Besta skúffukakan; Súkkulaðikaka í þriðja ættlið - Valdís bakar!

Valdís1Mamma kenndi mér að gera þessa skúffuköku þegar ég var á aldri við Valdísi dóttur mína. Það er þannig að ég kann þessa uppskrift utanbókar - Ég hef bakað þessa köku mörg hundruð sinnum - gæti ég best trúað. Frá því að ég lærði að gera hana, þá 8 ára gamall og þangað til núna. Mest bakaði ég hana fyrir vini mína á táningsárunum. ég held meira að segja að ég hafi sett hraðamet í að setja í þessa köku - 12 mínútur - frá því að smjörið er tekið úr ísskápnum þangað til að kakan fer í ofninn.

Hún er líka einföld - bragðgóð og einhvern veginn hef ég aldrei fengið leið á henni. Fátt er betra en að gæða sér á heitri skúffuköku, með súkkulaðikremi og stóru glasi af ískaldri mjólk.

 Besta skúffukakan; Súkkulaðikaka í þriðja ættlið - Valdís bakar!

Þurrefnin; 375 gr hveiti, 450 gr sykur, 1,5 tsk salt, 1,5 tsk lyftiduft, 3/4 tsk matarsódi, 6 msk gott kakóduft. Hið vota; 3 3/4 dl nýmjólk, 3 egg, 190 gr smjöri.

Valdís2

Fyrst er að blanda þurrefnunum saman; Sigta hveitið, lyftiduftið, matarsóda, kakóið. Bæta svo við sykrinum og saltinu.

Valdís3 

Það þarf alltaf að ýta á eftir þessu með sleikju. Hún er líka nauðsynleg til þess að gæða sér á deigafgöngum sem sitja innan á skálinni á meðan kakan bakast (syndsamlega gott)

Valdís 5

Blanda þurrefninum saman í hrærivélinni. Svo setja 2/3 af mjólkinni og svo mjúkt smjörið (ég mýki það í örbylgjunni). Blanda þessu saman í nokkrar sekúndur þar til þetta er farið að líkjast þykku súkkulaði sementi. Þá er að bæta eggjunum saman við og restinni af mjólkinni. Blanda vel saman við þangað til að þetta verður að fallegu hægt rennandi deigi.

Smyrja ofnskúffuna með smjöri. Hella deiginu í mótið - gæta þess að skilja nóg af deigi eftir til þess að gæða sér á á meðan kakan bakast ... þetta er mikilvægt og vanrækt skref finnst dóttur minni! Bakað í 180 gráðu heitum ofni í 30 mínútur - gætið að tímanum. Ofnar eru ólíkir. Ég sting alltaf hnífi í kökuna og ef ekkert festist á hnífnum - þá er hún til. Einnig sér maður hvernig hún togar sig frá köntunum.

Ég gerði kremið að þessu sinni eftir ganasuppskrift (held að þetta sé rétt skrifað). Súkkulaði 1,2 hlutur á móti 1 hlut rjóma, smá smjörklípu má einnig setja útí til að fá fallegan gljáa á kremið. Auðvitað á svo að sáldra kókós yfir en ég átti hann bara því miður ekki til.

Önnur útgáfa af kremi; Sigta 100 gr flórsykur, 1 msk kakóduft í skál. Hita svo 50 ml vatni með 1 msk af smjörklípu útí og blanda varlega saman við þurrefnin. Dreifa á kökuna, sleikja upp rest og svo sáldra með kókós.

skúffukakan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

alveg sammála, fékk þessa uppskrift hjá mömmu þinni um árið og hef bakað hana þúsund sinnum, slær alltaf í gegn :) Aldeilis myndarleg prinsessa sem þú átt þarna.

bestu kveðjur til Sverige

Steinunn barnapían

Steinunn (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 22:04

2 identicon

Þetta er til Valdísar:

Elsku Valdísin mín
Mikið ertu dugleg að baka súkkulaðikökuna okkar! Þú ert svo einbeitt og ég sé á myndunum að þú leggur þig alla fram. Það skiptir svo miklu máli.
Ég hefði svo sannarlega viljað smakka þessa köku :-) 
Ég vona bara að þú bakir hana næst þegar ég verð í heimsókn hjá ykkur í Lundi.
Ástar- og saknaðarkveðja,
amma Lilja

Lilja (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 09:42

3 identicon

váá hún er flottasti bakarinn! við prófum þessa köku kannski einhvern tímann. Sjáumst vonandi um páskana :-)

Malla (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 18:45

4 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Flott kaka :)

Júlíus Garðar Júlíusson, 7.4.2009 kl. 08:22

5 identicon

Ég elska matarbloggið þitt.

Jónína (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 13:49

7 identicon

mmmmmmmmmmmmmmm þessari köku man maður vel eftir
Valdís tekur sig vel út við baksturinn

Arna Björk (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 20:55

8 identicon

Sem dyggur lesandi og aðdáandi þessari síðu (Chocoalate Nemesis - ****) - langar mig að spyrja þegar þú segir 1,2 hlutur á móti 1 hlut - áttu þá við sömumælieiningu fyrir bæði súkkulaði og rjóma - t.d. desilítra?

Hrafnkell (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 15:30

9 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæll Hrafnkell

Takk fyrir hólið. 

Þegar ég nefni þessi hlutföll þá setti ég td. 120 g súkkulaði á móti 100 ml af rjóma - þetta meikar náttla ekki mikin sens en passar vel í að gera krem eins og ganas sem ég hef nokkrum sinnum gert og heppnast vel. Smá smjörklípa gefur þessu líka fallegan gljáa. 

bestu kveðjur, Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 23.4.2009 kl. 20:01

10 Smámynd: Rebekka

Ég bakaði þessa köku fyrir afmæli mannsins míns og hún var frábær!  Ég var mest ánægð með hvað hún hélst líka lengi mjúk og góð, þannig að við gátum notið hennar í 3 daga    5 stjörnur fyrir þessa uppskrift.

Rebekka, 21.6.2009 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband