Næst besta lasagna allra tíma með góðu salati, brauði og góðu rauðvíni!

lasagnaíofniÉg kalla þetta næstbesta lasagna allra tíma vegna þess að konan mín, hún Snædís, gerir besta lasagna sem ég hef smakkað. Og eins og íslenskir pólitíkusar þá er ekki rétt að skipta um skoðun. En hennar lasagna er talsvert frábrugðið þessu. Þetta var mín útgáfa af lasagna - villibráðarútgáfa. Ég er búinn að vera að horfa í frystinn og stari þar reglulega á þessa nokkru bita sem ég á eftir af hreindýrakjöti sem ég var með í að veiða hér um árið. Það fer að verða aðkallandi að borða þetta og loka þannig hringum að dýrið sem ég veiddi verði aftur hluti af fæðukeðjunni en ekki bara íbúi í frystiskápnum mínum. Þetta er ekki mikil sumaruppskrift...en ég er eiginlega í kappi við tímann að klára úr frystinum!

Þegar svona miklu er tjaldað til þá reynir maður aðeins að vera frumlegur. En þegar maður hefur til viðmiðunnar besta lasagna allra tíma þá er þetta allt fremur illa viðhreyfanlegt - þannig að "the devil is in the detail" - eða hið góða - hvað sem því líður voru salatgerð1breytingar fyrst og fremst fólgnar hráefninu; nautakjöt verður að hreindýrakjöti, smávægar breytingar á okkar bechamelsósunni, litlar áherslubreytingar. Meira vín í sósuna og svoleiðis. Þannig verður breytingin á endanum talsverð þrátt fyrir að ennþá heitir rétturinn lasagna - bara formsins vegna.

Andstætt því sem margir halda þá tekur ekki svo langan tíma að gera lasagna - það fer kannski hvað maður kallar langan tíma - í asi nútímans er kannski stuttur tími aðeins of stuttur fyrir svona matargerð. Þetta tekur í heild sinni svona fimm korter - með öllu - "from prep to plate" eins og sagt er í atvinnueldhúsum. 

lasagna tilbúiðNæst besta lasagna allra tíma!.

Fyrst er að gera kjötsósuna. Ein og hálf gulrót, 2 sellerísstangir, ein rauðlaukur, 6 stór hvítlauksrif steiktar í olíu í smá stund þar til fer að mýkjast. Saltað og piprað til þess að kreista fram bragðið. Kjötinu er því næst bætt á pönnuna og brúnað. Þegar kjötið er eldað þá er tveimur ríflegum glösum af rauðvíni bætt saman við. Ég notaði Wolf Blass Eaglehawk úr kassa. Mér finnst ágætt að nota vín sem ég gæti vel hugsað mér að drekka í mat. Það er alger vitleysa að nota vín sem er skemmt - slíkt hefur mér alltaf þótt vera fráleitt, að nota eitthvað í mat sem þú myndir ekki ella leggja þér til munns. Þá er einu glasi af vatni, 2 msk af villibráðarkraft, 1 dós af niðursoðnum tómötum, 1 dós af tómatapaste, 2 tsk oregano, 2 tsk af paprikudufti, 30 steinhreinsuðum kalamataolívum, salti og pipar, handfylli af fersku basil og ferskri steinselju. Suðunni er leyft að koma upp og eldað í 30 mínútur á meðan restin af matnum er undirbúinn.

lasagnanærmynd1Við hjónin erum eiginlega hætt að gera Bechamel sósu, manni blöskraði hálfpartinn við smjörmagninu og því byggði ég þessa uppskrift á hugmynd sem ég fékk frá Jamie Oliver. 1 stór dós af kotasælu, 3 dósir af 10% sýrðum rjóma, 1 dós af ansjósum í olíu, salt og pipar og svo einn niðurskorinn kamenbertostur (alla jafna myndi ég ekki gera þetta en þar sem ég var að vinna með svo virðulegt hráefni fannst mér ekki annað hægt en að djassa þetta vel upp - munið að þetta dreifst í tvö stór eldföst mót - þannig að þetta hlýtur að vera skárra en að nota smjörsósuna).

Eldfasta mótið er smurt léttlega með hvítlauksolíu, smávegis af hvítu sósunni er sett í botninn og svo er lasagnaplötum sett á það, þá aftur hvítri sósu, kjötsósu og svo plötur aftur og þetta endurtekið þar til að allt er uppurið. Endað á þunnu lagi af kjöt-/hvítri sósu og svo er smávegis af osti sáldrað yfir. Bakað í ofni við 180 gráðu hita í um 30 mínútur eða þar til að osturinn er bráðinn og orðinn fallega gullinn.

salatMeð matnum var prýðisgott salat, lagt flatt á disk, fyrst þunnt skornar rauðar papríkur, svo þunnt skornir fallegir tómatar, þá þunnt skorin eggaldin - pensluð með hvítlauksolíu og grilluð í stutta stund, þá mozzarellaostur og svo nokkur basillauf. 

Með matnum nutum við Rosemount Show Reserve Cabernet Sauvignon Coonawarra frá 2002. Átti til flösku sem ég keypti um daginn á meðan vínið var undirverðlagt (á þessum síðustu og verstu tímum er sjaldgæft að maður sé að græða nokkuð. Þegar ég keypti það var það á 1450 krónur en er núna verðlagt á tæpan 2500 kall. Ekki að það sé ekki þess virði - það er bara ekkert slæmt að fá þessi gæði á útsöluverði. Þetta er vín með mikið berja og ávaxtarbragð samt á djúpu nótunum - eik í bakgrunni með löngu eftirbragði - tannín. Þetta vín ætti örugglega að geymast...en fjandinn þessi vín smakkast alltaf best í kvöld!

lasagna klárað


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tína

Takk fyrir að samþykkja vinabeiðnina . Hlakka til að fylgjast með uppskriftunum þínum hérna og prufa jafnvel nokkrar þeirra. Við hjónin erum bæði ofsalega miklar matarmanneskjur (ef þannig er hægt að orði komast) en eigum 5 börn og þar af er bara 1 sem er ekki matargikkur!!!! Þannig að ég er alltaf til í að prufa eitthvað nýtt.

Eigðu góðan dag Ragnar.

Tína, 23.6.2008 kl. 14:22

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ótrúlega girnileg uppskrift, ítreka það sem ég hef áður sagt Ragnar. Það er fyrst núna sem ég skil hugtakið ,,matargerðarlist".

Þú notar hreindýrakjöt hér, er í lagi að nota annað hráefni? 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 23.6.2008 kl. 23:13

3 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl Guðrún Jóna

Það er í góðu lagi að nota annað hráefni; myndi samt ekki sleppa rauðvíninu eða ólívunum - þau gáfu einkennandi bragð. Bechamelsósan var frábær ein og sér. Það væri líka sársaukalaust að sleppa ostinum ef maður vill magrari máltíð - en osturinn dreifðist á 2 stórföt.

Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 23.6.2008 kl. 23:31

4 identicon

Hef oft kíkt hingað inn og haft gaman af að lesa um hvað þú ert að elda. Þessi lasanja uppskrift hljómar ótrúlega vel og verður gaman að prófa hana, eins og svo margt annað sem ég hef lesið um hér.

Takk fyrir að deila þessu með okkur sem fylgjumst með úr fjarlægð!

Kv. Lilja

Lilja (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 11:09

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Tekurðu kostgangara?

Hólmdís Hjartardóttir, 24.6.2008 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband