Torta mexicana

Þessi réttur er nú eiginlega fengin frá föður mínum. Hann gerði hann fyrst fyrir mörgum árum þegar gömlu hjónin voru að prófa sig áfram í mexíkóskri matargerð - pabbi var ferlegametnaðarfullur í þessu - gerði sínar eigin tortilla kökur sem hann grillaði í ofni eða á grilli. Alveg frábært! Við höfðum að sjálfsögu borðað oft burritos - eitthvað kjöt og blandað grænmeti vafin í tortillur eða taco skeljar. Eitt sinn raðaði hann þessu upp í tertu og bakaði í ofni þannig að osturinn bráðnaði yfir matinn. Úr varð þessi dýrindis góða útfærsla af einföldum burrito - torta mexicana (hann fékk hugmyndina - nafnið er mitt ©). Þessi réttur er einmitt kjörinn til að hreinsa út úr ískápnum, hálftómar krukkur - grænmeti á grensunni, allt má í raun flakka.

Torta mexicanatorta mexicana

 400 gr af nautahakki er steikt á pönnu og þegar það er steikt er smá season all, oregano, chilli duft, papriku duft, salt og pipar og 100 ml af vatni bætt saman við. Eins mætti nota svona tilbúnar kryddblöndur - þær eru oft ágætar. Blandað saman og vatnið soðið niður.

1 dós af hökkuðum tómötum með grænmeti (til frá Hunts), smávegis spicy salsa sósa og smávegis tómatsósa er blandað á pönnu og hitað upp. Smakkað til. Bragðbætt eftir smekk.

Grænmeti er skorið niður, auðvitað má nota hvaða grænmeti sem er - þetta var sem ég átti til; 1 portobello sveppur, 1/2 avacado, 1 rauðlaukur, smávegis iceberg salat, 1 tómatur, 1/3 kúrbítur, 1/2 lítil dós gulur maís, 1/2 rauð paprika, nokkrar grænar ólífur.

Tortillu kökum er raðað á bökunarpappír og svo er tertan útbúinn, á hverja hæð fer smá sósa, svo kjöt og grænmeti til skiptis. Kökur lagðar á milli hæða - þrjú til fjögur lög. Á efstu hæðina fer svo aftur sósan og litríkt grænmeti og svo niðurrifinn ostur. Þetta er svo sett í 180 gráðu heitan ofn og bakað í 15 mín eða þar til osturinn er bráðinn og girnilegur. Skreytt með ferskum kóríander.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gua

áttu við tortilla kökum eða eru til sérstakar burrito kökur, annars þakka ég frábært matarblogg og ætla að prufa marbella kjúkling á helginni tók reyndar uppskrift frá http://fooddownunder.com en eftir að ég las uppskriftina þína þessi síða er sniðug að því leyti að þú getur stækkað og minnkað uppskriftir að vild kv. gua

gua, 15.2.2007 kl. 22:44

2 Smámynd: Ruth Bergs

 Ég er með matarást á manninum mínum - ég er alveg að sjá að einhver elski þig líka þannig.  

Ruth Bergs, 15.2.2007 kl. 22:52

3 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Ómægod! Þetta er hreinasta snilld... elska mexíkanskan mat og finnst frábært að prófa eitthvað nýtt. Þetta hef ég aldrei prófað! Skal prófað hið fyrsta!

Þúsund þakkir Meistari! 

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 15.2.2007 kl. 23:17

4 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Þú ert alveg ótrúlegur.

Þóra Guðmundsdóttir, 16.2.2007 kl. 00:05

5 Smámynd: Vilborg Valgarðsdóttir

Ég hef prófað að búa til svipað, n.k. mexikanskt lasagna, þar sem tortilla kökur koma í stað lasagna-platna og kjúklingur skiptist á við grænmeti og sósu. Mjög gott.

Takk annars fyrir þetta blogg, ég les það alltaf! 

Vilborg Valgarðsdóttir, 16.2.2007 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband