Þrír gómsætir forréttir í aðalrétt: Reyktur þorskhnakki, grænskel og risarækjur – fiskiveisla á grillinu

Stundum finnst mér forréttir hreinlega bestir. Litlir skammtar af einhverju góðgæti og stundum er gott er að fá nokkra litla forrétti til að æsa upp bragðlaukana. Það sem mér finnst best við að fara út að borða er að þegar maður fær að njóta marga lítilla rétta. Sumir eru rétt nógu stórir til að botnfylla kaffibolla og aðrir rétt þekja eina matskeið. Þetta er kannski ekki besta leiðin til að borða sig saddan. En sennilega er þetta er besta leiðin til að njóta margra ólíka áhrifa og kynnast ólíku hráefni. Við ákváðum um daginn að í staðinn fyrir að gera aðalrétt væri að gera nokkra litla rétti. Þetta reyndist hin ljúfasta máltíð og ekki slæm leið til að verja fallegu sumarkvöldi.

Þrír gómsætir forréttir í aðalrétt: Reyktur þorskhnakki, grænskel og risarækjur – fiskiveisla á grillinu

Ég keypti íslenskan þorskhnakka af fiskibílnum nýverið, þykk og falleg stykki. Þeir lofa mér að fiskurinn sé frystur úti á sjó og ég er farinn að trúa þeim því þegar hann hefur þiðnað virkar hann ferskur og lyktar vel. En frosinn fiskur er aldrei jafngóður og ferskur – en svona málamiðlanir verður maður að lifa við þegar maður býr ekki á Íslandi og nokkra kílómetra frá næstu höfn.

thorskhnakkiisalti.jpg

Þorskhnakkinn var settur í pækil með bolla af grófu salti og 10 greinum af sítrónu timian í 15 mín. Á meðan er kynnt upp í grillinu. Setti eplaviðarspæni í álpappirsvasa og stakk á hann nokkur göt. Álpokinn var svo settur beint á kolin og það leið ekki langur tími þangað til að það fór að koma heitur reykur. Fiskurinn var svo reyktur í 20 mínútur þar til eldaður. Þá verður hann fallega hvítur að innan og tekur á sig mildan brúnan lit að utan. Borinn fram með einfaldri sósu, creme fraiche, smá sætt sinnep og raspaður hvítlaukur, salt og pipar. Borðað með fingrunum.

 img_2028.jpg

Síðan var ég með krækling – þessi var reyndar frá Nýja Sjálandi (hann fékk ég gefins frá bílnum þar sem ég var að versla þar í fimmtánda skipti – venjulega reyni ég að forðast hráefni sem er fengið svona langt að). Þetta er alltént stór og mikill kræklingur – stærri en bláskelinn okkar – með stórum kraftmiklum krækling. Skelin hefur á sér grænan blæ og gæti allt eins gengið undir nafninu grænskel. Hana bragðbætti ég með smátt skornum rauðlauk, smá hvítvinsediki, jómfrúarolíu, ferskum sítrónusafa, salti og pipar. Grilluð við háan hita í nokkrar mínútur. Borðuð nánast beint af grillinu.

img_2024.jpg 

Síðast var ég með risarækjur – gambas. Þær steikti ég á hellunni við hliðina á grillinu. Bræddi smjör á pönnunni, þegar smjörið var hætt að freyða þá var hvítlaukur steiktur þangað til gljáandi, kannski teskeið af rauðu chilli og þá var rækjunum skellt í, síðan limesafa, skvettu af hvítvíni, salt og pipar. Sett í skál, vökvanum hellt yfir og borðað hið snarasta með fingrunum.

img_2031.jpg 

06317.png

Við höfðum með matnum bara einfalt salat og síðan baguette og auðvitað hvítvínsopa. Það er eiginlega ekki hægt að vera með svona fiskiveislu án þess að njóta smá hvítvíns með henni. Sérstaklega þegar það er heitt í veðri og sólin er á lofti. Við vorum með Fleur de Cap Chardonnay frá því 2008. Þetta er vín sem ég keypti í Kaupinhöfn þegar við vorum á leiðinni þar í gegn. Það var á ansi góðu verði og því var kippt með nokkrum flöskum. Við höfum drukkið þetta vín nokkrum sinnum áður og verið mjög ánægð. Það var borið fram beint úr kælinum og þannig vilja nú delicatessurnar í víninu hverfa - en það er ávaxtaríkt og heldur þurrt. Ljúfengt með matnum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Ragnar, trúir þú því að allir frystitogararnir okkar henda þorskhnakkanum,

í hafið aftur.

Aðalsteinn Agnarsson, 20.7.2010 kl. 19:03

2 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Saell Adalsteinn.

Nei...Their virdast ekki henda thessu - Thorskhnakkinn hefur hafnad mest i frystinum hja mer!

Og thetta er fjandi godur biti.

mbk, Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 21.7.2010 kl. 07:55

3 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Ragnar, þetta er flott hjá þér, en þú ert með þorskhnakka af trillunum.

Aðalsteinn Agnarsson, 21.7.2010 kl. 10:11

4 Smámynd: Ragnar Freyr Ingvarsson

Saell aftur Adalsteinn

Eg verd ekki leidur ad heyra ad thetta er fra trillusjomönnum komid. Eg eg byggi a Islandi myndi eg reyna ad vingast einn slikann og reyna ad versla vid hann beint - fa matinn sem ferskast og millilidalaust!

Takk fyrir innlitid!

Ragnar

Ragnar Freyr Ingvarsson, 21.7.2010 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband