áđur en ţćr eru notađar - ţannig fá hráefnin smástund til ađ blandast saman. 

 

Ég byrjađi á ţví ađ rífa engifer og hvítlaukinn međ rifjárni og setja saman viđ olíuna, sítrónusafann, sykurinn og soyasósuna. Svo kjarnhreinsađi ég chilipiparinn og bćtti saman viđ. 

 

 

Svo var ţurrristuđum sesamfrćjum bćtt saman viđ og smakkađ til međ salti og pipar. 

 

 

Nćst var ađ sinna bleikjunni. Ég hafđi keypt Klausturbleikju í Fiskbúđinni viđ Sundlaugaveginn. Ţađ hefđi eins mátt nota Fjallableikju eđa jafnvel lax. 

 

 

Skar bleikjuna í ţunnar sneiđar og penslađi ţćr svo međ smárćđi af sítrónusafa. Ţannig eldar mađur fiskinn lítillega.

 

 

Ţessi mynd er eiginlega bara til ađ sýna ađ mér tókst ađ kaupa ekki bara eitt heldur tvö fullkomlega fersk avókadó. Hélt eiginlega ađ ţetta vćri algerlega ómögulegt á Íslandi! Skar ţađ svo niđur í sneiđar eins og mangóiđ.  

 

 

Svo var lítiđ annađ ađ gera en ađ rađa réttinum saman. Ég gerđi tilraun til ađ rađa ţessu upp eins og einhvers konar blómi. Skreytti međ muldum fetaosti, nokkrum salatblađatoppum og reyndi svo ađ dreifa ponzusósunni jafnt yfir. 

 

 

Međ ţessum rétti bar ég fram ţetta ljúffenga hvítvín, Leyda Reserva Sauvignion Blanc frá 2016. Ţetta vín er frá Chile. Ţetta er nokkuđ ferskur sopi - međ vanillu og pínu sćtum rúsínukeim í nefi og svo mjúk smjörkennd sítróna á bragđiđ. Bar sig vel međ bragđmiklum forréttinum. 

 

Ţetta var sannarlega góđur forréttur. 

 

Ţađ var vel ţess virđi ađ stela honum af Dröfn - ég á án efa eftir ađ gera hann aftur. 

 

 

 

-------
 
 
 
Flest hráefnin í ţessari fćrslu fást í verslunum Hagkaupa

Bloggfćrslur 15. september 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband