Kantonískir andaleggir međ hoisin sósu, vorlauk, gúrku á mandarínpönnukökum

Snćdís, eiginkona mín, átti afmćli s.l. föstudag og í tilefni ţessa lofađi ég ađ elda eitthvađ gott handa henni um helgina. Hún bađ mig um ađ elda önd međ asísku sniđi og ţađ var nú lítiđ vandamál ađ verđa viđ ţeirri bón...hélt ég. Hugmyndin var ađ heilsteikja önd og bera hana fram í mandarin-pönnukökum. Mér láđist ţó ađ undirbúa ţetta almennilega. Var nefnilega á vakt allan laugardaginn og gleymdi ađ kaupa öndina. Dreif mig út í búđ á sunnudagsmorguninn og fann eina frosna. Best ađ bretta upp ermarnar!

 

Ég hafđi lesiđ margar svona uppskriftir fyrir löngu síđan en augljóslega búinn ađ gleyma ţví ađ ţetta er heldur tímafrekt verkefni. Ef vel á ađ vera tekur ţetta ađ minnsta kosti 12 tíma, helst einn og hálfan sólarhring. Ţetta var ţví alveg vonlaust mál - öndin mín var ennţá frosin! Ţví voru góđ ráđ dýr. Dreif mig í ađra verslun og fann ófrosna andaleggi! Ţessu varđ ađ bjarga.

 

Auđvitađ vćri líka hćgt ađ nota kjúklingaleggi eđa ţá gćsaleggi, sem margir íslenskir veiđimenn geta nálgast um ţessar mundir!

 

Kantonískir andaleggir međ hoisin sósu, vorlauk og gúrku á mandarínpönnukökum

 

Fyrir sex

 

6 andaleggir

1 krukka hoisinsósa

4 msk hunang

50 ml hrísgrjónaedik

100 ml soyasósa

4 msk jómfrúarolía

2 kanilstangir

2 stjörnuanísar

1 tsk sichuan piparkorn

1 msk kínversk fimmkryddablanda

5 vorlaukar

 

Međlćti

 

Mandarín-pönnukökur

2 gulrćtur

8 vorlaukar

1 papríka

1 púrrulaukur

hrísgrjón (val)

1/2 agúrka

1/2 krukka hoisinsósa

 

Ţađ er auđvitađ hćgt ađ gera sína eigin hoisin sósu - ţađ eru til óteljandi uppskriftir á netinu og nćr allar eru ţćr verulega frábrugđnar ţví sem mađur kaupir út í búđ (eins og ég gerđi núna). Ćtli sé ekki best ađ skođa hversu mikinn tíma mađur hefur úr ađ spila!

 

 

Skola leggina vel og vandlega í köldu vatni. 

  

 

Ég notađi kínverska fimmkryddablöndu sem inniheldur blöndu af stjörnuanís, negul, kanil, svörtum pipar og fennelfrćjum. Og til ađ skerpa á ţessari blöndu bćtti ég viđ tveimur kanilstöngum, tveimur stjörnuanísum og sichuan piparkornum. 

 

 

Svo er bara ađ skella hvítlauknum og engifernum í matvinnsluvél!

 

 

Og hakka smátt!

 

 

Svo ţarf mađur bara ađ átta sig á ţví ađ ţessi skál er hreinlega of lítil fyrir allan ţennan mat! 

 

 

Leggirnir voru fćrđir yfir í stóran bala og soyasósunni, olíunni og vorlauknum hellt yfir. Blandađ vel saman. Látiđ í ísskáp og leyft ađ marinerast í 4-6 tíma. Líklega vćri ţó best ađ láta ţetta marinerast yfir nótt!

 

 

Lagt á ofnskúffu klćdda međ álpappír. Svo penslađi ég marineringunni ofan á áđur en andaleggirnir voru settir inn í ofninn. Bakađi ţá fyrst í klukkustund viđ 180 gráđur međ álpappír ofan á. Tók svo álpappírinn af og jók hitann í 225 gráđur til ađ fá húđina stökka!

 

 

Á međan andaleggirnir voru í ofninum skar ég niđur grćnmetiđ í ţunna strimla og sneiđar. 

 

 

Fallega glansandi og stökkt ađ sjá, ekki satt?

 

 

Međ matnum voru borin fram hrísgrjón fyrir ţá sem ţađ vildu!

 

 

Eđa í mandarínpönnuköku, sem eru hitađar áđur en ţćr eru bornar fram!

 

 

Viđ nutum víns frá Chile međ matnum - Trapiche oak cask Malbec frá ţví 2012. Ţetta er kröftugt vín međ miklu berjabragđi - kirsuber. Og jafnvel ögn reykt eftirbragđ. Gott eftirbragđ sem hentađi einkar vel međ matnum!

 

Ţađ er alltaf tími til ađ njóta!



Bloggfćrslur 17. september 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband