Frábær grillaður kjúklingur með bjórdós í endanum, innbökuðum hvítlauk og brauðhleif.

kjuklingur_i_solinni.jpgGrilltímabilið hefur hafist af fullri alvöru. Pallurinn er alveg að verða klár - smá snurfus eftir - viðbótar grindverk hér - handrið þar - smámál. Það eru líka búið að vera allt á fullu í hverfinu. Það er gaman hversu mikið líf er í hverfinu. Einn að reisa hjólaskýli, nokkrir að planta trjám, við erum nokkur í pallagerð - allt iðar af lífi. Á milli húsanna okkar er leikvöllur þar sem börnin eru að leika sér á meðan fullorðna fólkið dyttar að. Þetta á eftir að vera virkilega fallegt hverfi þegar það verður meira gróið en það er núna - andskotinn - það eru ennþá vinnuvélar útum eldhúsgluggann. En hvað um það. Svíar kunna að byggja hverfi - Lundur hefur verið valin bästa kommun att bo núna í fyrra og það kemur eiginlega ekkert á óvart. Hér er virkilega gott að búa.

Sumarið kom óvenjusnemma hér ár - segja gárungarnir - síðan um páska er eiginlega búið að vera bongóblíða. Áskell kollegi minn skrifar á msn-ið sitt - Costa del Lund. Og hann hittir eiginlega naglann á höfuðið. Við erum eiginlega búinn að vera utandyra síðustu vikur. Í þarseinustu viku borðuðum við kvöldverð utandyra í fyrsta skipti - frábært - það var samt ekki merkilegur matur svosum - penne með einfaldri kjötsósu, baguette og smá salat. Mér fannst eitthvað skemmtilegt við það að sitja úti með kveikt á kertum.

ursolinniaeldinn.jpgKjúklingur með bjórdós í bossanum þekkja án efa margir vanir grillarar. Þetta er fremur vulgar hugmynd. Maður getur ímyndað sér einhvern þéttholda bandaríkjamann í djúpt í suðrinu "Beer's good - chicken's good...beer chicken reeeaaally gooood!" . Einhver myndi kalla þetta whitetrash chicken. Allt er þó rétt - bjór er góður og það er kjúklingur líka - þannig að þetta er kannski bara lógíkst. Bjórkjúlli! Ég reyndi að gera þetta aðeins meira "posh" en bara svona bjór í bossann - smá hvítlaukur - brauðhleifur - rauðvín - smá franskur keimur með djúpa ameríska suðrinu - er það ekki?

Frábær grillaður kjúklingur með bjórdós í endanum, innbökuðum hvítlauk og brauðhleif.

Þetta er raun önnur útfærsla af kjúkling sem ég geri í ofni. Þessi réttur hefur þó umfram þann ofnbakaða að allar hliðar kjúklingsins verða stökkar og brakandi ljúffengar að utan. Og einfalt er þetta - það vantar ekki. 

Fyrst nudda ég kjúklinginn upp úr olíu, salti, pipar og smá timian. Þá er að er að huga að bjórnum og sjálfri bjórdósinni. Ég klippi lokið af beerchickenandgarlic.jpgdósinni - deili í raun einum bjór í tvær dósir. Næst set ég úti safa úr hálfri sítrónu í hvorn, hálfan niðurskorinn lauk, nokkur gróft niðurskorinn hvítlauksrif, salt, nokkur svört piparkorn. Kjúklingurinn er svo þræddur upp á dósina upp í endann þannig að hann standi - undarlegt nokk þá heldur hann bara jafnvægi. Leggirnir virka svona eins og þrífótur meðan dósinni. Þetta er svo sett á forhitað blúsheitt grillið - mikilvægt er að slökkva beint undir kjúllanum annars brennur hann og ennfremur þá eldast hann líka með óbeinum hita. Hitinn í grillinu verður það mikill að bjórinn í dósinni sýður og gufann leikur um fuglinn. Einnig er gott að setja smá viðarkurl á grillið - fá svona "deepsouth smokey" fíling. Það þarf að snúa honum nokkrum sinnum á grillinu. Þetta tekur kannski tæpan klukkutíma - en auðvitað er best að dæma þetta bara með hitamæli - ég geri það alltaf og þannig forðast maður líka að ofelda kjúklinginn.

baguette.jpgBar fram heimagerð baguette sem ég hef bloggað um nokkrum sinnum áður. Einnig pakkaði ég inn tveimur heilum hvítlaukum inn í álpappír með smá olíu. Fékk að bakast með. Gerði líka nauðaeinfalda kjúklingasoðssósu - átti afgang af kjúklingasoði í frystinum sem ég gerði sjálfur einhvern tíma skömmu eftir að við fluttum hingað. Þetta var svo soðið niður með nokkur hvítlauksrifjum og síðan þykkt með klassískum roux (smjörbolla - jöfn hlutföll hveiti/smjör - gram á móti grammi). Þannig að þetta verður svona Veloute sósa miðað við skilgreiningar frönsku matreiðslumeistaranna. 

Með matnum drukkum við ljúffengt rauðvín. Spænskt rauðvín Montecillo riserva frá því 2003. Ég drakk nýlega Montecillo Crianza sem er geysivinsælt vín bæði vegna bragðs, gæða og sérstaklega verðs. Þetta vín er ívíð dýrara - þó ekki mikið og maður bragðar muninn. Þetta er dökkt rauðvín - fallegt í glasi. Djúpt berjabragð þó ekki of þungt en viðamikið. Dökk ber og jafnvel aðeins kryddað. Þetta vín hentar kannski meira kjötréttum en mér fannst það vera ljómandi með kjúklingnum.

  maturabor_um.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Helga Egilsdóttir

Sæll og takk kærlega fyrir kvittið :)

Ég var að lesa yfir síðuna þína og maður roðnar nú bara, þvílíkar uppskriftir og þvílíkur matur! Ekki hægt að lesa í gegnum eina grein án þess að vilja smakk.

Uppskriftirnar þínar eru æði, algerlega æði! Ég hlakka mikið til að fylgjast með þér, mikill snillingur sem þú ert :)

Elín Helga Egilsdóttir, 8.5.2009 kl. 09:34

2 identicon

þessi kjúklingur er glæsilegur og höfum við grillað hann svona, en langaði að þakka fyrir brauð uppskriftina sem ég tók frá þér fyrir margt löngu og hef gert ýmsar útgáfur af. Frábær uppskrift.
Kveðja
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir= Milla. (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 18:28

3 identicon

Sæll. Þú ert vonandi kominn til heilsu og farinn að líta bjartari augum á framtíðina en síðast þegar við hittumst. Freistandi réttur hjá þér. En hverju á að snúa, kjúklingnum eða viðarkolunum? 

Kv. 

Stella (IP-tala skráð) 8.5.2009 kl. 23:34

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Það er svo langt síðan ég hef kvittað.

Fyndið að sjá kjúklinginn grillaðan svona.

Svo vantar nú ekki að þetta er glæsilegt hjá þér að vanda og ég fæ vatn í munninn.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 9.5.2009 kl. 23:08

5 Smámynd: Ásgerður

Kjúklingur á dós er mjög vinsæll á mínu heimili,,og ef það er ekki grillveður, þá skutla ég honum bara á í ofninn,,en á dós samt

Takk fyrir frábærar uppskriftir og hugmyndir. Ég kvitta allt of sjaldan, en les alltaf

p.s. rósmarin er líka mjög gott að setja út í bjórinn/pilsnerinn, gefur æðislegt bragð og angan.

Ásgerður , 10.5.2009 kl. 10:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband