Létt og gott penne alla frutta di terra e pomodori međ salati og brauđhleif

Hérna í Púkagrandanum númer eitt höldum viđ áfram ađ njóta manifestósins sem lagt var upp međ í upphafi ársins. Á virkum dögum höfum viđ ţann háttinn á ađ viđ eldum grćnmetisrétt einn daginn og svo fiskrétt hinn. Ţetta hefur nćstum alltaf tekist. Viđ höfum einnig lagt okkur fram ađ hafa réttina í léttara lagi - en ţađ var bara aukaverkun ađ verkefninu og alls ekki áformađ. Hver hugsar ekki um matarrćđiđ rétt eftir jólin. 

Ţessi réttur er ansi sniđugur. Hugmyndin er fengin frá rétt sem ég hef eldađ áđur, en ţar notađi ég bara tómata, hvítlauk og basil. Sjá hérna. Núna var ísskápurinn fullur af nýkeyptu rótargrćnmeti og ég nýbúinn ađ syngja lofsöng til kartöflunnar og annars rótargrćnmetis, og ţví ekki annađ hćgt en ađ nota ţađ í réttinn. Ţemađ varđ ţví ţetta.

Létt og gott penne alla frutta di terra međ salati og brauđhleif

Svona matur er eins einfaldur og fljótlegur og hugsast getur. Ţó ţarf hann 30 mínútur í ofninum. En ađ undirbúa réttinn er bara nokkra mínútna verk.

Fyrst var ađ flysja einn heldur stóran rauđlauk og hluta gróft niđur, hálft "butternut" grasker, kúrbít, 3 hvítlauksrif og síđan handfylli af kirsuberjatómötum skornum í helminga. Ţremur msk af hvítlauksolíu var sáldrađ yfir og síđan blandađ vel saman. Saltađ vel og piprađ. Bakađ í 200 gráđu heitum ofni í 20 mínútur. Síđan er 4-5 msk af léttum creme fraiche, hrćđum til ađ gera ţađ meira vökvakennt, blandađ saman viđ ásamt jafnmiklu magni af vatni frá pastapottinum, ásamt smá skvettu af hvítvíni - ţví sama og viđ fengum okkur međ matnum. Sett aftur inn í ofn í nokkrar mínútur og leyft ađ hitna aftur. 

trivento

Penne sođiđ skv. leiđbeiningum í ríkulegu söltuđu vatni - og eins og segir ađ ofan nota ég nokkrar matskeiđar sem grunn ađ pastasósunni. 

Boriđ fram međ heitum brauđhleif og góđu salati, grćn lauf, smátt skorin rauđlaukur, rauđ paprika, steinselja, ristuđ graskersfrć og nokkrum bitum af smátt skornum mozzarella.

Međ matnum fengum viđ okkur smá hvítvínstár. Viđ áttum Trivento Chardonnay - Chenin búkollu í ísskápnum. Ţađ er alltaf gott ađ eiga smátár í kćlinum til ađ vinda sig ađeins niđur í lok dags. Ţetta vín er frá Argentínu og er ungt vín - frá ţví í fyrra - eins og vanin er međ búkollur. Ţetta er ljómandi góđ búkolla - fallega gult í glasi, létt á nefniđ og ferskt og ansi ávaxtaríkt á bragđiđ. Gott vín!

Bon appetit!

 

penneallafruttaditerra 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband