Ekta keisarasalat - eldsnögg veislumáltíð

Það er í raun rangnefni að kalla þetta salat keisarasalat. Á ensku kallast þetta salat Ceasar salat og það hefur ekkert með Júlíus Sesar keisara að gera. Salatið heitir í höfuðið á þeim sem bjó það til í fyrsta sinn en það var Ceasar Cardini. Hann var veitingamaður og rak veitingahús í Tijuana. Sagan hermir að hann hafi fundið upp salatið þann fjórða júlí 1924 í örvæntingu þegar birgðir voru á þrotum úr hráefnum sem voru við hendina. Það eru þó ekki allir á einu máli um að þetta hafi gengið svona fyrir sig. Félagi Ceasars Cardini, Paul Maggiore, sagðist hafa útbúið þetta salat í fyrsta sinn fyrir flugmenn árið 1927 og kallað salatið "aviator's salat" (flugmannasalat). Bróðir Ceasars, Alex, sagðist líka hafa fundið salatið nema hann útbjóð það fyrst 1925 - einnig fyrir flugmenn. Hver þessara ágætu manna höfðu rétt fyrir sig fáum við sennilega aldrei að vita, en eitt er víst að salatið er ljúffengt og setti veitingahúsið hans Ceasars Cardini á kortið. 

Ég smakkaði Sesarssalat fyrir fyrir um fimm árum síðan. Ég pantaði mér það þegar ég var úti að borða á Grand hóteinu í Lundi. Og það var, eins og flestir vita, ljúffengt. Það var stórgert með stórum munnbitum af romaine-salati, kjúklingabitum, hlunkum af parmaosti og ljúffengri þungri sósu. Og síðan þá hefur þetta salat verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér!  

Ég birti þessa uppskrift í fyrstu bókinni minni - Tími til að njóta - sem kom út fyrir tveimur árum síðan. Hvet ykkur eindregið til að prófa þetta salat þar sem það er sérstaklega einfalt og ljúffengt. Sérstaklega ef maður gerir dressinguna frá grunni!

 

Ekta keisarasalat - eldsnögg veislumáltíð

 

Ég gerði þessa uppskrift seinast á fimmtudaginn þar sem ég átti talsvert af kjúklingi afgangs frá því kvöldinu áður. Nýtni er dyggð!

 

Fyrir salatið

 

Einn haus romaine-salat

150 g beikon

2 kjúklingabringur

2 stórar sneiðar af góðu brauði 

100 g parmaostur

2 meðalstórir tómatar

hvítlauksolía

 

Fyrir dressinguna

 

3 msk majónes

2 msk sýrður rjómi

2 flök ansjósur

1 hvítlauksrif

safi úr 1/2 sítrónu

salt og pipar

1 msk vatn

20 g raspaður parmaostur

 

 

Salatið

 

1. Saltið og piprið kjúklingabringurnar og steikið á pönnu Þegar þær hafa tekið lit setjið þið þær í eldfast mót og inn í180 gráðu heitan ofn. Bakið þangað til kjarnhiti er 82 gráður. Látið kólna

 

2. Skerið brauðið í teninga og steikið upp úr hvítlauksolíu þangað til þeir eru gullinbrúnir og stökkir.

 

3. Steikið beikonið og skerið í bita.

 

4. Rífið salatið í bita, hlutið tómatana niður og raðið í skálar

 

5. Skerið kjúklingabringurnar niður í 3-4 ríflega bita og leggið ofan í salatið.

 

6. Raðið beikoni, brauðteningum og að lokum parmaostinum.

 

7. Toppið ríkulega með dressingunni.

 

Dressingin

 

1. Setjið ansjósurnar og hvítlaukinn í mortél og merjið saman.

 

2. Blandið saman í skál majónesinu, sýrða rjómanum, sítrónusafanum og vatninu.

 

3. Bætið ansjósu- og hvítlauksmaukinu við ásamt salti og pipar og röspðuðum parmaostinum. Blandið vel.

 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband