Örblogg: Gorganzolasósa með svínakjöti - hvílíkt og annað eins!

Þetta er bara svona örblogg. Smá rafræn bragðprufa úr eldhúsinu mína. Erum búinn að vera með góðan gest um helgina. Tengdafaðir minn, Sigurður Eggert ... Eddi - er búinn að vera hjá okkur síðan á miðvikudagskvöldið. Alltaf gott að fá hann í heimsókn. Auðvelt að gleðja þann góða mann.

Ég gerði mitt besta til að hafa hann glaðan. Á fimmtudaginn vorum við með kjúklingaréttinn sem ég bloggaði um seinast. Á föstudagskvöldið eldaði Eddi, gerði lambahrygg. Hann var ágætur að mér fannst en tengdó var ekki nógu ánægður. Í gærkvöldi vorum við með steik og guinness böku sem heppnaðist mjög vel, sjá hér. Í kvöld gerði ég síðan svína - yterfile - sem mér finnst miklu betra en lundin þar sem það hefur aðeins meiri fitu og er þannig safaríkari.

Saltaði og pipraði vel, og stráði síðan smá möluðu fennel utan á kjötið og steikti kjötið aðeins að utan og bakaði síðan inn í ofni þar til kjarnhiti varð um 75 gráður. Bárum kjötið fram með kartöflum, góðu salati og síðan þessari frábæru sósu. 

 Örblogg: Gorganzolasósa með svínakjöti - hvílíkt og annað eins!

Skar einn lauk niður smátt, 2 hvítlauksrif og steikti í smá smjöri og olíu þar til mjúkt og fallegt. Saltaði og pipraði. Síðan 200 ml af creme fraiche og síðan 150 gr af Galbani gorganzolaosti og bræddi saman. Saltaði og pipraði eftir smekk. Ótrúlega bragðgóð sósa. 

Skar einnig niður tvö græn epli niður, í litla ferninga, og steikti með nokkrum söxuðum rósmarínlaufum og bar fram með kjötinu. Passaði rosalega vel saman. Svínakjötsbiti sem bráðnaði í munni með sósunni og eplabitunum. Namminamm. 

Bon appetit! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært bloggið hjá þér Ragnar ,þar sem má alls ekki kíkja á hungraður:)

en í augnablikinu hef ég spurtingu á þetta " Síðan 200 ml af creme fraiche og síðan 150 gr af Galbani gorganzolaosti " í sambandi við svínakjöts uppsk,

Hvaða vökva erum við að tala þarna um og hvaða ost get ég notað í staðinn hér á klakkanum?(nefla kannast ekki við þennan fyrir ofan:))

Bkv.Rasa

Rasa (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 10:22

2 identicon

Sæll Ragnar, ertu nokkuð hættur að skrifa??

við hittum ykkur hjónin í 40 ára afmælinu hjá Helgu og Kristni. Ég er mikil áhugamanneskja um mat og hef gaman af að lesa bloggið þitt. Við hjónin vorum að rölta um niðrí bæ í gær (búum á Ítalíu) og ég keypti meðal annars gráðost bragðbættan með trufflum, frekar góðan.

Kær kveðja og hlakka til að lesa meira frá þér,

Erna Svala

Padova

Erna Svala (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 10:55

3 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sæl Rasa

creme fraiche er þykkur, hleyptur, rjómi ekkert osvipaður sýrðum rjoma bara ekki eins súr!

Mbk, ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 6.12.2010 kl. 22:17

4 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Sael Erna.

Nei - ekki haettur, stundum bara mikid ad gera a köflum! Reyni ad skerpa mig.

mvh, Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 8.12.2010 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband