Pavlova - eftirréttur guðanna - fyrir 130 manns

Ég hef bloggað um pavlovur áður. Þetta er minn uppáhalds eftirréttur, fallegur að horfa á og bragðast dásamlega.

Eins og fram kom í síðustu færslu þá vorum við í brúðkaupi á laugardaginn hjá Dögg og Grími og ég bauðst til að sjá um eftirréttinn. Brúðhjónin voru sammála um að ekkert annað kæmi til greina en pavlova. Þetta er alveg ekta sumareftirréttur, virkar léttur og frískandi, og allir þessir ávextir varpa fram tálmynd hollustu.

Ég hef venjulega stuðst við uppskrift Nigellu Lawson úr bókinni - How to eat, the pleasures and principles of goog food. Ég hef þó breytt uppskriftinni lítillega - hvað snertir marensbotninn. Mér fannst hann þurfa að vera aðeins sætari og hafa meiri vanillukeim. Þetta á bara við um basic hvítan botn - svo er hægt að breyta útaf - setja kókos útí, súkkulaði - you name it.

5 eggjahvítur er þeyttar með smávegis salti þar til hvít froða fer að myndast á yfirborðinu. Þá er 290 gr af sykri bætt útí, þriðjung til fjórðung í senn þar til eggjahvíturnar eru orðnar stífar. Það þýðir að þegar skálinni er snúið á hlið eiga eggjahvíturnar ekkert að hreyfast. Svo er tveimur tsk af kartöflumjöli bætt saman við, 1 tsk af hvítvínsediki og nokkrum vanilludropum og hrært varlega saman við.

Marensinn er svo lagður á plötu og mikilvægt er að jaðarinn sé jafnþykkur og miðjan. Ofn er hitaður í 200 gráður og þegar marensinn er settur í ofninn er hitinn lækkaður í 150 gráður og bakað í fimm korter. Látið kólna alveg. Vel er hægt að gera botninn daginn áður - muna bara að geyma hann á myrkvuðum köldum stað.

300-500 ml af rjóma er þeyttur og dreift yfir botninn í þykku lagi og svo er berjum dreift yfir, í þetta sinn; niðurskornum jarðaberjum, bláberjum, hindberjum, brómberjum og svo ástaraldin (það var sérstaklega fyrir brúðhjónin - móðir brúðgumans er farin að leggja hart að framleiðslu barnabarna - þannig að þetta var smá innlegg í þau mál).

Þetta er svo endurtekið tíu sinnum. Ég fékk aðstöðu í eldhúsi veitingastaðarins Geysis og Bjarki kokkur taldi að kökurnar myndu duga fyrir amk 200 manns. Hvað um það - þær voru borðaðar upp til agna.

small (5) 

small (1)

small (2)

small (3)

small (4)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Namm! Ekki bara Pavlóvan heldur bara allar uppskriftirnar hérna! Namm! Set þessa síðu í feivorits! :-)

Helga Hin (IP-tala skráð) 15.5.2007 kl. 06:33

2 Smámynd: Geir Harðarson

Ég þakka þér firrir hann Mola, ég er afar stoltur að honum.

varðandi mynda kvöldið, þá held ég að við verðum að fara að gera einkvað í því. Því firr því betra eftir að hafa séð myndirnar hér firrir ofan. 

Geir Harðarson, 15.5.2007 kl. 17:23

3 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Þetta er glæsilegt hjá þér og örugglega gómsætt eftir því!

Vilborg Valgarðsdóttir, 15.5.2007 kl. 22:15

4 identicon

Ekki langt síðan ég rakst á þessa síðu en nú kíki ég inn nánast daglega og hef prófað æði margar uppskriftir héðan.  Á það sameiginlegt með þér að vera mikill ástríðukokkur og sælkeri sem fjölskyldan nýtur góðs af flesta daga vikunnar.  Takk fyrir mig :) 

Sigga Dóra (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 09:54

5 identicon

Var í brúðkaupinu, þetta var alveg rosalega gott.

Agla (IP-tala skráð) 19.5.2007 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband