Frábær grænmetistagína með kjúklingabaunum, kartöflum og gulrótum með kúskús og salati

 í potti

Ég held áfram að reyna við grænmetisréttina. Þessi réttur var á boðstólnum núna í seinustu viku. Er ennþá eitthvað að reyna að bauka við þetta manifestó sem lagt var upp með í upphafi árs - þó verður að viðurkennast að við höfum brotið reglurnar nokkuð oft. Þó oftast bara af illri nauðsyn - það þurfti að klára matarafganga! Tengdamóðir mín segir enga dyggð göfugri en að vera nýtinn! 

Ég hef síðustu vikurnar sankað að mér nokkrum bókum um grænmetismat sem margar hverjar eru ansi góðar. Auðvitað átti ég talsvert af matreiðslubókum sem innhéldu margar góðar uppskriftir - en þetta var ansi góð afsökun fyrir því að fá sér nokkrar bækur í viðbót. Ég veit ekkert betra en að blaða í matreiðslubókum, renna í gegnum uppskriftina, skoða myndirnar og spekúlera í því hvernig ég myndi elda þennan rétt.

Fyrsta matreiðslubók Yotam Ottolenghi - Ottolenghi - er sannarlega góð til innblásturs, einnig nýjasta bók hans Plenty - sem er samsafn af grænmetisréttum sem hann hefur skrifað fyrir The Guardian. Síðan hef ég keypt eina svona The Complete Vegiterian Cookbook eftir Sarah Brown sem tekur saman uppskriftir sem voru skrifaðar fyrir Readers Digest. Bókin er  svosum ágæt, en eins og allar svona  "complete" bækur, þá eru þær ekkert voðalega "complete". Bróðir minn keypti eina sem er líka ansi skemmtileg, The Moosewood Cookbook,  en gallinn við hana að það vantar allar ljósmyndir. Ég kýs alltaf heldur bækur með myndum en án mynda! Margar uppáhalds matreiðslubækurnar mínar eru samt án mynda; The Silver Palate, Matur og drykkur eftir Helgu Sigurðardóttur, frönsku biblíurnar; Escoffier, Larousse Gastronomique, hin ítalska - The Silver Spoon og svo mætti lengi telja. Þó skreyta myndir gjarnan endurútgáfur þessara bóka. Jæja, snúum okkur að matnum. 

Gómsæt grænmetistagína með kjúklingabaunum, kartöflum og gulrótum með kúskús og salati

Einn og hálfur rauðlaukur skorinn í sneiðar, 4 hvítlauksrif skorin í þunnar sneiðar og steikt í 3 msk af jómfrúarolíu við heldur lágan hita í 5-10 mínútur. Laukurinn á ekki að brúnast - bara verða mjúkur og karmelliserast. Þá var einni tsk af kúmeni, 1 1/2 tsk túrmeriki, 2 tsk af nýmöluðum kóríander fræjum, 1 tsk af Harissamauki - steikt í smá stund með lauknum, rétt til að vekja kryddin. Þá var 2 dósum af niðursoðnum tómötum bætt saman við, jafnmikið af vatni, grænmetiskrafti og auðvitað salti og pipar. Síðan voru 10 kartöflur skornar í heldur stóra bita, 4 gulrætur í þykkum sneiðum, hálf rauð papríka í í bitum bætt saman við og suðan látin koma upp. Saltað og piprað. Bætti síðan við einni dós af kjúklingabaunum og fékk af krauma áfram í 20 mínútur. Síðan var kássan smökkuð til með salti og pipar, sætt með 1 msk af góðu hunangi. Hrært vel saman.

meðlæti

Þetta var ekki alveg grænmetisréttur - því 10 mínútum áður en maturinn var tilbúin braut ég fjögur egg út í kássuna (þetta er auðvitað alveg "optional") Síðan var handfylli af skorinni ferskri steinselju dreift yfir.  

two oceansBorið fram með kúskús og síðan einföldu salati; blönduð grænlauf, tómatar, agúrkur, gul og rauð paprika og síðan smávegis af fetaosti.

Þessi réttur kom sérstaklega á óvart - oft finnst mér grænmetisrétti skorta bragðdýptina sem oft fylgir góðum kjötréttum en þessi réttur náði einhvern veginn að mæta öllum mínum væntingum. Við fengum okkur smá hvítvínstár með matnum. Ég hafði keypt Two Oceans Sauvignion Blanc hvítvín í systeminu - búkollu til að eiga í kælinum. Þetta eru prýðiskaup. Fölgult á litinn, sítrus ávöxtur á tungu, perur, þurrt og gott. 

Það hefði ekki verið verra að bera þennan rétt fram með líbönsku flatbrauði.

matur 

Bon appetit! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

+I 100asta skipti takk fyrir frábæra síðu. Hér náðirðu mér alveg. Ég hef verið grænmetisæta (ljótt otð)n í yfir 20 ár, bjó lengi í Englandi áður en ég flutti til Spánar þar sem ég hef búið sl. 12 ár.  Hér hef ég fengist við ýmislegt,enlengst af sem farastjóri fyrir Íslendinga. Maðurinn minn (spánverji og mega kokkur) rekum Hostel í gamla bænum í Banidorm. Hér eldum við og skemmtum okkur með viðskiptarvinum okkar. Margt hefur verið brallað í eldhúsinu sem hefði átt erindi á síðu eins og þína,en við höfum ekki gefið okkur tíma fyrir það. En mikið hef ég notið þinnar síðu sl. 2 ár.

Mér er alveg trúandi til að senda þér uppskriftir (grænmetis) og fróðleik héðan ef þú vilt.

En, endalaust þakklæti fyrir frábæra bloggsíðu.

Kristin :-)

Kristin Bergmann (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 17:29

2 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl Kristín

Þakka þér kærlega fyrir heimsóknina! Gaman að heyra að þú hafir kunnað að meta uppskriftina - það gerðum við líka, þetta var einn besti grænmetisréttur sem ég hef bragðað!

Þér er svo sannarlega velkomið að senda mér uppskriftir - tek við öllu svoleiðis með opnum örmum og þarf endilega aðstoð með grænmetisréttina! Þú mátt endilega senda mér þær persónulega, á facebook eða leggja þær í athugasemdalistann.

bestu kveðjur, Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 23.3.2011 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband